AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Page 27
unar í ferðaþjónustu og er þar ekki einungis átt við
hefðbundna verslun með minjagripi heldur ekki síður
ýmsa sérvöru, s.s. fatnað, matvæli og listmuni. Sam-
kvæmt athugunum Eurostat er talið að ferðamanna-
verslun nemi 24% af heildartekjum ferðamanna-
þjónustu í Evrópu. Athuganir hér á landi benda til
þess að þetta hlutfall sé um 12%. Með réttum að-
gerðum, s.s. aukinni kynningu á verslunarmöguleik-
um, öflugu endurgreiðslukerfi virðisaukaskatts og að-
laðandi og samhangandi verslunarsvæðum er tví-
mælalaust hægt að auka þetta hlutfall.
Upphaf landnáms er talið hafa átt sér stað í Kvosinni
og skipar hún því mikilvægan sess í sögu þjóðarinnar.
Ferðamenn sem koma til landsins eru ekki síður að
leita eftir þeirri sögu en grænni náttúru enda gengur
hugmyndafræði grænnar ferðamennsku m.a. út á
samspil þessara þátta.Það markmið að styrkja sögu-
lega ímynd Kvosarinnar er því afar mikilvægt fyrir
ferðaþjónustu í borginni þar sem gömlu húsin gegna
lykilhlutverki. Þó verður að hafa í huga að bygging-
arnar einar og sér nægja ekki til að upplýsa menn
um söguna; nauðsynlegt er að merkja þær (upplýsa
um gildi þeirra) öllum til ánægju og yndisauka. Góður
aðgangur að byggingunum er einnig nauðsynlegur
og má í því sambandi benda á aðgengisleysi fyrir
rútur í miðborginni.
Hreina loftið, heita vatnið og grænu svæðin í Reykja-
vík hafa vegið þungt í kynningarefni borgarinnar.
Þeirri stefnu verður haldið áfram þannig að Ijóst er
að bætt umhverfi í miðborginni skiptir verulegu máli
með tilliti til ferðaþjónustu. Þá er verið að tala um
þætti eins og takmörkun bílaurmferðar, gróðursetn-
ingu trjáa, nýjar göngugötur o.fl. Með öðrum orð-
um: gangandi vegfarendum er gert hærra undir höfði
en verið hefur og kemur það sér vitaskuld einna best
fyrir ferðamenn sem flestir hverjir eru fótgangandi.
Hér að framan hefur aðeins verið stiklað á stóru varð-
andi ferðaþjónustu í Reykjavík. Eins og áður var drep-
ið á teygir hún anga sína víða þannig að erfitt er að
gera henni tæmandi skil í grein sem þessari. Það er
einnig Ijóst að ekki er hægt að ræða um ferðaþjón-
ustu í Reykjavík sem einangrað fyrirbæri þar sem
hún byggist á samspili við nágrannasveitarfélög ekki
síður en landið í heild. ■
25