Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Page 36
SUMARBÚSTAÐUR í STAFAFELLSFJÖLLUM
A-SKAFTAFELLSSÝSLU
Höf: Árni Kjartansson og Sigbjöm Kjartansson arkitektar
FAÍ.
Stafafellsfjöll eru kjarrivaxnar hlíðar sem liggja að farvegi
Jökulsár í Lóni. Þar er útivistarsvæði Homfirðinga og allþétt
sumarbústaðabyggð.
Lóðin er á litskrúðugum líparítaur, við rætur snarbrattrar
kjarrivaxinnar skriðu. Til suðurs er tignarlegt útsýni til
Brunnhorns yfir Jökulsárauranna.
Húsið á að vera „hefðbundinn sumarbústaður”, með
gistiaðstöðu fyrir „stórfjölskyldu”. I því er anddyri, lítil
geymsla, snyrting, tvö svefnherbergi og opið rými með stofu,
eldhúsi, borðstofu og svefnlofti. Með formi þess er leitast við
að mynda áhugavert rými inni og að fella það að landslaginu.
Stofu og borðstofu er snúið móti sól og útsýni, og hægt er að
opna stórar dyr út á pall.
Húsið verður byggt úr timbri, veggir klæddir með standandi
listapanel að utan, en spónaplötum inni. Á þakinu verður
bámjám. I
34
ARKiTEKTUR OG SKIPULAG