Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Page 76

Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Page 76
Uppfinningamaðurinn Rickard Lindström, höfundur þurrsalemisins, hefur án alls efa fengið flest heiðursverðlaun allra umhverfisvemdunarmanna. Allt frá 1939 hefur hann unnið að gerð þessarar byltingar í salernismálum sem nú er seld beggja vegna Atlantshafsins. Sjálfur er hann búsettur í Svíþjóð en vinnur vestra með Abby Rockefeller (bróðurdóttur Nelsons) en það er einmitt þar sem framleiðsla hans náði sér alvarlega á strik. Ekki skaðaði það að Jane Fonda og aðrar stjömur skiptu um og hentu vatnssaleminu (Fonda á 10 stykki af Clivus Multrum). En hvað er svona merkilegt við þetta þurrsalemi? Jú, það gerir allar skolpleiðslur óþarfar og þar með hreinsistöðvamar. Allur slíkur kostnaður fellur niður. Mengun af völdum salernismála verður einnig núll. í stað þess fellur til lyktarlaus og skaðlaus áburður, eins samsettur og mold. En enda þótt allir geri sér grein fyrir yfirburðum þurrsalemisins er langur vegur frá því að það sé almennt tekið í notkun og hér á landi fyrirfinnst það sennilega ekki ennþá. En lítum nú á tækið: Það er salernisstóll (án vatnskassa auðvitað),sem tengdurerviðu.þ.b. eins kúbikmetra gám úr trefjaplasti. Gámurinn inniheldur torf, lauf, bakteríur og sveppi, rétt eins og botn venjulegs skógar. Viðgáminn má einnig tengja sorprennu fyrir lífrænt sorp frá eldhúsi. Sem sagt, úrgangurinn fer ekkert lengra en í gáminn og eftir tvö ár frá notkunartöku má byrja að fjarlægja áburðinn þurran og lyktarlausan og nota hann í garðinn. Við þessa lýsingu vakna auðvitað ótal spurningar: Er lykt í baðherberginu? Nei, yfirþrýstingur loftsins í kerfinu kemur í veg fyrir það. Sést niður í salernisopið á klósettinu? Nei, sérstök loka opnast um leið og sest er á klósettsetuna. Hvert ferhlandið? Gegnum sérstaka leiðslu, sem tengist þvottavatni, baðvatni og öðru sápuvatni og auðvelt er að hreinsa. Hvað safnast mikið fyrireftirárið? Rúmmál þess sem sett er ígáminn minnkar sem svarar 19/20. Hvað með sýkla? Sýklar sem fara niður í gáminn verða undir í baráttunni við þær bakteríur sem eru þar í sínu eðlilega umhverfi. Kostnaður? Byggingarkostnaður lækkar í heild. Það sparast einnig 25 tonn af vatni á mann á hverju ári, sem skiptir raunar meira máli fyrir sveitarstjómir en neytandann. 74 ARKITEKTUR OG SKIPULAG
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.