Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Page 19

Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Page 19
ISLENSKT LANDSLAG ER AUÐLIND AUÐUR SVEINSDÓTTIR landslagsarkitekt Náttúran sjálf leitar eftir jafnvægi þegar breytingar hafa átt sér stað, t.d. friðun. Orðið landslag er ekkert séríslenskt fyrirbæri því að í öllum germönskum málum er það til. Landslagið mótast af náttúruöflunum eða vegna áhrifa mannsins. Alls staðar þar sem maðurinn kemur nærri hefur hið upprunalega landslag, sem náttúran sjálf mótaði, breyst og orðið að svokölluðu menningarlandslagi þar sem lögun og útlit er mótað af þeirri nýtingu (auðlindanýtingu) sem þar hefur átt sér stað. Utanhúss erum við umlukt landslagi hvort sem það er lítill ræktaður garður eða óravíddir. Landslagið er í stöðugri breytingu vegna náttúruaflanna og áhrifa mannsins. Samspilið milli lífrænna hluta og umhverfis þeirra er í vistfræðilegu jafnvægi meðan allir þættir eru jafnir. Ef einn þáttanna breytist, t.d. veðurfarið, breytist jafnvægið og hin vistfræðilegu lögmál breyta þróun- inni á skemmri eða lengri tíma í nýtt jafnvægi. Þannig er hægt að líta á lands- lagið sem flókið kerfi sem erfitt er að skil- greina að fullu. Ef aðaláherslan er lögð á náttúrufarið, er hægt að skipta landslagi í nokkra megin- flokka sem byggja á jarðfræði, grasafræði (gróðurkerfum), veðurfari og landslags- formum. Ennfremur af því hvernig maðurinn hefurfarið með landið, þ.e.a.s. frumlandslag, sem er algjörlega laust við áhrif mannsins. Náttúran sjálf ræður þar ríkjum. Þannig landslag er varla að finna nema á öræfum og afskekktum stöðum. Það er viðkvæmt og hopar stöðugt vegna mannanna verka. - náttúrulegt landslag, hefur orðið fyrir það litlum áhrifum að náttúruöflin og vistkerfin eru ósnortin að mestu. Þannig svæði eru víða hérlendis, hálendið, hluti af ströndum landsins og afréttir. menningarlandslag, þar er um að ræða landbúnaðarsvæði (dreifbýli) og þéttbýli. Mörkin þar á milli eru oft óljós. Þróun mannsins fjallar um stöðug áhrif á landslagið til að nýta þær auðlindir sem til eru. Meðan áhrifa mannanna gætir lítið eða eru innan ramma (jafnvægis) náttúrunnar sjálfrar er landslagið í náttúrulegu ástandi eða aðlagast menn- ingunni eðlilega og er íjafnvægi. Tæknibylting síðustu áratugi hefur hins vegar haft í för með sér stórfelldar 17

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.