Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Síða 91

Arkitektúr og skipulag - 01.09.1990, Síða 91
Gerrit Rietveld Academie er aftur á móti listaskóli þar sem, í anda stofnandans, er lögð megináhersla á hugmyndir og útfærslu þeirra. Þangað fór Sigrún frá Englandi. Hugmyndin eða konseptið ræður ferðinni, jafnvel þó það geti orðið á kostnað notagildis og framleiðanleika. Sérhver hlutur á sér sögu eða ákveðið samhengi og galdurinn er að hlutgera söguna eða samhengið í verkinu sjálfu á meðvitaðan hátt. Þetta getur verið mjög erfitt bæði vegna þess að klisjurnar eru alltaf hættulega nálægt og vegna þess að vandasamt er að formbinda hugmynd í hlut þannig að „boðskapurinn” komist til skila. Það eru til margar aðferðir til að segja „sögur”, vinna með vísanir eða reynslu „neytandans”. Borð Sigrúnar hafa t.d. öll sama form, en mismunandi borðfætur og spónlagning tengja þau ólíkum heimum sem með vissum hætti gerir þau að sjálfstæðum einstaklingum. Eitt þeirra hefur fínlega rennda fætur, niðurmjókkandi sívalninga sem endurvekja minningar um alræði tekksins og skandínavísku húsgagnanna á meðan annað hefur hörpulaga stálfætur sem vísa til Art Nouveau eða jafnvel barokksins. Nútíminn læðist síðan inn um bakdyrnar í formi rótarspóns sem nú er það fínasta af öllu fínu. Skilveggirnir eru á vissan hátt óður til efnismeðferðarinnar þar sem notuð eru margvísleg efni til að ná fjölbreyttri áferð. Yfirmálun og útskurður leggja til náttúruvísanir og undirstrika handverksein- kennin. Húsgögnin eru handgerð en þar með er ekki sagt að þau þurfi að vera það. Ástæðulaust er að afneita tækninni og þeim möguleikum sem hún býður upp á. Eins og Sigrún hefur bent á þá er hugsanlegt að sameina handíð og fjöldaframleiðslu með margvíslegum hætti. Bæði væri hægt að hugsa sér að vissir hlutar húsgagnanna væru fjöldaframleiddir á meðan frágangur væri að hluta til handíð. Það væri áhugavert ef eitthvert vel tækjum búið verkstæði hæfi samvinnu við hönnuði þar sem húsgögn væru framleidd í litlum seríum út frá ákveðnum hugmyndum en þó þannig að þau þyldu verðsamanburð við fjöldaframleidd húsgögn. Tækin eru til en spurningin er hvort svigrúmið sé nægilegt. Þetta svigrúm er að skapast erlendis hröðum skrefum og í rauninni væri ekki mikil áhætta að láta reyna á hvort það sé ekki að myndast hér á landi líka. Við þurfum að vinna að því á öllum vígstöðvum að sameina lifandi sköpun og nútíma framleiðslutækni og þar með að endurvekja lifandi húsgagnagerð. ■ 89
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Arkitektúr og skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.