AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Síða 49

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Síða 49
legrar byggðarþróunar. Nokkur sveitarfélaganna eru rík af landi, önnur eru því sem næst landlaus. Þetta hefur stundum kallað á dýrar úrlausnir fyrir einstök sveitarfélög, þegar ný lönd skulu brotin til byggðar. í sumum tilvikum hafa forsvarsmenn sveitarfélaga áttað sig á þessu og náð samkomu- lagi um breytt mörk sveitarfélaga, sem hafa gjarn- an stuðlað að eðlilegri þróun byggðar. í þeim efnum má taka dæmi af suðursvæðinu: Samkomulag um makaskipti milli Garðabæjar og Hafnarfjarðar, þar sem hluti Setbergslands færðist í Hafnarfjörð og byggðist þar upp íbúabyggð, en hluti Hafnarfjarðarhrauns ofan Kaplakrika varð hluti Garðabæjar, þar sem nú er iðnaðarsvæði. Þessir góðu nágrannar, Hafnarfjörður og Garðabær, hafa hins vegar ekki náð saman um aðrar brýnar breytingar á mörkum sveitarfélagan- na. Nefni ég þar til dæmis, að eðlilegt, hagkvæmt og skynsamlegt hefði verið að Hafnarfjörður hefði f f Ástæðan er er sú, að ég hefði áhyggjjur af þvi að slakna myndi á öryggisþjjónustu við jjaðarbyggðir á höfuðborgar- svæðinu við slíkan samruna. ^ átt möguleika á að þróa byggð og þjónustu í norður - frá Hrafnistu út að Garðakirkju - norður Álftanesið. Það svæði er hins vegar innan lögsag- narumdæmis Garðabæjar, eða þar til Bessastaðahreppur tekur við. Þetta byggingar- svæði norður af Hrafnistu, hefur nú Garðabær skipulagt og áformar uppbyggingu. Hver maður sér hins vegar að það fólk, sem þar mun búa, sækir fremur þjónustu niður í Hafnarfjörð, fremur en langa leið inn á miðsvæði Garðabæjar. Bæjar- mörk Reykjavíkur og Kópavogs hafa stundum valdið deilum milli sveitarfélaganna og kallað fram undarlega þróun byggðar og kostnaðarsama. Það þarf ekki annað en horfa yfir kort af mörkum þessara átta sveitarfélaga á svæðinu til að sjá að mörkin eru toguð og teygð, hingað og þangað og lúta engum eðlilegum og sjálfsögðum lögmálum. Kjalarnes er nú hluti Reykjavíkur, en milli þeirra „borgarhverfa" kemst enginn nema siglandi eða fljúgandi, án þess að fara um lögsagnarumdæmi Mosfellsbæjar! EIGNARRÉTTUR LANDS Hitt er svo líka staðreynd að veik og um margt óljós löggjöf varðandi eignarhald og nýtingu lands, þegar kemur að almannahagsmunum vegna nauðsynlegrar þróunar byggðar, hefur oft torveld- að að ódýrustu og bestu lausnirnar séu nýttar við þróun þjónustu og byggðar. Það að sveitarfélög, skattgreiðendur, þurfi að greiða eigendum (eða jafnvel leigjendum) lands stórar fjárhæðir við upp- kaup, vegna þess eins að byggðarþróun hafi fram- kallað eftirspurn eftir viðkomandi landssvæðum er fjarri lagi að mínu áliti. Sjálfsagt er og eðlilegt að greiða landeigendum sanngjarnt verð, sem taki mið af uppfærðu kaupverði áður og fyrr og kostn- aði landeigenda, ef einhver hefur verið, við rækt- un og uppbyggingu. En að þessir landeigendur njóti þeirrar verðmætaaukningar, sem til hefur orðið vegna atbeina sveitarfélaganna sjálfra, er út úr korti. Óljós löggjöf sem dómstólar hafa orðið að byggja á hefur leitt til þess að sveitarfélög og síðan gjarnan lóðarhafar sjálfir eða almennir skattgreiðendur hafa þurft að greiða háar upp- hæðir, þegar nýtt land er brotið til byggðar og í uppkaup þarf að fara af þeim sökum. Það er ekki óeðlilegt að hvert sveitarfélag hafi verið sjálfu sér næst, þegar skipulag sveitarfélag- anna hefur verið mótað og fest í sessi í gegnum tíðina. „Hvað þurfum við, hvað viljum við?“ spyrja forsvarsmenn sveitarfélaganna fyrst og leita svara. Viðhorfin hafa verið eilítið sjálfhverf og það af eðlilegum ástæðum. Það hefur í raun ekki verið hvati til staðar til að menn hafi heildarsýn og framtíðarhagsmuni alls svæðisins að leiðarljósi. Það hefur verið samkeppni um fólk, um þjónustu- stofnanir, atvinnutækifæri, um fjármuni. Þetta hef- ur stundum leitt til þess að samsvarandi og svipuð þjónusta hefur risið sitt hvorum megin bæjar- marka, þegar samstarf hefði verið eðlilegra. En vissulega hefur þróunin um sumt verið í rétta átt og unnt að benda á ýmis dæmi, þar sem sveitarfélögin hafa tekið höndum saman um til- tekin verkefni, sem sannarlega hefur leitt til betri og ódýrari þjónustu fyrir almenning en verið hefði, ef hvert sveitarfélag fyrir sig hefði verið að grauta í viðfangsefninu. Almenningsvagnakerfið (sem eru raunar tvö ennþá og þarf að steypa saman) og samstarf í sorpeyðingu eru dæmi um þetta. Hins vegar er ástæða til að undirstrika að sam- keyrsla sveitarfélaga um öll verkefni er ekki endi- lega allra meina bót og þarf að skoða hvert tilvik fyrir sig. Ég nefni sem dæmi grundvallar- 47
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.