Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Síða 24

Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Síða 24
Verkinu er skipt í 3 áfanga: Frumrannsókn, skoöun á staðnum og greinargerð meö helstu niðurstöðum. stofn 3 nýjar skrifstofur, þ.e. friðunarskrifstofa, verndunarskrif- stofa og skrifstofa sem veitir ráðgjöf við endurbyggingu eldri húsa. í Danmörku er gerður mikill greinarmunur á friðun og verndun þar sem friðun er skilgreind sem málefni minjasafna en verndun tengist meira skipulagi þar sem reynt er að halda í sér- kenni og gæði þeirrar byggðar sem fyrir er. Verndunarskrifstofa dönsku skipulagsstjórnarinnar hefurá undanförnum árum verið að þróa aðferð við að kanna og kortleggja þætti í hinu byggða umhverfi sem hafa verndunargildi. Aðferðin, sem miðast við að heilt sveitarfélag sé tekið fyrir í einu, byggist m.a. á því að tengja mun betur saman en áður vinnu að húsafriðun og húsavernd við skipulagsvinnu á frumstigi. Verkinu er skipt í 3 áfanga: frumrannsókn, skoðun á staðnum og greinargerð með helstu niðurstöðum. í frumrannsókninni eru kannaðar landfræðilegar aðstæður, sögulegar heimildirog byggingarlistrænt gildi metið. í frumrannsókninni er reynt að afmarka verkefnið með því að benda á þau svæði sem hafa mest varðveislugildi. Þegar aðstæður eru skoðaðar á staðnum er lögð áhersla á að finna samstæðar heildir í umhverfinu en þar getur verið um að ræða allt frá nokkrum samstæðum byggingum að heilum götum, torgum eða bæjarhverfum. Varðveislugildið er metið með tilliti til byggingarlistrænna, menningarsögulegra og umhverfislegra þátta. í greinargerðinni eða kortabókinni eins og Danirnir kalla hana er að finna helstu niðurstöður sem þannig eru gerðar aðgengilegar öllum almenningi um leið og hún verður hluti af skipulagsforsendum fyrir viðkomandi sveitarfélag. Þótt sú vinna sem danska skipulagsstjórnin hefur lagt í þetta verkefni sé fyrst og fremst hugsuð til að styðja verndunaráætlanirsveitarfélaganna kemur hún jafnframtað góðum notum við tilraunir stofnunarinnar til að stuðla að auknum gæðum í þeim breytingum á byggð sem ávallt eiga sér stað í bæjunum. Óski sveitarfélag eftir því að fá gerða úttekt eða kortabók leitar hún til skrifstofu þeirrar sem Algreen Ussing veitir forstöðu. Þar er myndaður vinnuhópur sem starfsmaður skrifstofunnar veitir forstöðu en í hópnum sitja auk hans 2-3 sjálfstætt starfandi arkitektar og 6-10 nemar íarkitektúr. Lögð er mikil áhersla á skjót vinnubrögð og er talið hæfilegt að vinna fyrir hvert sveitarfélag taki 4-5 mánuði. Kostnaður greiðist af ríkinu og nú þegar hafa verið gefnar út kortabækur fyrir Hróarskeldu og Nakskov en 30 sveitarfélög eru á biðlista. Það er mat þeirra sem stóðu fyrir heimsókn Algreen- Ussing hingað til lands að þótt hér séu allt aðrar aðstæður en í Danmörku megi læra ýmislegt af þeirri reynslu sem Danirnir hafa og þeim aðferðum semþeir beita. Til þess að ná einhver- jum árangri hér á landi er nauðsynlegt að til komi náin samvinna þeirra ráðuneyta og ríkisstofnana sem hafa með verndunar - .skipulags- og byggingarmál að gera annars vegar og hins vegar sveitarfélaganna og samtaka þeirra. ■ 22
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Arkitektúr og skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.