Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Page 89

Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Page 89
MYNDIR OG MYNDBYGGINGAR MANNVIRKJAFRÆÐI SIGURÐAR ÖRLYGSSONAR Sigurður á vinnuslofu ásamt myndinni „ Að snerta regnbogann" að ætti ekki að koma flatt upp á neinn þann, sem fylgst hefur með myndlist Sigurðar Orlygssonar hin síðari ár, að í æsku átti hann sér þann draum að verða arkitekt. Myndir hans eru til að mynda mjög arkitektónískar að allri gerð, og þá ekki aðeins að stærð - nokkrar þeirra teygja sig yfir 20 m2 - heldur eru þær oftar en ekki samsettar úr byggingareiningum, sem fengnar sru að láni jafnt frá Vítrúvíusi sem Mies, og notaðar eru til nýbygginga í heimatilbúnu landslagi. Nýlega hóf Sigurður að byggja við myndir sínar svo nú teygja innviðir þeirra sig út á gólf og gera að engu hefðbundin mörk milli málaralistar og skúlptúrs. Sjálfur vill Sigurður beinlínis flokka samsetningu mynda sinna undir burðarþolsfræði, eða það sem í tíð Jóns Stefánssonar, annars arkitekts í íslenskri myndlist, var nefnt „mannvirkjafræði". Segirhann að sitt fyrsta verk sé ævinlega að gera upp við sig hvar meginþungi myndar, eða formræn þungamiðja, eigi að vera og raða öðrum byggingareiningum niður í samræmi við það. Þetta segist Sigurður gera löngu áður en hann fer að hugsa um liti, áíerð og annað í þá veru. Ennfremur má segja að í mörgum myndverkum Sigurðar séu burðarþolfræðileg hugtök eins og álag, bjögun og spenna, færð í áþreifanlegan búning með máluðum hjólum, trissum og reislum, þó markmið listamannsins sé vísastað minna á takmörk raunhyggjunnar fremur en að vegsama hana. Þótt Sigurður léti snemma afvegaleiðast og ánetjast myndlistinni, gaf hann ekki upp á bátinn áhugann á byggingum og umhveríi. Raunar fer hann ekki leynt með þá sjálfsagt óvinsælu skoðun, að byggingarlistin sé nauðsynlegust og merkilegust sjónlistanna. A námsárum sínum í Myndlista- og handíðaskólanum rann honum blóðið til skyldunnar, er rætt var um að rífa gömlu húsin á Bernhöftstorfunni, og var í þeim galvaska hópi sem tók sig til og málaði þessi hús eina he/gi árið 1973. Allar götur síðan hefur Sigurður fylgst grannt með því sem gerst hefur 87 ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.