Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Page 53
MAT A UMHVERFISAHRIFUM FRAMKVÆMDA
HÖF: GESTUR ÓLAFSSON
Gestur er arkitekt og skipulagsfræðingur og rekur
ráðgjafastarfsemi í Kópavogi.
NAUÐSYN Á KERFISBUNDNU MATI Undan-
fama áratugi hafa menn í vaxandi mæli verið að gera
sér grein fyrir ýmsum neikvæðum áhrifum sem
framkvæmdir gætu haft í för með sér bæði á umhverfi og líf
manna, ef ekki væri að gáð.
Reynslan hefur sýnt fram á, svo ekki verður um villst, að mat
á hagkvæmni framkvæmda eitt sér hefur leitt okkur á margar
villigötur. Svipuðumáli gegnirlíkaefeinhvereinfræðigrein
ræður of miklu við slíkar ákvarðanir. Það sem menn hafa
verið að gera sér betur og betur grein fyrir, er að
stjómmálamenn sem þurfa að taka ákvarðanir um þessi mál
og almenningur sem vill kynna sér þau þurfa heildstætt mat
á þeim kostum sem koma til greina við viðkomandi
framkvæmd eða stefnu og jafnframt mat á heildaráhrifum
hvers kosts fyrir sig, áður en endanlegar ákvarðanir eru
teknar.
Flestir sérfræðingar hafa tilhneigingu til þess að leggja
mælikvarða sinnar eigin fræðigreinar á viðkomandi
framkvæmd,oftákostnaðannarraþekkingarsviða. Þegarum
framkvæmdir er að ræða sem koma inn á mjög mörg þekkin-
garsvið, eins og algengt er um stórframkvæmdir, koma þessi
vandkvæði greinilega í ljós. Mjög víða hafa því þjóðir,
sveitarfélög og fyrirtæki lagt út í framkvæmdir af of lítilli
fyrirhyggju, og án þess að færa sér í nyt tiltæka þekkingu.
Dæmi um þetta eru fjölmörg.
Oft eru áhrif framkvæmda eða stefna líka mun víðtækari og
margþættari en nokkra eina fræðigrein grunar.
Viðvíkjandi vistfræðilegum breytingum sem eiga sér stað
vegna framkvæmda er t.d. nauðsynlegt að vita um hvaða
breytingar er að ræða, hvar þær eiga sér stað og hvenær þær
eiga sér stað. Þessar breytingar geta líka bæði verið beinar og
óbeinar og auk þess verið mjög mismunandi mikilvægar.
Oft er heldur ekki gripið til nauðsynlegra aðgerða fyrr en í
óefni er komið. Viðkomandi vistkerfi getur hugsanlega þolað
eitthvert álag um ákveðinn tíma, þótt ákveðnar breytingar
segi til sín. T.d. er það algengt að viðkvæmari einstaklingar
deyi eða að fjölbreytni kerfisins minnki.
Oft er áhrifa af framkvæmdum að leita í næsta umhverfi, en
einnig geta þessi áhrif komið fram mjög víða og borist á milli
landa. Sýrublandin rigning, sem nú veldur miklu tjóni á
mannvirkjum og gróðri í Evrópu og víðar er þannig ekki
eingöngu afleiðing af iðnaði Evrópumanna, heldur berst
þessi rigning einnig frá iðnríkjum bæði í austri og vestri.
Danir óttast nú einnig að áburðamotkun þeirra hafi valdið
dauða á fiski í Norðursjónum, og hugsanlega getur notkun
íslendinga á tilbúnum áburði, sem nú nemur röskum 70
þúsund tonnum árlega, líka valdið umtalsverðum áhrifum til
langframa.
Mjög oft hefur staðsetning og gerð áberandi framkvæmda
verið ákveðin án þess að áður hafi farið fram fullnægjandi
athuganir á kostum sem koma til greina, þrátt fyrir ákvæði laga
umnáttúmvemdfráárinu 1971 enþarsegir: „Valdifyrirhuguð
mannvirkjagerð eða jarðrask hættu á því að landið breyti
varanlega um svip ... er skylt að leita álits
Náttúru verndarráðs, áður en framkvæmdir hefjast.” Þeim
sem ferðast um Island dylst varla, að hægt hefði verið að
staðsetja og hanna margar stórframkvæmdir síðustu áratuga
mun betur en gert hefur verið.
Oft hafa framkvæmdaaðilar heldur ekki leitast við að meta
félagsleg áhrif meiriháttar framkvæmda sem skyldi, þótt þau
hafi verið mjög veruleg. Þessi áhrifgeta bæði verið efnahagsleg,
menningarleg og komið fram bæði á einstakl-ingum, stofnunum
og félagshópum. Oft er erfitt að meta þessi áhrif til fullnustu,
en mikil reynsla hefur fengist á undanfömum árum við mat á
þessum þáttum erlendis. Einn-ig hafa ýmsar aðgerðir verið
reyndar til þess að draga úr óæskilegum félagslegum áhrifum
framkvæmda.
Tengsl milli sjúkdóma og ýmissa orsaka í umhverfi hafa ekki
verið rannsökuð mikið hér á landi til þessa, og oft hefur lítið
samstarf verið milli lækna og þeirra sem taka ákvarðanir um
skipulag, mótun umhverfis eða notkun ýmissa hættulegra
efna. Með því að nota þá þekkingu sem tiltæk er í dag á þessu
sviði má samt bæði draga verulega úr hættu af mörgum slíkum
sjúkdómum og eins minnka álag á fólk af völdum óæskilegs
umhverfis.
Flestar vestrænar þjóðir sem við berum okkur saman við hafa
t.d. sett löggjöf um leyfileg umferðarhávaðamörk í byggð, en
enn höfum við ekki látið þetta mál til okkar taka sem skyldi.
AÐGERÐIR ANNARRA ÞJÓÐA
f ljósi þess hve áhrif framkvæmda geta verið fjölþætt og komið
víða fram, hafa margar þjóðir á undanfömum árum verið að
byggja upp aðferðafræði við mat á áhrifum framkvæmda, til
þess að tryggja samstarf ólíkra þekkingarsviða og til þess að
geta metið á heildstæðan hátt fyrirfram, hver áhrif
framkvæmdanna verði.
Með Umhverfismálalöggjöf Bandaríkjanna sem sett var 1969
var stigið mjög mikilvægt skref í þessa átt. Með þessari
löggjöf var opinberum aðilum í Bandaríkjunum lögð á herðar
sú skylda að útbúa lýsingu á umhverfisáhrifum allra
framkvæmda á vegum Bandaríkjastjómar, sem hefðu veru-
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
51