Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Page 10
ÞAÐ ER VETUR í BÆ
Sumum finnst veturinn leiðigjam. Það finnst þeim ekki sem
temja sér útivist á vetmm. „Þeirhlakka til vetrarhelganna eins
og sumarhelganna.“ Þannig farast Eysteini Jónssyni orð, þeim
ódrepandi útilífsmanni og náttúruunnanda í ágætri grein í Skátablaðinu
1974. Þar hvetur hann til útivistar allan ársins hring og bendir á
margar leiðir fyrir einstaklinga og félagasamtök og bendir á ábyrgð
stjómvalda. Hann segir að þeir sem venjist ungir vetrarferðum búi að
því alla ævi.
Ég er ein þeirra sem minnist margra ferða í æsku að vetrarlagi í öllum
veðrum. Þá voru fjarlægðir aðrar og vegir verri en nú er og oft dvalist
í skíðaskálum yfir páska og áramót, og stundum urðum við veðurteppt.
En þessar ferðir voru ekki síðri en sumarferðir um fjöllin blá,
fjölbreytileg kynni af landinu geta aðeins orðið til góðs en aldrei til
ills. Útivistin fær blóðið til að renna hraðar í æðum, eykur þrek og
vellíðan.
En grundvöllur þess að njóta útiveru að vetrarlagi er að sjálfsögðu að
klæða sig skynsamlega. Það er í raun ekki fyrr en á síðustu árum að
okkur hefur lærst það sæmilega. Einkum eru böm vel og hlýlega
klædd. Sú var tíðin að menn urðu að velja á milli kulda- og regnfata:
blotna eða svitna. Núeröldinönnur. Hægt er að fá regnföt sem anda
og vatnshelda leðurgöngu skó. „ Það er hressandi að vera úti í vondu
veðri ef maður er vel klæddur,“ heyrist oft sagt.
Það er að sjálfsögðu hægt að bregða sér í stutta göngu hvenær sem er
og hvar sem er. En það er einnig hægt að velja ákveðnar gönguleiðir
í Reykjavík og nágrenni, ganga fjöru, fara í Öskjuhlíðina eða
Elliðaárdalinn svo eitthvað sé nefnt. Vil ég í þessu sambandi nefna
ágætan leiðarvísi: „Gönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu, leiðarvísir
ogkort", sem kom út á liðnu ári. Þareru nefndarekkifærrientuttugu
gönguleiðir í Reykjavík, auk leiða í öllum nágrannasveitarfélögunum,
Bláfjallafólkvangi og Reykjanesfólkvangi svo eitthvað sé nefnt. Er
þar um auðugan garð að gresja.
Ennfremur má geta þess að Útivist og Ferðafélag íslands bjóða upp
á skipulagðar ferðir allt árið, m.a. sunnudagsgönguferðir. Er þetta til
fyrirmyndar og hentar fólki á öllum aldri. Miklu meira mætti gera til
að hvetja fólk til útiveru árið um kring. Hér gæti sjónvarpið gegnt
mikilvægu hlutverki, auk annarra fjölmiðla, með því að gera stutta
þætti um vetraríþróttir og kynna gönguleiðir. Enga slíka þætti er að
fínna í vetrardagskrá sjónvarps og útvarps í ár. Félagasamtök sem
8
áhuga hafa á útivist ættu að hafa hönd í bagga með gerð slíkra þátta.
Skipulag borgarinnar miðast að miklu leyti við bfla. Þá vilja böm og
gangandi fólk gleymast. Hvergi í Reykjavík er t.d. hægt að vera
öruggur um börn nema á sérstökum þröngum gæsluvöllum. Enginn
almenningsgarður í Reykjavík er girtur þar s^m böm geta óhindrað
leikiðsér. ÞegarsnjóaríReykjavíktekurekkibetravið. Göturnareru
mddar á þann hátt að „fjallgarðar" myndast við gangstéttirnar. Margir,
einkum gamalt fólk, geta lokast inni svo dögum skiptir. Það ætti að
huga að greiðfærum gönguleiðum til jafns við göturnar.
Þeir íþróttastaðir sem eru sérstæðastir hér á landi eru vafalaust
sundstaðimir með heitum útilaugum og enn heitari pottum til að
mýkja vöðvana. „Sundið er allra meina bót,“ segja þeir sem til þekkja.
Víst er um það að loftið og vatnið bægja frá fólki flestum kvillum.
Sálfræðingur sagði mér að einn þáttur í meðferð skjólstæðinganna
væri sund. Kemur það ekki á óvart enda væri hægt að spara margar
svefntöflur og róandi lyf ef allir syntu oft og vel. Það hefur orðið
okkur mikil gæfa að kunna að nýta heita vatnið á þennan hátt.
Skíðaíþróttin hefur orðið æ vinsælli eftir því sem aðstaðan hefur
batnað, t.d. í nágrenni Reykjavíkur þar sem skíðafólki býðst fjölbreytt
og örvandi umhverfi og tært fjallaloft. Hver kemur ekki heim
endumærður á sál og líkama eftir góða skíðaferð? Eysteinn Jónsson,
sem átti hvað mestan þátt í uppbyggingu á Bláfjallasvæðinu, segir í
áðurnefndri grein um bætta aðstöðu til skíðaferða og þýðingu slíkra
ferða: „Leggja þarf snjóruðning og vegaviðhald á þessum slóðum til
jafns við það, sem gerist á þýðingarmiklum almennum
samgönguleiðum, því að hér er um það að tefla að þúsundir landsmanna
venjist við útivist á vetrum, temji sér skemmtilega íþrótt og sættist við
íslenska vetrarveðráttu, en það verður árangur þeirrra kynna við hana,
sem þessu fylgja.“
Ein er sú vetraríþrótt sem hefur orðið útbreidd síðustu ár, en er bæði
tímafrekari og kostnaðarmeiri en þær sem hér hafa verið nefndar. Það
er hestamennskan. Reykvíkingar eiga núna á fjórða þúsund hross og
íbúar höfuðborgarsvæðisins á sjöunda þúsund. Reiðmennskan hefur
orðið fjölskyldusport og farið er í útreiðar um helgar að vetrarlagi og
oft og iðulega í miðri viku. Þá er riðið um nágrennið, Heiðmörk,
Geitháls. Reiðskóli starfar yfir veturinn en bygging Reiðhallarinnar
er einkum að þakka sameiginlegu átaki hestamanna og
bændasamtakanna.
Einnar vetraríþróttar sakna ég hér í Reykjavík. Sú er bæði skemmtileg,
hressandi, ódýr og krefst lítils tíma. Þetta er skautaíþróttin. Það má
furðu gegna og er til vansa að ekkert vélfryst svell skuli finnast í sjálfri
höfuðborginni. GamliMelavöllurinn, semoftvarsprautaðurfyrrum,
er nú horfinn og hætt að gera svell á Tjöminni, en hún minnkar nú
stöðugt. Að vísu mun áður en langt um líður rísa skautahöll, mikil og
dýr, sem fullnægir öllum kröfum. Hvenær ætla Islendingar að komast
yfir flottræfilsháttinn? Hefði ekki verið nær að fá eitthvað minna og
ódýrara hér fyrir mörgum árum? Krakkar hafa ómælda ánægju af að
renna sér á skautum, og margir fullorðnir líka.
Þegar ég var unglingur í skóla hreifst ég af kenningu franska
heimspekingsins Montesquieuumáhrifloftslagsáþjóðareðli. Þessar
kenningar höfðu haft áhrif á Bjarna Thorarensen og koma m.a. sterkt
fram í ljóði hans Vetrinum. Einkenni norðursins og kuldans áttu að
vera kraftur, viljaþrek, baráttuþrek og frelsisþrá. Suðrænar þjóðir
einkenndi örlyndi, lífsgleði og ástir, allt eftirsóknanlegir eiginleikar,
en jafnframt dugleysi og tilhneiging til munaðar og hóglífis. í kvæði
BjamakemurglæsilegurknaphpersónugervingurVetrar, ríðandiyfir
Gullinbrú á hvítum hesti með norðurljósin bylgjandi á hjálminum.
Vetur er faðir Vorsins og ríkir yfir því. í þessari kenningu Frakkans
leynist áreiðanlega sannleikskorn, - veturinn getur aukið okkur þrek
og ánægju. Það vita þeir sem hafa tamið sér útivist á þeim árstíma og
hlakka til vetrarhelganna ekki síður en sumarhelganna.
Gerður Steinþórsdóttir
ARKITEKTUR OG SKIPULAG