Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Síða 33

Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Síða 33
Fyrirliitgadu r goljvöllur Móttöku- og flokkunarstöd legra efna. Félaginu er einnig falið að fylgjast með nýjungum ásamt öðrum þáttum, sem eðlilega falla undir slíka starfsemi. í stofnsamningnum er miðað við að félagið sé búið að Ijúka undirbúningi, þ.e.a.s. að útvega urðunarstað og reisa móttökustöð er hefji starfsemi 1. janúar 1990. Á vegum Sorpeyðingar höfuðborgar- svæðisins fór fram ýtarleg leit að nýjum urðunarstað, þar sem áhersla var iögð á eftirfarandi: að ekki sé hætta á grunn- vatnsmengun, að fjarlægð/nálægð við þéttbýli sé viðunandi með tilliti til flutninga og völ sé á nægjanlegu þekjuefni í nágrenni staðarins. Við könnun á hinum ýmsu stöðum, er til greina komu sem urðunarstaðir, varð niðurstaðan sú, að á Kjalarnesi væri að finna flesta þá staði.sem til greina kæmu sem urðunarstaðir, og að Álfsnes væri besti og hagkvæmasti kosturinn. Flestir sem fylgjast með kannast við á hvern hátt málefni félagsins hafa þróast. Þegar til þess kom að reisa móttöku- stöðina, vildi ekki nokkur maður hafa hana í augsýn og þyrlað var upp miklu moldviðri vegna málsins. Að lokum, eftir u.þ.b. eins árs þref, var endanlega ákveðið að stöðin yrði reist í Gufunesi, á lóð Áburðarverksmiðju ríkisins, ekki langtfrá núverandi sorphaugum. Þar standa nú sem hæst framkvæmdir við SORPU, eins og flokkunar - og böggunar- stöðin sem þarna rís er stundum kölluð. Áætlað er að framkvæmdum við byggingu og niðursetningu véla verði lokið í mars 1991 og móttaka hefjist næsta vor og hefur þá verið varið um 550 - 600 milljónum króna í stofnkostnað. Aðalverktaki við bygpingu móttöku-stöðvarinnar í Gufu- nesi er Armannsfell H/F. Hér er rétt að greina í örfáum orðum frá fyrirhugaðri starfsemi sem mun fara fram á vegum Sorpeyðingar höfuðborgar- svæðisins bs. Ákvörðun um byggingu flokkunar - og böggunarstöðvar í stað sorpbrennslustöðvar var tekin að vel athuguðu máli og samkvæmt ráðleggingum sérfræðinga. Fylgst hefur verið mjög náið með þróun þessara mála erlendis undanfarin ár og því er vitað að hér er um að ræða lausn á sorp- vandamálinu, sem er viðurkennd meðal annarra þjóða en þykir nokkuð dýr. Vinnsluferli stöðvarinnar er þannig að allt sorp af höfuðborgarsvæðinu, sem nú lendir á Sorphaugum í Gufunesi, verður tekið inn í stöðvarhúsið. Húsasorp verður losað beint í pressur og það pressað í bagga og þeir vírbundnir. Hver baggi mun vega að meðaltali 750 kg. Annað sorp verður grófflokkað og er gert ráð fyrir að fyrst í stað verði timbur, málmar og pappi ásamt spilliefnum (umhverfis- mengandi efnum) flokkað frá þeim úrgangi sem verður urðaður. Þegar hefur verið gengið frá samningi um nýtingu á hluta þess timburs, sem jil fellur. Það verður rifið niður í flís og mun fslenska járnblendi- félagið h/f áGrundartanga nýta það við framleiðslu kísiljárns. Einnig hefur verið gerður samningur við ísl. stálfélagið h/f um að það taki á móti þeim úrgangsmálmi, sem fellurtil. Húsnæði flokkunarstöðvarinnar er hannað á þann veg, að tiltölulega auðveit er að koma þar fyrir vinnslurásum til frekari flokkunar ef það kann að þykja hagkvæmt í framtíðinni og hefur m.a. verið rætt um pappír, plast, gúmmí og gler í því sam- bandi. Sérstakt hús verður reist til móttöku á spilliefnum (umhverfismengandi efnum) Þar verða þau flokkuð og frágengin og send til eyðingar hjá Kommunekemi a/s, sem er í Nyborg á Fjóni og er talið vera eitt tæknilega fullkomnasta fyrirtæki á þessu sviði í Evrópu. Reyndar er móttaka spilli- efna þegar hafin í bráðabirgðahúsnæði að Dalvegi 7 ÍKópavogi 31
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Arkitektúr og skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.