Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Síða 76
og bæjaryfirvalda. Því veröa haldnir borgarafundir í hverjum
bæjarhluta og fjallað um hugmyndir að hverfaskipulagi um leið og
leitað verður eftir ábendingum og athugasemdum íbúanna.
MIKLIR FRAMTÍÐARMÖGULEIKAR
Að meðaltali voru fullgerðar um 100 íbúðir í Kópavogi á ári 1980-
1988. Aðalskipulagið gerir ráð fyrir að allt að 150-200 íbúðir verði
fullgerðar á hverju ári til aldamóta.
Árin 1990-1995 verða byggingasvæðin einkum í Kópavogsdal.
Hluti dalsins hefurþegar veriðdeiliskipulagðursem íbúðarsvæði. Þar
verða raðhús og fjölbýlishús af mismunandi stærðum og gerðum.
Austast í hverfinu verður verslun. Leikskóli verður miðsvæðis en
grunnskóli í nánum tengslum við íþróttasvæði Breiðabliks við
Kópavogsvöll.
í suðurhlíðum Digraness mun rísa blönduð sérbýlishúsabyggð á
þessum árum.
í norðanverðri Nónhæð er einnig fyrirhuguð sérbýlishúsabyggð
og aðalskipulagið gerir ráð fyrir að hún rísi á skipulagstímabilinu.
Áætlað er að vesturhluti Fífuhvammslands byggist áskipulags-
tímabilinu en eystri hlutinn ekki fyrr en eftir 2008. Ekki er heldur gert
ráð fyrir að byggð í Vatnsendalandi þéttist til neinna muna á þessum
tíma.
ATVINNUHÚSN/EÐI TVÖFALDAST
Sjálfsagt er að taka frá mikið landrými fyrir atvinnuhúsnæði hér
á miðju þéttbýlissvæðinu. Aðalskipulagið gerir ráð fyrir öflugu
atvinnulífi í Kópavogi og leggur áherslu á að tryggja því vaxtarrými og
búa þannig um hnúta að bærinn verði enn eftirsóknarverðari fyrir vel
rekin fyrirtæki.
Gert er ráð fyrir að flatarmál atvinnuhúsnæðis tvöfaldist fram til
ársins 2008 og verði þá um 560 þúsund nr en í Kópavogi fullbyggðum
allt að 900 þúsund m2.
Athafnasvæðin eru dreifð um bæinn og þess vegna skapast
möguleikar á að búa nærri vinnustað. Það dregur úr umferð og
skapar fjölbreytni í byggðinni.
Miðbærinn verður miðstöð stjórnunar og menningarstarfsemi
bæjarins. Þar er gert ráð fyrir fjölbreyttri byggð þar sem saman
blandast opinberar stofnanir, almennur atvinnurekstur, félags- og
menningarhúsnæði og íbúðabyggð.
Þegar fram líða stundir er gert ráð fyrir að stjórnsýsla bæjarins,
sem nú ertil húsa austan Hafnarfjarðarvegar, flytjist í stjórnsýsluhús
vestan vegarins. Þar er líka ætlað svæði fyrir safnahús, tónlistar-
skóla, listasafn og strætisvagnamiðstöð.
UMBÆTUR Á GATNAKERFI
Umferðarkerfi Kópavogs fléttast saman við umferðaræðar
grannbyggðanna. f aðalskipulaginu er lögð áherslaáað umferðin eigi
greiða leið eftir stofn- og tengibrautum og þannig dragi úr akstri
gegnum íbúðahverfi. Kapp verður lagt á að leggja tengibrautir og
ganga frá þeim. Til dæmis er áformað að leggja afrein af
Hafnarfjarðarvegi fyrir umferð úr suðri inn á Nýbýlaveg til að draga úr
akstri gegnum miðbæinn.
Arnarnesvegur mun í framtíðinni tengjast Breiðholtsbraut í
norðanverðu Vatnsendahvarfi. Fífuhvammsvegur mun tengja
Hafnarfjarðarveg.
ÞÖRFUM ALDRAÐRA MÆTT
Árið 1989 voru aldraðir (67 ára og eldri) 6,4% af öllum íbúum
bæjarins. Við lok skipulagstímabilsins er gert ráð fyrir að þeirverði 9-
10%. Stefna bæjaryfirvalda í Kópavogi er að gera öldruðum kleift
að búa sem lengst í heimahúsum. íbúðir fyrir aldraða í Vogatungu og
Sunnuhlíð eru um 100 talsins. Vorið 1990 hefst bygging fjölbýlishúss
með 28 íbúðum fyrir aldraða í miðbænum og á jarðhæð þess húss
verður sérstök þjónustumiðstöð fyrir aldraða.
TVEIR LEIKSKÓLAR í HVERJU SKÓLAHVERFI
Alls voru um 1.600 börn í Kópavogi á aldrinum 1-6 ára um
áramótin 1989/1990. Þar af voru 650 börn eða 41,5% í leikskólum.
Nýr leikskóli er í byggingu við Álfaheiði til viðbótar við þá átta leikskóla
sem fyrir eru í bænum. Gert er ráð fyrir að næsti leikskóli rísi í
Kópavogsdal.
HEILSUGÆSLA í HVERFUNUM
Heilbrigðisþjónusta flyst í auknum mæli í heilsugæslustöðvar.
Ein er komin í miðbænum en ákveðið er að byggja hina næstu við
Engihjalla og ráðgert er að hin þriðja rísi í Fífuhvammslandi.
GLÆSILEG ÚTIVISTAR- OG ÍÞRÓTTASVÆÐI
í aðalskipulaginu er lögð áhersla á góð tengsl íbúðahverfa við
útivistarsvæði og gönguleiðir. Fossvogsdalur og Kópavogsdalur
verða meginsvæðin fyrst í stað en síðar bætist við stórt útivistarsvæði
í Fífuhvammslandi. Elliðavatn og umhverfi þess er einnig mikilvægt
útivistarsvæði.
Á þessum svæðum öllum er gert ráð fyrir íþróttamannvirkjum
bæði fyrir keppnis- og almenningsíþróttir. íþróttafélögunum hefur
verið úthlutað svæðum og þau hafa skuldbundið sig til að veita öllum
góða þjónustu. Fjölbreyttir kostir gefast til útivistar í lögsögu
Kópavogs. Benda má á hesthúsabyggð með skeiðvelli (Gusts-
svæðið), best búna skíðasvæði landsins í Bláfjöilum, sportbátahöfn
í Kársnesi, silungsveiði í Eiliðavatni og fleira.
UMHVERFISMÁL í FYRIRRÚMI
Mikil áhersla hefur verið lögð á það á síðustu árum að fegra og
bæta allt umhverfi í bænum. Stofnun umhverfisráðs og
garðyrkjudeildar voru mikilvæg spor í þá átt. Fjárframlög til
umhverfismála hafa verið stóraukin og ásýnd bæjarins hefur tekið
stakkaskiptum.
Eitt allra stærsta umhverfismálið er holræsaáætlun sem miðar
að því að hreinsa fjörur bæjarins. Frárennsli er safnað saman í
stofnæðar sem ná eiga frá ströndinni út fyrir stórstraumsfjöru.
Hreinsistöðvar eru og fyrirhugaðar. Fyrsta hluta þessa stórvirkis er að
mestu lokið með lögn Kópavogsræsis allt frá Reykjanesbraut að
austan út með ströndinni og norðurfyrir Kársneshöfn. Gert er ráð fyrir
víðtækri samvinnu við nágrannasveitarfélög í baráttunni gegn
mengun.
ALMENNINGSSAMGÖNGUR FYRIR ALLA
Það er markmið bæjaryfirvalda að veita sem besta þjónustu
með almenningssamgöngum. Með það fyrir augum hefur
Kópavogskaupstaður tekið þátt í stofnun byggðasamlags um
almenningssamgöngur þar sem að því er stefnt að samræma og
stórefla þennan þjónustuþátt á öllu höfuðborgarsvæðinu. í Kópavogi
er gert ráð fyrir að miðstöðvar almenningsvagnanna verði annars
vegar í vesturhluta miðbæjarins, hins vegar í nýju miðhverfi austan
Reykjanesbrautar.
HÆFILEGA STÓRIR GRUNNSKÓLAR
Á skipulagstímabilinu er gert ráð fyrir að tveir nýir grunnskólar
verði byggðir ÍKópavogi. Annar þeirra verður í Kópavogsdal, hinn í
vestanverðu Fífuhvammslandi. Stefnt er að tveim bekkjardeildum í
árgangi og verða þá um 550 nemendur í hvorum skóla. Skólaárið
1989-1990 voru í Kópavogi fimm skólahverfi og alls um 2.600
nemendur. ■
74