Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Page 75
Le Corbusier. Ronchamp kapellan.
Renaudie, sem hafði nýstárlegar lausnir fram að fœra í
fjölbýlishúsagerð. Þennan arkitektúr má helst telja „organískan “ en
skörp horn og þríhyrndar vistarverurog garðsvalir eru helstu einkenni
hans. Með því að dreifa íbúðunum í stjörnumynstri fékk hann fram
mjög skemmtilega lausn á garðleysisvandamálifjölbýlishúsaformsins.
Flestar ef ekki allar íhúðirnar hafa einkagarð. Hin innrýmin eru
ýmist verslanir eða skrifstofur, en öll byggingin átti að tryggja að
menn þyrftu ekki að fara úr henni til að sœkja sér helstu nauðþurftir
og þjónustu.
Jean Nouvel hefur gert þessa „glettu“ (folie) í Villette- garðinum,
sem minnir að nokkru leyti á horn Renaudies, þótt óvíst sé að um bein
hugmyndatengslséaðrœða. Ifrönskuborgarmynstriermunalgengara
en hérlendis, að götur mœtist undir skörðu horni, og býður þetta oft
upp á skemmtilegar lausnir.
Þetta „hús-stefni“ eftir Beaudoin, Toussel og Rousselot í Nancy er
dæmi um eina slíka.
Fjölnýtistefnan hefur meðal annars leitt til þess að menn hafa reynt
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
Dæmi um notkun Jules Saulinier á náttúrlegum jarðcfnum.
að endurmeta og skilgreina hina ýmsu þætti borgarmenningarinnar.
Menn hafa spurt sig hvað er gata, torg og hver eiga að vera tengslog
mikilvœgi gangandi umferðar og akandi. Hvernig skynjum við
borgina, annars vegar úr bíl og hins vegarsem gangandi vegfarendur?
Menn fóru í vaxandi mæli að taka tillit til tíma- og hraðafaktorsins og
höfðu íþví sambandi ýmislegt að sœkja í kenningar Le Corbusier.
Borgarrýmið skynjast ekki aðeins mismunandi eftir mislangri tilsýnd
og sjónarhorni heldur einnig eftir hraða skynjandans. Hraðinn
hœttir t.d. að vera eitthvað ógnvekjandi og ómeðfœrilegt og verður að
verkfœri í umhverfismótun borgarinnar. Nostalgia sveitamannsins
víkur fyrir nýrri sjálfsskynjun nútímamannsins. Auglýsingaskilti
verða hluti af uppbyggingu horga og þéttbýlisskipulags (sjá skrifR.
Venturi „The Learning ofLas Vegas").
Framhald í næsta blaði.
Árni Þ.Jónsson
73
Cs.de Postzampore „Cite de la Musique.