Arkitektúr og skipulag - 01.04.1988, Blaðsíða 71
BYGGÐAÞRÓUN
Þaö hefur löngum verið trú manna aö flestar
nýjungar veröi til vestur í Bandaríkjunum en
flytjist til Evrópu og þá gjarnan til Svíþjóöar
áöur en þær nema land hjá okkur. Á síöustu
hundraö árum hafa breyttir búskaparhættir
oröið fyrst í Bandaríkjunum og þar varö þjón-
ustugeirinn í atvinnulífinu fjölmennari en
frumvinnslugreinar, landbúnaöur og iðnaður,
áöur en svo varö annars staðar í heiminum.
Vel þekkt er útþensla bandarískra borga síö-
ustu áratugina sem á máli þarlendra hefur ver-
iö kölluö „urban sprawl". Pessi þróun helst í
hendur viö gífurlega aukningu bíleignar jafn-
framt ósk íbúanna um kyrrlátt umhverfi til
íbúöar. Bygging og skipulag svefnbæja tók á
sig ótrúlegar myndir og uröu til íbúðahverfi
meö íbúöarhúsum eingöngu og ekki neina
Þjónustu aöra aö fá af sveitarfélaginu en að
^eitt var vatni, rafmagni og frárennsli. Sum
hverfi sem allt eins gátu veriö sjálfstæö sveit-
arfélög, buöu ekki upp á skóla, dagvistun eða
jafnvel verslun, ekki einu sinni sjoppu. Tilveran
grundvallast á einkabílunum og oft nauðsyn-
legt aö a.m.k. tveir bílar séu á hvert heimili.
Skólabörn fara í skólann með skólabílnum eða
eru sótt og send af foreldrunum. Ýmsir félags-
fræöingar hafa meira aö segja rakið eiturlyfja-
vanda ungs fólks, sem alist hefur upp í slíku
umhverfi, til þess menningarsjokks sem verö-
or viö aö flytja úr foreldrahúsum til náms eöa
vinnu. Petta er reyndar ekki viöfangsefni þess-
arar greinar, heldur nýmæli í byggðamynstri
Bandaríkjanna.
(grein í American Demographics í júní 1987
eftir Jack Lessinger er rakin saga þjóðflutninga
innan Bandaríkjanna eftir miðja nítjándu öld.
Fyrsta flutningaskeiðið var milli 1760 og 1789
þegar mjög fjölgaöi ( Suöur- og Norður-Karol-
inu, Vermont og New Hampshire á kostnað
eldri nýlendna: Virginiu, Pennsylvaniu og Mas-
sachusetts. Næsta tímabil (1817 -1846) færöist
byggö vestur frá New York til New Orleans og
meðfram stórfljótum mið- og suöurrikjanna. Á
þriöja tímabili flutninganna (1873- 1900) hljóp
mikill vöxtur í iðnaðarborgir miöríkjanna, svo
sem Chicago, Minneapolis og Indianapolis,
jafnframt verulegri fólksfjölgun á vesturströnd-
inni. Fjórða tímabil í fólksflutningasögu Banda-
ríkjanna er svo milli 1929 og 1958 þegar út-
hverfi stórborganna veröa til en miðborgunum
og smábæjunum fe.r aftur.
Síöustu tvö flutningaskeiðin eiga sér hliö-
stæöu í Evrópu og ástæöa þeirra eru nýjungar i
tækni og samgöngum. Einkum hafa breyting-
arnar á síðasta tímabili veriö meir áberandi í
Bandaríkjunum en í Evrópu og kemur þar fyrst
og fremst til verulega almennari bílaeígn Am-
eríkumanna en þeirra í gamla heiminum. Aö
áliti margra, sem fjalla um skipulag og
byggðamál í Bandaríkjunum, er þar runnið upp
nýtt flutningaskeið og samkvæmt grein Jacks
Lessingers er þaö hið fimmta og kallar hann
þaö PENTURBIA. Aörir fræðimenn eru ekki
ýkja hrifnir af nafninu og hafa valið önnur heiti
á fyrirbæriö enda ekki viö ööru að búast.
Og hvernig er svo þetta nýja byggöamynst-
ur, sem er aö koma fram í Bandaríkjunum um
þessar mundir? f stuttu máli er byggðin að
færast verulega út fyrir heföbundin úthverfi
eöa svefnbæi, eins og þá sem mest hafa vaxið
á þessari öld. Nú eru Bandaríkjamenn, sem til
þessa tíma heföu valið sér búsetu í stórborg-
um eöa úthverfum þeirra, þannig aö hægt væri
aö komast til vinnu á þolanlegum tíma, farnir
aö leita að lóöum í allt að 100 km fjarlægð frá
borgunum. Par eru lóðir mun stærri en í hefð-
bundnum úthverfum, 1-4 hektarar hver lóö, en
stærstu lóðir í skipulögðum íbúöahverfum hafa
veriö um 0.1 hektari (1000 m2). Að vísu hafa
tíðkast slíkar lóðir en þá eingöngu í eigu auö-
manna. Á stórum lóðum er hægt aö rækta í sér
sveitamanninn en margir halda því fram aö
Bandaríkjamenn séu hinir mestu dreifbýlis-
vargar inn viö beinið og uni sér vel við garö-
rækt og hestasport.
í Evrópu á borgarmenning sér lengri sögu
og dýpri rætur en vestan hafs, en viö íslend-
ingar erum tiltölulega nýveriö farnir aö búa í
þéttbýli. Má í því sambandi geta þess að um
aldamótin síöustu bjuggu um 10% (slendinga í
71