AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1997, Page 25

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1997, Page 25
og sölu efnis og hvers konar þjónustu. Opinber stefna á sviöi útboöa er mjög mikilvæg. Á undan- förnum árum og áratugum hefur ríkisreksturinn sí- fellt orðið umfangsmeiri. Vaxandi umsvif ríkisins hafa knúiö stjórnmálamenn til að endurskoða hlut- verk ríkisins og finna leiðir til að draga úr kostnaði og bæta reksturinn. Útboðsstefna ríkisins er þátt- ur í því umbótastarfi sem stjórnvöld verða að vinna að. Krafa skattgreiðenda er, að vörur og þjónusta til nota hjá ríkinu séu keypt með hagkvæmum hætti og að jafnræðis sé gætt milli þeirra sem bjóða ríkinu viðskipti. Útboð eru talin tryggja best að svo sé. Með öðrum orðum: Útboð er ávinning- ur. OPINBERAR FRAMKVÆMDIR Innan allra ráðuneyta er staðið fyrir framkvæmdum eða mannvirkjagerð með einum eða öðrum hætti. Lögin um opinberar framkvæmdir hafa staðist tím- ans tönn býsna vel. Þau voru sett í tíð Viðreisnar- stjórnarinnar undir forystu Magnúsar Jónssonar þáverandi fjármálaráðherra. Samkvæmt þeim er gert ráð fyrir skýru skipulagi um undirbúning, fram- kvæmd, eftirlit og uppgjör verka. Telja verður engu að síður eðlilegt að lögin verði tekin til endurskoðunar og var samþykkt um það þingsályktunartillaga sem ég flutti í lok síðasta kjörtímabils. Þær breytingar sem gera þarf á lög- gjöfinni tengjast einkum breyttri verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga og auknum kröfum um undirbúning og gerð bygginga. Einnig aðild okkar að Evrópska efnahagssvæðinu og þeirri staðreynd að viðhald mannvirkja í eigu hins opinbera er að verða umfangsmeira verkefni en nýbyggingar. Op- inberar framkvæmdir þarf að skipuleggja til langs tíma. Langtímaáætlanir á sviði mannvirkjagerðar eiga að hljóta umfjöllun Alþingis og vera endur- skoðaðar árlega við afgreiðslu fjárlaga. Sem þingmaður Sjálfstæðisflokksins hef ég lagt ríka áherslu á það að undanförnu að samgöngu- mannvirki njóti forgangs í fjárfestingu hins opin- bera. Eðlilegt er að hið opinbera skapi aðstæður til atvinnu- og þjóðfélagsþróunar með því að byggja vegi, hafnir og flugvelli. Það er hins vegar óheppi- legt að ríkisrekin fyrirtæki annist hönnun, bygg- ingu, þjónustu, sölu og viðhald mannvirkja og tækja. Ég tel að standa eigi vörð um hlutverk einkaframtaksins við hönnun, nýframkvæmdir, þjónustu og viðhald mannvirkja eftir því sem við verður komið. Ástæða er til að hvetja til þess að nýjar leiðir verði farnar við fjármögnun framkvæmda, til dæmis með því að einkaaðilar taki að sér stærri framkvæmdir, fjármögnun og rekstur þeirra og leigi afnot mann- virkjanna til opinberra aðila eða afli tekna með gjaldtöku. Þetta á jafnt að geta gilt um jarðgöng sem sjúkrastofnanir, svo sem heilsugæslu. VIÐHALD Það er mat margra að viðhaldi mannvirkja hins op- inbera sé ábótavant. Leggja verður aukna áherslu á viðhald og endurgerð mannvirkja. Þar þarf nýja hugsun. Með nýjum reglum um framlög af fjárlög- um til stofnana verði tryggt að metin sé þörf fyrir viðhald svo raunkostnaður við rekstur liggi jafnan fyrir að meðtöldum kostnaði vegna viðhalds. Mynda verður sjóði til viðhalds mannvirkja sem fái reiknaðar leigutekjur, mannvirkja sem rekin eru með framlögum úr ríkissjóði eða með þjónustu- gjöldum. Það er mjög óeðlilegt að halda áfram að byggja ný mannvirki á meðan ekki er talið fært að fjármagna viðhald. Að mínu mati ætti að veita við- haldi forgang um sinn og gera langtímaáætlun um viðhald mannvirkja og fjármögnun þess. Viðhaldi íbúðarhúsnæðis er víða ábótavant. Með því að veita skattaafslátt vegna viðhalds er líklega unnt að auka viðhaldsverk á vegum einstaklinga. Ágreiningur er um hvort eðlilegt sé að veita skatta- afslátt og er það talið stílbrot á hinu undanþágu- lausa staðgreiðslukerfi skatta. Ég tel mikilvægt að Sjálfstæðisflokkurinn beiti sér fyrir víðtækri úttekt og áætlun um viðhald opinberra bygginga og móti reglur um fjármögnun þess. MANNVIRKJAGERÐ OG SVEIFLUR í EFNA- HAGSLÍFINU íslenskur byggingariðnaður býr við miklar sveiflur sem einkum tengjast stöðu í sjávarútvegi og áhrif- „Pað er hins vegar óheppilegt að ríkisrekin fyrirtœki annist hönnun, byggingu, þjónustu, sölu og viðhald mannvirkja og tœkja. Eg tel að standa eigi vörð um hlutverk einkafram- taksins við hönnun, nýframkvœmdir, þjón- ustu og viðhald mannvirkja eftir því sem við verður komið. um þess á þjóðarbúskapinn. Kenningar eru jafnan uppi um nauðsyn þess að ríkisvaldið standi fyrir sveiflujöfnun með fjárveitingum til opinberra fram- kvæmda. 23

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.