Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Page 40
VINNINGSTILLAGA I HUGMYNDASAMKEPPNI
UM ENDURBÆTUR Á FOSSVOGSKIRKJU
A
aðalfundi Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæmis 2.
maí 1988 var samþykkt að haldin yrði opin
hugmyndasamkeppni um endurbætur á innviðum
Fossvogskirkju. Leitað var eftir hugmyndum um hvemig
auka mætti hlýleika kirkjunnar, hvort hægt væri að fjölga
sætum í henni, og um gerð nýrrar altaristöflu. Fimm manna
dómnefnd var skipuð. Af hálfu Kirkjugarða Reykjavíkur-
prófastsdæmis voru tilnefndir Olafur Sigurðsson arkitekt,
formaður, Helgi Eiíasson útibússtjóri og Olafur Skúlason
dómprófastur. Arkitektafélag íslands tilnefndi Guðrúnu
Guðmundsdóttur arkitekt og S verri Norðfjörð arkitekt í nefnd-
ina. Skilafrestur í samkeppninni var til 1. febrúar 1989.
Þrettán tillögur bárust, þrjár hlutu verðlaun, og þrjár aðrar voru
keyptar.Fyrstu verðlaun hlaut tillaga Áma Kjartanssonar
arkitekts, Sigbjörns Kjartanssonar arkitekts og Helga
Gíslasonar myndhöggvara. Þeim til ráðgjafar var sr. Baldur
Kristjánsson sóknarprestur. Hér fylgja teikningar af tillögunni
og glefsur úr greinargerð höfunda.
INNGANGUR Fossvogskirkja er hið ytra byggð á rómanska
basilikuforminu, en ekki er opið út undir hliðarþökin og er
kirkjan hið innra einn stíft afmarkaður salur.
í þessari tillögu er meðal annars leitast við að nýta ytra form
kirkjunnar án þess að raska hlutföllum og ytra útliti. Opnað er
úr sal kirkjunnar út undir hliðarþökin sitt hvomm megin og er
þar hleypt inn birtu um veggina, sem hlaðnir eru úr hrjúfum
ógegnsæjum glersteini og er einstaka steinn litaður. Við þetta
38
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG