Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Page 49
Dæmigert anddyri á fjölbýlishúsi byggðu af íslendingum í Kanada í upphafi þessarar aldar.
eftirspurnin. Þetta má kalla draum íslenskra byggingamanna
fyrr og síðar. Mér tjáðu fróðir menn, sem mundu eða þekktu
þessa áratugi upp úr aldamótum, að sumar fjölskyldur hefðu
flutt allt að fimm sinnum á örfáum árum, vegna hækkandi
fasteignaverðs á fullbúnu húsnæði.
Það tímabil sem undirritaður er einkum að athuga eru árin
1900-1929. Að vísu komu fyrstu Islendingamir til Winnipeg
upp úr 1870 en þeirra fer ekki að gæta verulega í
byggingariðninni fyrr en upp úr 1890. Fyrsta byggingarleyfið
til handa íslendingi var gefið út 1889 og var maðurinn Helgi
nokkur Jónsson. Annar íslendingur sem hóf bygg-ingar-
framkvæmdir snemma var Bjöm Blöndal, sá var af húnvetnsku
bergi brotinn eins og nafnið ber með sér og af þeirri frægu
Blöndalsætt. Geta nú ættfróðir menn sest niður og rakið ættir
fram á þennan dag. Þeim til fróðleiks og til að ýta undir hið
séríslenska fyrirbæri ættfræðslu, skal þess getið að eiginkona
núverandi fylkisstjóra (Lieutenant Governor) frú Doris
Johnson, er bamabam þessa Bjöms Blöndals. Bjöm Blöndal
byggði fjöldamörg hús bæði í þeim hlutum Winnipegborgar
sem kallast West End og The City. Bjöm byggði einnig hótel
í Gimli sem síðar var breytt í elliheimilið Betel í Gimli.
Einhverja hluti úr fslenskri byggingararfleifð tóku þessir menn
með sér vestur um haf. T.d. mun Björn Blöndal hafa verið
haldinn þeirri áráttu að hlaða garða umhverfis húsið sitt. Því
flutti hann vandlega valið grjót með sér frá sumarbústað sínum
við Winnipegvatn, og var það á þeim tíma mikil fyrirhöfn.
Grjótið var síðan sett í garða við bústað hans í West End í
Winnipeg. Þvímiðureru ekki miklarleifarafþessum grjótgarði,
en þó vottar fyrir honum bakatil í lóðinni.
Aðrir frumherjar vom meðal annars Jón J. Vopni, sem byggði
einbýlis- og fjölbýlishús í Winnipeg og fjölmargar
járnbrautarstöðvar víða um Kanada, svo eitthvað sé nefnt.
Hann var, eins og nafnið sem hann tók sér bendir til, ættaður
frá Vopnafirði og stundaði í meira en hálfa öld smíði og
fasteignaviðskipti í Winnipeg. Hann sat í borgarstjórn Win-
nipeg frá 1916. Jón Jóhannesson var einnig í hópi frumher-
janna og stundaði um margra ára skeið húsasmíði í stórum stfl.
Byggði hann t.d. árið 1911 stórhýsi á homi Victor- og Wel-
lingtonstræta. Það fjölbýlishús gengur undir nafninu Verona
Apartments. Albert Johnson (Jónsson) kom til Winnipeg
1886. Hann vann fjölmörg störf áður en hann sneri sér að
byggingarframkvæmdum, m.a. jámbrautarlagningu og pren-
tun Lögbergs. Meðal fjölbýlishúsa sem hann byggði voru
Nova Villa Block við 615 Herbrook st., Ruth Apartments við
510 Maryland st., Pandora Court 759 Winnipeg Ave. og
Markland Block 706-8 Furby st. Þessar fjárfestingar og
byggingarframkvæmdir Alberts voru árangursríkar og var
hann lengi vel talinn með auðugustu Islendingum vestanhafs.
Sú hefð ríkti í upphafi þessarar aldar meðal bygginga-meistara
í Winnipeg að gefa fjölbýlishúsum nafn fyrir utan venjubundin
húsnúmer við tiltekna götu. Þessi nöfn voru venjulega kven-
mannsnöfn og leituðu menn víða fanga.Einn byggingameis-
tari í Winnipegborg skírði fjölbýlishús sín í höfuðið á kven-
persónum í leikritum Shakespeares. Annar íslenskur átti
47
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG