Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Blaðsíða 41
breikkar salurinn, rými hans breytist og aðkoma að sætaröðum
auðveldast.
Gert er ráð fyrir að stækka svalir fram í kirkjuna framan við
núverandi svalir. Með því verða 113 sæti á svölum. Með
svalastækkuninni sty ttist rýmið, það verður nánara og hlýlegra,
einkum fyrir þær athafnir þegar kirkjan er ekki fullsetin.
Sérstök áherslaer lögð á altaristöfluna og altarið í uppbyggingu
kirkjurýmisins. Altarið er sett í kórinn miðjan og formi kórop-
sins er breytt til að undirstrika form altaristöflunnar.
Með steingólfi á miðgangi og í kómum að altarinu og með stíg
að Kristsmyndinni í garðinum er leitast við að styrkja og
undirstrika hugsunina um veginn, sem er ein grundvallar-
hugmynd í sígildri kirkjubyggingarhefð.
Með breytingu á rými kirkjunnar, svölum og útbyggingum og
einnig með því að gera altaristöfluna að höggmynd í kömum
miðjum, er lögð áhersla á hið miðlæga, sem er önnur grundval-
larhugmynd.
Höfundar telja að breytingum á innviðum kirkjunnar beri að
fylgja eftir með lagfæringum á aðkomunni að henni. Því
fylgja hér lauslegar hugmyndir um breytingar úti fyrir dyrum
kirkjunnar þó það sé utan eiginlegra samkeppnismarka.
Lagt er til að útitröppumar verði stækkaðar nokkuð og fram af
þeim gerð stétt lögð steinhellum, sem teygi sig í sömu hæð út
íkirkjugarðinn. Stéttin skeri akbrautinaen bílareigi þargreiða
leið yfir svo sem ef hraðahindrun væri. Kristsmyndnni, sem
nú stendur niðri í garðinum fyrir framan kirkjuna, verði skipað
39
ARKITEKTUR OG SKIPULAG