Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Page 13

Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Page 13
TJALDBUÐIR I LAUGARDAL HÖF: MANFREÐ VILHJÁLMSSON Læröi arkitektúr í Svíþjóö og rekur teiknistofu í Reykjavík. /IRKITEKI" Hönnun þjónustustöðvar fyrir tjaldbúa (camping) á vegum Reykjavíkurborgar var bæði óvenjulegt og skemmtilegt verkefni. Eg vil þá fyrst geta nokkurra hugmynda sem lágu að baki tjaldbúðanna. Ég setti mig í spor tjaldbúans, leit veröldinaút um tjaldopið og reyndi að leysa verkefnið frá þessum „sjónarhóli“. Lofthæðíþjónustuhúsinuerlítil.Birtan íhúsinu flæðir inn um „transparent“ þak eins og í tjaldinu. Reynt er að fella húsið að „guðsgrænni" náttúru Laugardals með klömbruhnausum og grasbrekku. Torfið snýr að umferðargötu og að aðkomumanni, en þjónustuhúsið opnast hins vegar móti sól og tjaldstæðum. Með þessu reyndi ég m.a. að nálgast þá stemmingu, sem fylgir tjaldlífi. Við gerð forsagnar var leitað fanga í erlendum ritum um tjaldbúðir. Um 96% gesta í Laugardal eru erlendir, en alls gistuum lóþúsundmannstjaldsvæðiðárið 1987. Tjaldbúðir eru flokkaðar eftir gæðum þeirrar þjónustu sem veitt er. Stefnt er að því að tjaldbúðimar í Laugardal komi í efsta flokk er fram líða stundir, Reykjavíkurborg til sóma. Búðirnar eru vel staðsettar í borginni í næsta nágrenni við sundlaugar, verslanir, íþróttavelli, almenningsvagna og opin gróðursvæði. Ætlunin er að teygja trjágróður Laugardals inn í tjaldsvæðið, hólfa það niður og skapa þannig skjól fyrir vindum og hindra innsýni. Auk venjulegra tjaldstæða verða þama stæði fyrir tjald- og húsvagna. Þama verða leiksvæði fyrir böm og fullorðna, aðstaða fyrir hópferðir o.fl. Eftirtaldir þættir voru ofarlega á blaði við hönnun hússins: sérstök áhersla lögð á góða snyrtiaðstöðu, þvotta- og þurrkaðstöðu (þvottavél, þurrkskápurog þurrkhjallur), aðstöðu til uppþvotta og eldunar, úti og inni. Afdrep fyrir húsvörð og skáli fyrir gesti með síma, aðstöðu til skrifta o.s.frv. Um húsið þvert liggur „göngugata“ undir þaki. A aðra hönd upphitað þjónusturými en á hina aðstaða undir þaki fyrir eldun og uppþvott, grill, borð og bekkir. Húsinu er ætlað að þjóna um 400 gestum, hugsanlega allt að 600 einstaka daga. Það er um 340 m2 að grunnfleti, þar af um 120 m2 útisvæði undir þaki. Við efnisval í húsið var leitað eftir viðhaldsfríum efnum. I burðargrind er harðviður, í þaki er ál og polyvinylclorið- plötur, inn- og útveggir eru klæddir glerfíberplötum, einnig vaskborð og aðrar innréttingar, geislahitun er í öllum gólfum, en þau er lögð brenndum leirflísum. Af framansögðu má ljóst vera að í tjaldbúðunum er teflt saman gömlum byggingarmáta og nýjum, torfi, timbri, áli og plasti. Ég vil að húsið beri merki þess að vera afkvæmi okkar tíma. Auk ofanritaðs voru hönnuðir: burðarvirki: Verkfræðistofa Braga Þorsteinssonar og Eyvinds Valdimarssonar lagnir og loftræsting: Hönnun hf. raflagnir: Rafhönnun h.f. lóðarlögun: Reynir Vilhjálmsson Umsjón með verkinu hafði byggingardeild borgarverkfræðings I ARKITEKTÚR OG SKIPULAG 11

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.