Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Page 89
FRAMTIÐIN
Handíö á hátœknitímum
ÖRN D. JÓNSSON
formaður Form ísland
ER EKKI SÖM
- verk Sigrúnar Kristjánsdóttur
VIÐ SIG
Spónlagt borð úr hirsuberjaviði og rótarspæni með tré- og járnfótum. Kertastjaki gerður úr „fittings", gömlu
og nýju.
„The future ain’t what it used to be”, er haft eftir frægum
amerískum íþróttamanni og það eru orð að sönnu. Allt frá miðri
síðustu qld sáu menn iðnvæðinguna og þegar fram leið
fjöldaframleiðsluna sem bjargvætt mannkyns. Fyrir áratug eða svo
voru til verksmiðjur sem gátu annað eldspýtnaþörf allra Evrópubúa
og það fréttist frá Japan að búið væri að reisa sjálfvirka ryksugu-
verksmiðju sem var það mannlaus að lýsing var óþörf, en eins og allir
vitasjá róbótarvel ímyrkri.
Yfirburðir fjöldaframleiðslunnar, sem felast í tæknivæðingu,
verkaskiptingu og hagkvæmni stærðarinnar, eru ótvíræðir. En
tæknin er ekki ein um að ráða ferðinni, þarfir og viðhorf breytast líka.
Ibúar hagvaxtarríkjanna eru nú ofurseldir yfirþyrmandi vöru- og
upplýsingaflæði. Viðslíkaraðstæðurskiptagæðiæmeiramáli. Það
verður tilgangslaust að sanka að sér óendanlegu magni auðkeyptra
hluta. Hlutir geta líka haft sál.
Andófið hefur tekið á sig margar myndir, nægir að nefna endur-
mat 68-kynslóðarinnar, tilkomu græningjanna og andfagurfræði
pönksins. Breytt viðhorf hafa líka endurspeglast í hönnun með
margvíslegum hætti. Frægastur er Memphis-hópurinn á Ítalíu sem
setti sér það markmið að endurfæða handverkið og gefa því nýtt form
og inntak. Að þeirra mati eiga hönnuðir ekki að þjóna iðnaðinum,
heldur vera gagnrýnir jafningjar sem allt eins hafa frumkvæði að
nýjungum eins og að vinna eftir pö.itunum. Þessi afstaða opnaði
nýjar leiðir.
Memphis-hönnuðirnir voru langt í frá þeir einu sem mótuðu nýja
afstöðu. Hér er tíðarandinn á ferðinni. Framfaratrú og tæknihyggja
eru á undanhaldi. Menn gera sér Ijóst að tæknilega er hægt að gera
nánast hvað sem er. Framleiðslutæki er orðin fjölhæfari og
efnisúrvalið með ólíkindum. Spurningin er ekki lengur hvað er hægt
heldur hvað er æskilegt og áhugavert. Þar með er losað um bönd
fúnksjónalismans sem voru orðin að hálfgerðri spennitreyju á lifandi
sköpun. Til að standa undir þróunarkostnaði og tækjafjárfestingum
fjöldaframleiðslunnar þarf að selja ákveðið magn. Til að hægt sé að
ná nauðsynlegum magnstærðum verða t.d. húsgögn að höfða til sem
87