Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Síða 69
Malarnám í námu viö Kollafjörö. Efnlð er nýtt tll steinsteypugeröar.
Þannig nýtist efnið líka best. 3) Forðast efnistöku hingað og
þangað, en kappkosta eftir fremsta megni að hafa eins stórar
og samfelldar námur og hægt er. 4) Ganga vel frá þegar náma
er endanlega yfirgefin.Almenna skipulagningu á jarðefnatöku
vantar ennþá. Náttúruverndarlög eru að vísu til en þau munu
öllum almenningi lítt kunn og ekki er mér kunnugt um eitt einasta
dæmi um það að ákvæðum þeirra hafi verið beitt gegn þeim,
sem þó augljóslega hafa gerst brotlegir. Svo virðist sem ýmis
ákvæði, sem að þessum málum lúta, heyri undir mismunandi
ráðuneyti, en slíkt gerir alla framkvæmd þunga í vöfum. Sá
erþetta ritar er raunar þeirrar skoðunaraðhér vanti tilfinnanlega
sérstakt umhverfismálaráðuneyti eða þá sérstaka d e i I d
einhvers ráðuneytis, sem hafi með öll þessi mál að gera. Mætti
hið síðarnefnda koma sem byrjun. Slík deild eða slíkt ráðuneyti
ætti að sjá tii þess að sveitarstjórnir, hver á sínu svæði, héldust
vakandi hvað námu- og umhverfismál varðar, en allmjög sýnist
vanta á vöku þeirra sumra.”
Um hálfu ári síðar, í júní 1983, voru eftirfarandi tillögur unnar
af jarðfræðingi Náttúruverndarráðs og undirrituðum en þær eru
nánast þýðing á sænsk-norskum stöðlum um þessa hluti:
Tillaga um vinnuaðferð við flokkun á efnistökustöðum eftir
náttúruverndargildi
A. Hverjum stað er gefin einkunn fyrir hvern gildisflokk, 0-2 stig
eftir verndargildi, þannig að hámarkseinkunn er 12. Eftirtaldir
flokkar eru lagðir til grundvallar:
a) Jarðsögulegt gildi b) Gróðurfars-og dýralífsgildi
c) Landslagsgildi d) Rannsókna-og fræðslugildi
e) Útivistargildi (f) Þjóðminjagildi.
B. Stig eru lögð saman og summan notuð til grundvallar röðun
í 3 flokka á eftirfarandi hátt:
I- Flokkur: Alfriðun æskileg ( 6 stig). Allt nýtt efnisnám er
óheimilt og þar sem efnistaka erfyrir hendi skal hún lögð niður og
snyrtilega frá henni gengið.
II. Flokkur: Verndun að hluta æskileg (4-6 stig). Efnilstaka er
takmörkuð við hluta svæðisins (námurnar) og undir ströngu
eftirliti. Kappkostað skal að vel og skipulega sé um efnisnámið
gengið.
III. Flokkur: Efnistaka heimil (0-3 stig). Hér er ekki um merkar
náttúruminjar að ræða, en gæta skal góðrar umgengni og
frágangs að loknu efnisnámi.
Þessar tillögur komu í kjölfar s.k. námukorts Rb, sem gefið
var út í samvinnu við Skipulagsstofu höfuðborgarsvæðisins og
var raunar fyrsta námukort sinnar tegundar hér á landi.
Hugmyndin var þá um eins konar framhald þess í máli og
myndum, þar sem ofangreindar tillögur voru hafðar sem viðmiðun.
Ef rétt er munað, átti þessi þáttur að vera unninn í samráði við
Vegagerð ríkisins og Borgarverkfræðing. Því miður datt botninn úr
þessari vinnu og á undirritaður ekki minnstan þátt í því. Þar sem
ofannefnt námukort er nú löngu uppurið er kannski möguleiki á
endurskoðun þess með útgáfu nr. 2 í huga og vinna kortið þarmeð
endanlega út frá norrænu tillögunum.
Að lokum má enn vísa á skrif Jóns Jónssonar og benda á að
nú hafa óskir hans og annarra orðið að veruleika:
Umhverfismálaráðuneyti er staðreynd.
Vonandi tekst vel til um störf þess og stefnu og varðandi
náttúruvernd eru hæg faglegu heimatökin því innanborðs á þeim bæ
er einn sögulega fjölfróðasti náttúruverndarlagasmiður þessa lands,
að öðrum ólöstuðum. Mætti þess vegna vísa þessu öllu niður á
Sölvhólsgötu - í gamla Sambandshúsið - og segja - :Boltinn er ykkar,
leikurinn er hafinn - nú er komið að framkvæmdum. ■
67