Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Page 60
Oddi á Rangárvöllum.
Ljósmynd: Jón Ögmundur Þormóðsson.
nefndarinnar, enda yröi aö sönnu gagn aö
hógværari fyrirætlunum í óreiöuheimi
nútímans þar sem ríkir yfirgangur eöa
einangrunarstefna.
ÍSLENDINGAR OG UMHVERFIÐ
Við íslendingar höfum tekið drjúgan
þátt í umræðum um náttúruvernd og
umhverfismál. En hætta er á því löngum,
aö menn tali of mikið og geri of lítiö. Nær
aldarfjórðungur er síöan stofnuö voru
umhverfisráðuneyti í öörum löndum. Loks
er komið að því hér. Þrautalaust hefur þaö
ekki gengið og íhaldssemi hefur komiö í
veg fyrir, að ráðuneytið veröi öflugt strax í
upphafi. En mjór er mikils vísir.
En hvað sem yfirstjórn umhverf -
ismála líöur færi vel á því, að við landar
58
veldum okkur aðlaðandi stað í fallegri
sveit og settum þar smám saman á lagg-
irnar miðstöð fræðaiðkana og fræðslu um
umhverfið og víxláhrif manns og náttúru:
sögu lands og þjóðar, já, jafnvel sögu
mannkyns í síbreytilegu og
margbreytilegu landslagi jarðarinnar.
Sveitin skyldi öðrum sveitum fremur
geyma stórbrotnar minningar um manninn *
og höfuðskepnurnar, og þeirra kynni í ald-
anna rás, en staðurinn frægur sögustaður
sem íslendingar kysu að leggja meiri rækt
við en gert er. ■