Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Page 13

Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Page 13
BÆIR A NORÐURSLOÐ Ráðstefnumiðstöðin í Edmonton Eg ætla að gera í stuttu máli grein fyrir hvað átt er við með hugtakinu „Winter Cities" og bakgrunni þess. Einnig mun ég skýra frá þingi um þessi málefni sem haldið var í Edmonton 1986 og tengja þetta hugleiðingum um hvað við erum að gera og gætum gert á Islandi - eðlilega með nokkurri áherslu á Reykjavík. Er stuðst að hluta til við frásögn á fundi um umhverfismál á Akureyri 23. - 25. september á s.l. ári. „Intemational Winter Cities Committee" er alþjóðleg stofnun sem að stendur fjöldi borga og bæja á norðurhveli jarðar. Upphafið var hreyfing sem nú er orðin að stofnun og er rakin til ráðstefnu um skipulag norrænna borga sem haldin var í Minnesota árið 1978 eða fyrir rúmum áratug. Eftir ráðstefnuna gaf William Rogers próf. við háskólann í Minnesota út bók: „The Winter Cities Book“ og er hún talin kveikjan að samtökunum. Þórður Þ. Þorbjamarson borgarverkfræðingur sótti þessa ráðstefnu. Hvatamaðuraðstofnuninni sjálfri ertalinn Itagaki forseti borgarstjómar íSapporo í Japan. Hann kallaði saman forsvarsmenn norðlægraborga í Sapporol982 þar sem mættu fulltrúar 9 borga frá 6 löndum. Var enginn frá Norðurlöndum og heldur ekki þegar kallað var til sams konar fundar í Kína með þátttöku fulltrúa 10 borga frá 6 löndum. Kanadamenn gripu hugmyndina á lofti og stofnuðu samtök 1985, sem síðan komu á fót stofnun sem fjallar um vandamál vetrarborga. Samtökin boðuðu til ráðstefnu í Edmonton í Kanada í febrúar 1986 og var okkur Þórði borgarverkfræðingi boðið að flytja þar erindi um Island og hvemig við höfum lifað af og lifum nú á okkar norðlægu eyju. Þessi erindi ásamt öðrum voru síðan gefín út í allmiklu riti sem heitir „Winter Cities Forum 1986 - Symposium Proceedings“. Sagði ég einnig nokkuð frá ferð okkar á XIII. landsþingi Sambands ísl. sveitarfélaga í sept. 1986 og á miðborgarþingi A.í. í maí 1986. Á ráðstefnunni í Edmonton voru 406 þátttakendur frá 83 bæjum og borgum í 11 löndum. Þingið sjálft var nefnt Winter Cities Forum '86 „Finding a cure for the common cold“, skemmtilegur orðaleikur. Þetta var mikil ráðstefna með sýningum og 40 fyrirlestrum á þremur dögum. Það þurfti því að halda á spöðunum til að fá nasasjón af því sem í boði var. Eg er ekki frá því að ráðstefnumiðstöðin sem þingið var haldið í sé það sem er mér eftirminnilegast. Á þinginu var samþykkt að halda ráðstefnu annað hvert ár og var haldin ráðstefna aftur 1988 í Edmonton í tengslum við 10 SKYRINGAR: ’ EIGNARLOND OG LEIGULÖND SVÆÐt TIL SÉRSTAKRA ÚTIVISTANOTA GRASLENDI ÓGRÓIO LAND TIL UPPGR- 'EOSL'J MEÐ GRASI OG LÚPÍNU SKÓGUR OG ÖNNUR RÆKT1 UÐ SVÆÐI NÝ SVÆÐI TIL SKÓGRÆKTA NUVERANDI STIGUR EOA AKFÆR LEIO TILLAGA UM NÝJAR LEIOIR BÍLASTÆÐI ÚTMÖRK REYKJAVIKUR FOSSVOGUR, ELLIOAÁRSVÆÐI, HÓLMSHEIÐI TILLAGA AO RÆKTUN KVARÐI 1:20000 O 200 400 REYNIR VILHJALMSSON LANDSLAGSARKITEKT F.I.L.A. VILHJÁLMUR SIGTRYGGSSON SKÓGRÆKTARFRÆOINGUR vetrarólympíuleikana í Calgary. Einnig var þá ákveðið að ráðstefnan 1990 yrði ÍTromsp íNoregi. í Tromsp erætlunin að tengja ráðstefnuna „BO I NORD“, sem er sýning íbúðabyggðar með þjónustukjömum, sem verðurhönnuðaf arkitektum fráöllum Norðurlöndunum. Teymi ungra íslenskra arkitekta sem kalla samstarfið ÍSARK tekur þátt í hönnun einnar einingar. (I ISARK eru arkitektamir Egill Guðmundsson, Þórarinn Þórarinsson, Baldur Svavarsson og Kristín Garðarsdóttir ásamt Sigurði Einarssyni og Jóni Ólafi Ólafssyni.) „Winter Cities“-stofnunin stendur fyrir þessum stóm ráðstefnum annað hvert ár og hyggst standa að aukinni útgáfustarfsemi og rannsóknum á öllu er tengist búsetu á norðurslóðum. í október s.l. kom út rit sem nefnist „Cities designed for winter“ og eigum við ÞórðurÞ. Þorbjamarsonþarkaflaumlsland. Eráþessumráðstefnum fjallað um norðurslóðir á mjög breiðum grunni, frá listum og sálfræði til aðferða við snjómokstur, um tækjabúnað, hálkueyðingu, vetrarklæðnað o.m.fl. Spumingin sem leita átti svara við í Edmonton 1986 var: Hvemig getum við gert norrænar borgir vistlegri/indælli um langa vetrarmánuði? Má segja að þessu hafi verið svarað í fjórum meginþáttum: 1. Betra skipulag. I þvífólstaðþéttabæriíbúðabyggðoghækka nýtingu í miðborgum til þess að stytta ferðavegalendir íbúa og ná upp bakgrunni sem getur staðið undir bættri miðborgarþjónustu s.s. yfirbyggðum torgum, görðum, götum o.þ.h. (Mall). Dæmi: Yfirbyggðar gönguleiðir (brýr) á annarri hæð í t.d. Minneapolis og Calgary og neðanjarðar þjónustusvæði í miðborgum Montreal, Winnipeg og Toronto. 2. Trjáplöntun. Plöntun trjáa inni í borgum til að milda ásýnd og bæta loftslag. Töldu menn áhugavert að nota sígræn tré í betri borgum. Þegar snjórinn fellur á barrið og annan sfgrænan gróður í Japan, tala þeir um „að snjóblómin blómstri". 3. Félagslegar þarfir og tómstundaiðja. Fylla þarf út í frítíma fólks jafnt vetur sem sumar og í því sambandi var t.d. rætt um upplýstargönguskíðabrautir í borgargörðum, útihátíðir tengdar vetri, vetrarfatnað og ýmsan búnað. Upplýsingar um hestamennsku í bæ og borg hér sem vetrarsport vöktu mikla athygli. 4. Umhverfið sjálft. Litir og form húsa. Einangrun og hitun húsa. Hiti í götum og gangstéttum. Skynsamleg orkunýting o.s.frv. Má segja að á ráðstefnunni hafi komið fram tveir nokkuð skýrir hópar eða hugmyndir: I fyrsta lagi þeir sem vilja færa ásýnd vetrarborga sem næst suðlægari borgum með því að yfirbyggja torg, garða og frítímasvæði og skapa þannig heima fyrir það sem gert er ráð fyrir að allir sækist eftir. I öðru lagi var hópur sem taldi að við ættum að vinna með vetrinum en ekki slást við hann. Njóta snjóa og svella og láta hugmyndaflugið skapa nýja möguleika, þróa ný tæki og þægilegan hlýjan vetrarfatnað. Ljóst er að samspil þessara tveggja hugmynda getur ágætlega farið saman og má segja að við hér á íslandi höfum rambað nokkuð þá leið án mjög heimspekilegra hugleiðinga. Hvaö erum vib ab gera og getum gert? Hvað höfum við gert eða erum að gera og gætum gert til að gera bæi okkar indælli vetrarbæi? Gott og vel heppnað dæmi tel ég Kjamaskóg við Akureyri. Þar er í fallegu landslagi með trjágróðri og skjólbeltum búið að skapa draumaland með stfgum, skokkbrautum og rjóðrum ásamt leik- og þjálfunartækjum. En á vetrum erskokkbrautin upplýst og troðin fyrir gönguskíði og á staðnum er búnings- og snyrtiaðstaða. Framtak til fyrirmyndar sem er vinsælt. Það ermannlíf íKjamaskógi allt árið um kring. Reykjavík-betra skipulag. Rifjum upp þau atriði, sem drepið var á hér að framan að hefðu verið dregin fram sem aðalatriði íEdmonton og h'tum til Reykjavíkur: 1. Betra skipulag. 2. Trjáplöntun. 3. Tómstundir. 4. Umhverfið sjálft. Fyrirborgarlandiðernýstaðfest aðalskipulag og fylgir því sérstakt kort og kafli í greinargerð um umhverfismál og græn svæði. Sem dæmi um sumarstemmningu og sumarloftslag árið um kring má taka verslunarmiðstöðina Kringluna með um 80 þjónustuaðila og verslanir undir einu þaki. Til þess að reyna að hindra að svona framkvæmd lami sjálfa miðborgina með söguhefð sinni og þýðingu sem stjómsýslumiðstöð höfuðborgarinnar hefur verið unnið að ýmsum skipulagsþáttum til að styrkja stöðu hennar. Við Skúlagötusvæðið eru f uppbyggingu 500 íbúðir á svæði sem orðið var úrelt athafna- og geymslusvæði fyrir hafnarstarfsemi sem þegar er flutt inn í Sundahöfn. Einnig er ný íbúðabyggð að rísa á „Búr“-lóð og atvinnustarfsemi í Örfirisey. Þessi fjölgun íbúða og aukin atvinnustarfsemi við miðborgina mun styrkja stöðu hennar verulega. Einnig má benda á uppbyggingu og endumýjun eldri byggðar í Kvosinni í samræmi við tiltölulega nýstaðfest skipulag. Laugavegurinn er eitt dæmið, þar hafa verið lagðar hitaslöngur bæði undir gangstéttir og akbraut, umhverfi bætt fyrir fótgangandi og plantað gróðri til yndisauka. Miðborgin og þá sérstaklega Kvosin á í nokkurri vök að verjast nú. Eru margir samofnir þættir sem valda því, s.s. langur tími sem hafði liðið án ákvarðana og skipulags, yfirtaka banka á verslunarhúsnæði við Austurstræti og Hafnarstræti, gríðarleg og óvænt aukning bílaeignar með umferðarvandamálum og vöntun á bílastæðum og á sama tíma uppbyggingin í Kringlunni með nýrri samkeppni. Nú þarf því að taka á og nýta þá möguleika sem skipulagið gefur til endur- og nýbyggingar og um leið að hlúa að því sem fyrir er. Þarna þurfa eigendur og rekstraraðilar á svæðinu að taka höndum saman með borgaryfirvöldum. Eg held að ef Austurstræti allt yrði gert að fallegri upphitaðri göngugötu hið fyrsta með „regnhlífum" eins og kynntar hafa verið og bankamir létu eitthvað af húsnæði að götunni eða a.m.k. leigðu sýningarglugga sem útbúa mætti að götunni, þá yrði 11 ARKITEKTÚR OG SKIPULAG ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.