Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Page 64

Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Page 64
byggingalóða á reitnum (Mynd 10). Reitanýting árið 1984 á um 1.200 götureitum (fimm stafa staðgreinireitum) myndar grundvöllinn fyrir mat á æskilegri reitanýtingu á hverjum reit á skipulagstímabilinu. Aðalskipulaginu fylgir þemakort í mælikvarðanum 1:15.000, sem sýnir helstu byggingasvæði í borginni á skipulagstímabilinu og æskilega reitanýtingu innan núverandi byggðar (Mynd 11). Öllum byggðareitum í borginni er skipað í 10 nýtingarflokka. A byggingasvæðum fer hámarksnýting í reit eftir efri mörkum þess flokks sem reiturinn er flokkaður í. Hlutverk reitanýtingarkortsins er því að gefa heildarramma um Reitanýtingarkort Aðalskipulags Reykjavíkur 1984- 2004 æskilegt byggingamagn á einstökum reitum, afmarka byggingasvæði og skilgreina hvaða hverfi í borginni teljast fastmótuð. A bakhlið kortsins eru prentaðar reitanýtingartölur hvers reits árið 1984. Þetta þemakort, sem er eitt þriggja þemakorta sem fylgja nýja aðalskipulaginu, er ekki staðfest frekar en hin þemakortin, en ætlað að vera leiðbeinandi fyrir deiliskipulag og/eða ákvarðanir um breytt byggingamagn í einstökum reitum. I 4. kafla greinargerðarinnar er í texta og töflum fjallað um nýtingarmál og er sú stefnumörkun staðfest eins og annað efni greinargerðarinnar. I greinargerð segir m.a. um reitanýtingu: „Akveða skal nýtt hámark með breytingu á skipulagi eða nýju skipulagi í samræmi við ákvæði skipu lagslaga, ef um veru-lega aukningu á nýtingu er að ræða að mati borgaryfirvalda. Mjög sérhæfðar byggingar, svo sem stofnanir aldraðra og hótel, þurfa ekki alltaf að falla innan marka reitanýtingar. I deiliskipulagi og/eða við ákvarðanir um aukna nýtingu á einstökum lóðum verður að taka tillit til fleiri þátta en reitanýtingar. Lóðir á sama reit geta verið misstórar og haft misjafna nýtingu á grunnári 1984. Aðrir þættir, sem taka þarf til greina, eru til dæmis: * nýting á aðliggjandi lóðum * hæðir húsa * skuggamyndanir * þörf fyrir bílastæði * leiksvæði á íbúðareitum.” Reitanýtingin er hugsuð sem stefnumörkun um æskilegt heildarbyggingarmagn á reit, en ekki að lóðanýting á hverri einstakri lóð sé jöfn reitanýtingartölu reitsins. Mynd 12, sem sýnir reitanýtingu og lóðanýtingu á 25 lóða reit sem afmarkast af Njálsgötu, Bergþórugötu, Barónsstíg og Frakkastíg, skýrir þetta vel. Reitanýting árið 1984 í þessum reit var 1.24 (hámark 1.29 ), en 14 lóðir voru með hærri nýtingu, þar af tvær með yfir 4 í nýtingu, og 11 lóðir með mun minni lóðanýtingu en reiturinn í heild. I reit sem þessum með svo misjafna lóðanýtingu þarf að gera úttekt á reitnum í heild eða vinna deiliskipulag og meta út frá því æskilega nýtingu hverrar lóðar. Þegar þessari úttekt er lokið er reitanýting
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.