Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Side 48
HUGMYNDIR UM
UMHVERFISMIÐSTÖÐVAR
Á ÍSLANDI
TRAUSTI VALSSON
arkitekt
Verðmæti hluta eða gæða eru í
nánu sambandi við magn það sem fyrir
hendi er. Þannig er t.d. gull
verðmætara en grjót. Annað sem farið
er mjög að hafa áhrif á verðgildi er
fyrirbærið hreinleiki. Er það ekki síst
vegna þess að hreinleiki er stöðugt að
verða óalgengari. A okkar ofsetnu jörð
er það smám saman að verða
reglan, frekar en undantekningin, að
gripin. Einnig er nokkuð ljóst að
aðdráttarafl landsins fyrir ferðamenn
mun aukast vegna aukinnar áherslu
fólks á hreinleikagildin. Jafnvel er
hugsanlegt að ísland geti fengið ímynd
kúrstaðanna sem fólk hefur flykkst til
úr hinum menguðu iðnborgum. Heita
vatnið og íslensku leirböðin munu geta
hjálpað okkur mjög mikið í þeirri
þróun.
íslandi, er mikið komið fram vegna
erlendra aðila.
HUGMYNDIR UM
UMHVERFISMIÐSTÖÐVAR
Síðastliðin 15 ár hafa komið fram
fimm hugmyndir um alþjóðlegar
miðstöðvar á Islandi, miðstöðvar sem
á einn eða annan hátt mundu geta
tengst umhverfismálaþróuninni í starfi
efni umhverfisins séu blönduð,
menguð, þannig að jafnvel hinir stóru
efnismassar: vatn, ræktunarjörð og
sjór, eru víða um heim að verða óhæfir
til matvælaframleiðslu. Þetta ástand
er okkur aðeins að verða ljóst á allra
síðustu árum, þó viss vakning hafi
orðið í heiminum þegar um 1970 er
fyrsta alþjóðaráðstefnan um þessi mál
var haldin í Stokkhólmi.
Eftir því sem horfumar í þessum
málum hafa verið að skýrast hefur
okkur íslendingum smám saman verið
að verða ljósara að okkar mannfáa,
fjarlæga og kalda en orkuríka land
getur í framtíðinni átt yfir ýmsu því að
búa sem talið verður til mikilla
verðmæta í menguðum og for-
djörfuðum heimi. Hugmyndin um
markaðssetningu íslenskrar matvöru, -
fisks og landbúnaðarvöru sem dýrrar,
hreinnar vöru, er því ekki úr lausu lofti
46
NÝJU VIÐHORFIN KREFJAST
VÍSINDALEGS STARFS
Það segir sig sjálft að það tekur
nokkuð langan tíma að átta sig á þeirri
nýju heimsmynd, sem er í mótun, og
að móta pólitíska stefnu og atvinnu-
stefnu, sem lagar sig að henni. Til að
átta sig á þessum flóknu hlutum þarf
mjög að styðjast við þekkingu
náttúruvísindamanna. Jafnframt þarf
að koma til starf skipulagsmanna og
markaðsfræðinga, því þessir hlutir eru
það „abstrakt” að venjulegt fólk er
ekki fært um að sjá hvar tækifærin
liggja. Tímar sem þessir þarfnast
stjómmálamanna sem eru víðir í
hugsun, og við því er tæpast að búast á
jafnlitlu landi og Island er. Þegar mál
eru athuguð kemur líka í ljós að
vísinda- og skipulagsmenn hafa talað
fyrir daufum eyrum og það
þróunarstarf, sem hefur orðið til hér á
sínu. Hér verður nú í stuttu máli
greint frá einkennum og gildum
þessara fimm hugmynda.
„MULTI PURPOSE RESORT" í KRÝSUVÍK
Þessi hugmynd kom fram árið
1975 í mjög merkri skýrslu, „Tourism
in Iceland”, sem var unnin sem
þróunaraðstoð Sameinuðu þjóðanna
við þróun ferðaiðnaðar sem framtíðar-
atvinnugreinar á Islandi. Skýrslan
bendir á það sem stjómmálamenn em
að byrja að skilja nú 15 ámm síðar, að
í hreinleikanum, heita vatninu og
leirböðunum felast geysilegir
möguleikar. Hönnun miðstöðvarinnar
í Krýsuvík bauð upp á hverskonar
heilsu- og líkamsrækt utan glerþaks
sem innan. Eins og sést á mynd 1 var
form miðstöðvarinnar glertjald sem á
táknrænan hátt átti að minna áeldfjall,-
meira að segja með gíg ofan í toppi.
1