AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Page 15
Hugsanlegir staðir fyrir flugvöll. 90db hljóðspor er sýnt á myndunum, en á þeim tíma sem myndin var gerð
þá voru Caravelle flugvélar viðmiðun um hávaða. Flugvélar nútímans eru mun hljóðlátari. Árið 1974 kom
svo fram á Alþingi þingsályktunartillaga um að kanna möguleika á gerð flugvallar á Lönguskerjum í
Skerjafirði. Sú tillaga varð aldrei meira en tillaga.
SAMVINNUNEFNDIN
Reyndar fékkst ekki lagalegur grundvöllur fyrir
formlegu samstarfi sveitarfélaga um skipulagsmál
fyrr en með samþykkt nýrra skipulagslaga árið
1964. Gömlu lögin frá 1921 voru orðin úrelt þrátt
fyrir lagfæringar árin 1926, 1932 og 1938. Allan
fimmta og sjötta áratuginn voru af og til gerð til-
hlaup að setningu nýrra heildarlaga um skipu-
lagsmál en ekki bar það árangur fyrr en 1964.
Meðal nýmæla þeirra laga má nefna ákvæði um
svæðisskipulag.
í beinu framhaldi af setningu laganna 1964 var
stofnuð með reglugerð félagsmálaráðuneytisins
þann 18. júní 1965 „samvinnunefnd um skipu-
lagsmál Reykjavíkur og nágrennis". Upphaflega
voru nefndinni ætluð þrjú ár til að Ijúka verkefni
sínu en í reynd liðu rúm sjö ár þar til gengið var frá
skipulagstillögunni. Skipulagstillagan var auk upp-
dráttar greinargerð undir heitinu,,höfuðborgar-
svæðið aðalskipulag 1969-83“.
Ýmsar ástæður lágu að baki þessum drætti á að
nefndin kæmi fram með tillögu að svæðisskipulagi
en þó vega tvær ástæður mest. í fyrsta lagi var
ekkert starfslið ætlað til að vinna að tillögunum
annað en þeirfáu starfsmenn, sem skipulagsstjóri
ríkisins gat séð af á stundum frá öðrum verk-
efnum, svo og einstakir sérfræðingar, sem nefndin
réð til afmarkaðra verka. Það að ætla nær engu
starfsliði að vinna slíkt verk, sem nefndinni var
ætlað, ber merki um verulega vanþekkingu á
vinnu af þessu tagi. Um þessar mundir var gagna-
grunnur til að vinna að skipulagsmálum mjög
frumstæður og tækin til aö vinna að slíku einnig.
Það var því býsna grunnhyggið að ætlast til að út
kæmi svæðisskipulag, sem stæði undir nafni.
Annað atriði sem tafði mjög störf samvinnunefnd-
arinnar var flugvallardeilan. Samgönguráðuneytið
hafði skipað nefnd um framtíðarskipan flugsam-
gangna á svæðinu og skilaði sú nefnd niðurstöð-
um sínum í maí 1967. Kom niðurstaða nefndarinn-
ar eins og sprengja inn í samvinnuna um svæðis-
skipulag á höfuðborgarsvæðinu og tafði vinnuna
verulega. Má m.a. sjá þess merki í greinargerð
með svæðisskipulagstillögunni, en kaflinn um
flugvallarmál er þar síðastur. Samgöngukerfi í
svæðisskipulagi er oftast erfiðast við að eiga. Þar
13