Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Page 37
1988 . '90 '92 '94 ’96 '98 2000
Myndin sýnir þær virkjanir sem byggja þarf til að fullnægja orkuþörf fyrir 210.000 tonna álver og heppilegustu virkjanaröö.
fyrir óyggjandi upplýsingar um mismunandi
kostnaö viö byggingu og rekstur nýs álvers
á hinum ýmsu stöðum sem helst eru
ræddir. Ýmsir staöir á landsbyggöinni eiga
undir högg aö sækja og því er enginn vafi á
því aö frá byggðasjónarmiði gæti verið
æskilegt aö staösetja nýtt álver t.d. á
Eyjafjaröarsvæöinu. Öll umræöa um slíkt
er þó erfið fyrr en kostnaðartölur liggja fyrir.
Viö endanlega ákvöröun mælumst viö
Islendingar heldur ekki einir viö. Úr því að
íslensk stjórnvöld opnuöu í samninga-
geröinni fyrir marga kosti í staðsetningu er
langlíklegast að hinir erlendu viösemjendur
sæki fast aö fá að byggja á hagkvæmasta
staðnum. Því ráða viöskiptaleg sjónarmið
fyrst og fremst. Ekki er líklegt að milli-
greiöslur úr ríkissjóði breyti þar neinu um.
Fyrirtæki sem þurfa aö keppa á
alþjóðlegum fríverslunarmörkuöum eru
viökvæm fyrir því að liggja ekki undir ámæli
um aö þiggja niðurgreiðslur. Á þessu atriði
geta samningar viö hina erlendu
viösemjendur hæglega sprungiö, ef íslensk
stjórnvöld setja fram ákveðna kröfu um
annan staö en þann hagkvæmasta.
En hvaö meö kröfur um mengunar-
varnir og sambúöina viö umhverfið?
Samrýmist stóriðjuuppbygging þeim
hugmyndum sem margir hafa um ísland
sem umhverfisparadís?
Álverum fylgir fyrst og fremst loftmeng-
un. Þar er einkum um aö ræöa flúoríðs-
ambönd, ryk og brennisteinstvísýr-ig (S02).
Öll nútíma álver eru búin mjög fullkomnum
þurrhreinsibúnaöi sem sigtar flúorefnin og
svifrykiö úr útblæstrinumfráverksmiðjunum.
Brennisteinstvísýrings- mengun frá álverum
stafar frá óhreinindum í rafskautum og er
mengunin háð brennisteinsinnihaldinu í
skautunum. Brennisteins- myndun af
völdum álbræðslu er hlutfalls- lega lítil
miöaö viö ýmsan annan iðnað, t.d.
brennslu kola til raforkuvinnslu og upp-
hitunar. Venjulegur þurrhreinsibúnaður nær
ekki aö hreinsa brennisteinstvísýring úr
útblástursloftinu á sama hátt og flúor og
ryk. Iðnríki heimsins gera yfirleitt ekki kröfu
til áliðnaðar um að S02 sé hreinsaö úr
útblæstri.
Hollustuvernd ríkisins mun gefa út
starfsleyfi fyrir álver og styöjast þar við
mengunarreglugerð og aörar viðmiðunar-
reglur. Þær athuganir sem gerðar hafa
verið sýna að ekki er hætta á að búfénaður
og önnur dýr skaðist og að ekki sé hætta á
varanlegum gróðurskemmdum nema í
næsta nágrenni verksmiðjunnar.
Við íslendingar munum auðvitað gera
strangar kröfur til mengunarvarna og
erlendum viðsemjendum verður að vera
Ijóst að hér séu á engan hátt gerðar slakari
kröfur en annars staðar. Að þeim kröfum
uppfylltum virðist Ijóst að þessi starfsemi
setur umhverfi okkar ekki í hættu og að
með skynsamlegri staðsetningu í okkar
víðáttumikla landi á stóriðja ekki að þurfa
að spilla því orði sem af Islandi fer um
óspillta og hreina náttúru. Þar eru aðrir
þættir mun hættulegri sem ekki verður
fjallað frekar um hér.
Miklu máli skiptir að vandað sé vel til
hönnunar og frágangs allra mannvirkja.
Mér hefur t.d. alltaf fundist Járnblendi-
verksmiðjan á Grundartanga til fyrirmyndar
að því leyti. Hún fellur mjög vel inn í
umhverfi sitt. Þess er að vænta að
arkitektar fái að spreyta sig á slíku verkefni,
ef samningar takast nú um nýtt álver hér á
landi. ■
35