Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Side 13
/
Mynd: Landmælingar islands
Hinn 23. febrúar voru samþykkt lög frá
Alþingi, sem gera ráö fyrir, að stofnað verði
sérstakt umhverfisráðuneyti innan
Stjórnarráðsins. Lagafrumvarpið um
breytingu á stjórnarráðslögunum frá 1969
var samþykkt eftir langvinnar og hatrammar
deilur á Alþingi, sem stundum a.m.k. virtust
eiga lítið skylt við málefnið sjálft, þ.e.
umhverfisvernd og nauðsynlega
samræmingu aðgerða hennar vegna af
hálfu yfirvalda. Ekki var málinu þar með
lokið, því fylgifrumvarp með stjórnarráðs-
frumvarpinu, þar sem verkefni hins nýja
umhverfisráðuneytis eru skilgreind fékkst
ekki afgreitt samtímis og héldu hinar
illskeyttu deilur um málið á Alþingi áfram.
Fór svo, að verkefnafrumvarpið var ekki
afgreitt frá Alþingi fyrr en síðasta dag þings
í vor, þ.e. 5. maí s.l.
Þessar miklu deilur um verkefni hins
nýja ráðuneytis og tilgang þess vöktu mikla
athygli í þjóðfélaginu, og átti almenningur
oft erfitt með að átta sig á um hvað væri
eiginlega verið að ræða. í mínum huga er
það engin spurning, að löngu var orðið
tímabært að skipa umhverfismálunum
þann sess, sem þessum mikilvæga
málaflokki ber í stjórnkerfi landsins. Það
má sæta furðu, að enn séu aðilar hér á
landi, sem telja umhverfismál á íslandi það
léttvæg, að engin þörf sé fyrir sérstakar
stjórnvaldsaðgerðir á því sviði, og virðast
lifa í þeirri trú, að ísland sé hreint og
ómengað land án teljandi umhverfisvanda-
mála. Þegar betur er að gáð kemur hins
vegar í Ijós, að mjög víða er ábótavant í
umhverfismálum á Islandi og virðumst við á
mörgum sviðum svo sem í sorphirðumálum
og meðferð skolps frá íbúðarbyggð vera
langt á eftir nágrannalöndunum. Eitt er þó
mál, sem allir eru sammála um, að sé eitt
mesta umhverfisvandamál okkar, en það er
11