AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1997, Blaðsíða 75
þann sem ritar. Sú tilfinning að vera út af fyrir sig við vinnu,
lestur eða lœrdóm eykur yfirleitt afköst og vellíðan
manna, hvort heldur í heimahúsi eða á vinnustað.
Skermveggir geta þjónað margvíslegum tilgangi. Auk
þess að skapa rými sem uppfyllir þarfir fólks geta þeir haft
fagurfrceðilegt gildi í umhverfi sínu. Þannig varð snemma
til sú hefð meðal listmálara að mála á skermveggi í stað
striga. Sá siður á rcetur að rekja til Japan en fyrstu skerm-
veggirnir eru sömuleiðis taldir eiga upphaf sitt þar í landi.
Tíðir jarðskjálftar gerðu það að verkum að Japanir voru til-
neyddir að þyggja úr léttu og hreyfanlegu efni sem auð-
velt var að endurreisa. Vegna skorts á gegnheilum veggj-
um lék sífellt vindur um húsin. Þvf þróuðu Japanir með sér
hreyfanlega inniveggi sem skerma mátti dragsúg af með
eftir vindátt. í franska orðinu „Paravent" sem notað er yfir
skermveggi í ýmsum Evrópumálum lifir enn minningin um
uppfinningu Japana en „Parer a vent" merkir eitthvað á
þá leið „að halda vindinum frá".
í Evrópu þróaðist skermveggurinn hinsvegar út frá ofn-
klœðningum. Þeim var komið fyrir framan við opnar
kamínur til að endurkasta hitanum og dreifa jafnar um
herþergin. Ofnskermarnir voru fremur frumstœðir, erfltt var
að hreyfa þá og fœstir þeirra voru stillanlegir. Með vax-
andi austurlenskum áhrifum á Evrópuþúa á 17. öid tóku
skermveggirnir á sig fínlegri og listfengari mynd að aust-
urasískri fyrirmynd. Vinsœldir skermveggja náðu hámarki
á Rokókó-tímanum og var útlit þeirra þá venjulega í stO við
stóla.
Nú á dögum spreyta margir hönnuðir sig á því verðuga
verkefni að hanna skermveggi. Hvortsem um margþreyti-
leg, fjöldaframleidd skilveggjakerfi, staðöundnar, sérsmíð-
aðar lausnir eða umfangsminni skilrúm sem stiila má upp
hvar sem er og hvencer sem er, er tilgangur þeirra alltaf sá
að með þeim megi skapa vinsamlegt og hentugt um-
hverfi fyrir fólk. ■
Mynd 9. Staflaveggir skilja aö rýmin á skrifstofum Kaupþings hf.
Veggirnir eru hluti af skrifstofulínunni Seríu sem Sturla Már Jónsson
hannaöi fyrir Á. Guðmundsson hf. Innanhússarkitekt Kaupþings er Finnur P.
Fróðason.
Mynd 10. Formfagrir álrimlar sem bera nafniö Poseidon.
Fiönnun Glendon Good. Framl.: Néotu, Bandaríkjunum.
Mynd 11. Ár hvert stendur hönnunarmiöstöö þýsku borgarinnar
Stuttgart fyrir sýningu á verkum ungra þýskra hönnuöa á sýning-
unni (Design_Börse Stuttgart) fá hönnuðirnir tækifæri til aö koma
hugmyndum sínum á framfæri viö áhugasama framleiöendur, auk
aö keppa um peningaverölaun. Áriö 1994 hreppti húsgagna-og
innanhússarkitektinn Thomas Bredel fyrstu verðlaun sýningar-
innar fyrir lokaverkefni sitt sem fólst í hönnun skilveggjakerfis
fyrir verslanir og sýningarbása. Mesta athygli vakti tækni sem
hann þróaöi og gerir mögulegt aö spenna flatar viöareiningarnar í
boga með örfáum skrúfutökum. Helstu kostirnir þóttu vera auknir
möguleikar í upprööun og aö auövelt er aö flyta flötu einingarnar
á mili staöa.
9.
73