Arkitektúr og skipulag - 01.06.1989, Page 79
Kursted ved Den Blá Lagune • kort afgang 2. 1988* Lilja Grétarsdóttir afdC AAA
LILJA GRÉTARSDÓTTIR
arkitekt lauk námi frá Arkitektaskólanum í Arósum árið 1988.
Hún hefur unnið á ýmsum teiknistofum á sumrin.
„Lokaverkefni: „ frá Arkitektaskólanum valdi ég hótel og
heilsubaðstöð við Bláa lónið á Svartsengi. Það kaus ég vegna
þess að mér finnst þetta vera mjög heillandi og gefandi staður.
Byggingin er í aðalatriðum hugsuð til tvenns konar nota.
Annars vegar fyrir hótelgesti til skemmri eða lengri dvalar, og
hins vegar fyrir daggesti sem koma til baða, borðhalds eða
fundarsetu.
Við úrvinnslu þessa verkefnis hef ég tekið tillit til þessarar
tvískiptingar. Það hef ég gert með því að leggja vistarverur
dvalargesta afsíðis frá kjama byggingarinnar, en hann inni-
heldur þau rými sem einnig nýtast daggestum svo sem
fundarsali og veitingastað.
Ég valdi að staðsetja bygginguna sem næst lóninu, með það
fyrir augum að það megi áfram nota til baða, ásamt tilbúnum
laugum og pottum. Auk þess mynda lónið og hitaveitan sterkt
og sérstakt umhverfi, sem tæpast gæti annað en orðið nýjum
nágranna til framdráttar.
I heildarmynd byggingarinnar hef ég reynt að lifa mig inn í
andrúmsloft staðarins og aðlaga hana náttúrunni í kring.
Hótelherbergin og þjónusturými staðarins eru þakin grasi, svo
sem byggingin vaxi upp úr jörðinni og brjótist út í kjamanum.
Hann er mest áberandi hluti hússins, ekki hvað síst vegna
veitingasalarins sem yfir honum liggur. Frá honum yrði býsna
gott útsýni í allar áttir, yfir bæði hraun og haf." I
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
77