Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Side 86

Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Side 86
SKOÐANAKONNUN I KRINGLUNNI Laugardaginn 4. febrúar var framkvæmd skoðanakönnun í Kringlunni á vegum tímaritsins Arkitektúr og skipulag. Tilefni könnunarinnar vartemablaðsins„Vetrarborgir“ og tilgangurinn var að komast að því hvaða áhrif y firbyggðar götur hafa á í slendinga. Tilhögun könnunarinnar var þannig að spurt var á einum degi frá opnun til lokunar þannig að svör fengust bæði þegar fjölmennt og fámennt er íKringlunni. Reynt varað hafajafnadreifingu milli kynja og aldurshópa og þeir ekki spurðir sem voru yngri en 20 ára. Kringlan er af dálítið öðrum toga en venjulegar yfirbyggðar göngugötur. Kringlan flokkast frekar sem verslunarmiðstöð en yfirbyggð göngugata eða miðbær. Almennt má segja að aðspurðir hafi verið ánægðir með Kringluna og þá aðallega að vera undir þaki með fjölbreytt úrval verslana. Helsti ókostur var talin aðkoman sem þykir þröng, dimm og villandi, bæði fyrir gangandi og akandi. Að hluta til stafar það af því að það umhverfi er ekki alveg frágengið ennþá. Markmið könnunarinnar var aðallega að athuga hvort fólk fengi innilokunarkennd f svona rými, hvemig því liði í því og hvort við séum á réttri braut varðandi þessi efni. Af niðurstöðum má draga þá ályktun að fólki líður yfirleitt vel í almenningsrými Kringlunnar. Helstu gallar eru þrengsli á annatímum, hávaði og skortur á fjölbreytni í almenningsrými og ef eitthvað er, þá er þar um óþarflega mikinn íburð að ræða. Einnig má benda á ýmis önnur atriði, svo sem mikinn byggingarkostnað og leka í þaki. Þetta bendir til að fólk hafi tekið þessu nýmæli vel og sé undir það búið að þessari þróun verði haldið áfram á breiðari grundvelli þannig að verslunarmiðja verði jafnframt eins konar hverfamiðja. Hér fara á 84 eftir helstu niðurstöður úr könnuninni. Spurt var hversu oft viðkomandi kæmi í Kringluna og svömðu 62% að þeir kæmu oftar en tvisvar í mánuði en 38% sjaldnar. - 47% dvöldu í Kringlunni minna en eina klukkustund, 34% 1 -3 tíma ogl9% lengur en þrjár klukkustundi. - á einkabíl komu 81%, í strætisvagni 14% og gangandi voru 5%. - frá Reykjavík komu 79%, en 21% komu annars staðar frá. _ 86% fundust verslanimar mátulega stórar, 14% fundust þær of litlar, 5% of stórar. - 83% fannstdagsljósiðinniveranægjanlegt, 17%fannstþaðoflítið, auk þess nefndu aðspurðir of litla lýsingu og skammdegislíðan. - 72% fannst loftið inni vera gott, en 20% nefndu of þungt loft. - 54% fannst almenningsrýmið vera fullnægjandi, 34% sæmilegt en 12% fannst það vera ófullnægjandi. -41% fannst ytra umhverfi og aðkomu vera ábótavant, 36% fannst hún vera sæmileg og 23% svöruðu skemmtileg. Þeim sem voru óánægðir fannst vera mengun af bílum, langt í strætisvagn, drungalegt og þröngt. Hverjir eru aðal ókostir Kringlunnar? 13% aðspurðra fannst verslanir of dýrar -10% fundu enga galla - um of mikinn hávaða kvörtuðu 6% - 3% töldu umhverfi of einhæft - 2% kvörtuðu yfir bílastæðum - 5% kvörtuðu yfir of miklum fjölda fólks á annatímum. Hverjir eru aðal kostir Kringlunnr? 55% töldu það aðalkost Kringlunnar að þar væri hægt að versla undir þaki - 45% töldu það mesta kostinn að þar væri hægt að fá allt á sama stað - 14% minntust á fjölda verslana -12% á fjölbreytt úrval -og5% á nálægð. Tryggvi Líndal ARKITEKTUR OG SKIPULAG
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.