AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Síða 51
þýðir í raun, að það sveitarfélag myndi hafa meira
en 60% íbúa á íslandi. Og í því sveitarfélagi
myndu búa miðað við mannfjölda á íslandi 1. des-
ember 1998 um 168 þúsund manns, en aðeins um
107 þúsund í öllum öðrum sveitarfélögum á íslan-
di. Væri nær lagi að kalla ísland borgríki í kjölfar
slíkra breytinga. Á hinn bóginn er sjálfsagt að
skoða ýmsa aðra valkosti í þessum efnum. Væri
t.d. fjarri lagi að sveitarfélögin fjögur sunnan
Reykjavíkur skoðuðu sameiningu? Úr því yrði
sveitarfélag sem hefði um 50 þúsund íbúa og væri
þannig öflugt mótvægi við hina stóru og öflugu
höfuðborg. Fleiri hugmyndir mætti skoða, eins og
Hafnarfjörð, Garðabæ og Bessastaðahrepp, sem
hefði 28 þúsund íbúa, og Kópavog og Mosfellsbæ
saman með ámóta fjölda. Fleiri hugmyndir mætti
skoða. Það er þó mikilvægt að skoða sameining-
arhugmyndir sem þátt í hagræðingu og eflingu
viðkomandi svæðis, en ekki bara sameina til að
sameina.
SAMCONGUMAL f BRENNIDEPLI
Þótt svæðisskipulag taki til velflestra þátta
daglegs lífs, þá eru samgöngumálin sennilega
hvað veigamest, þegar allt kemur til alls. Mikilvægi
þess að fólk komist greiðlega og örugglega frá
einum stað til annars verður æ mikilvægara í nú-
tíma lífsháttum. Málefni flugvallarins í Reykjavík er
til dæmis viðfangsefni sem nauðsynlegt er að
ræða og skoða frá öllum hliðum, ekki aðeins fyrir
íbúa höfuðborgarinnar, heldur allt suðvestur-
hornið, allt landið. Er í því samhengi fráleitt að
skoða ofan í kjölinn leiðir sem aðrar þjóðir hafa
farið vegna samgangna í þéttbýli; þá er átt við
lestarsamgöngur, ofanjarðar sem neðan? Er ein-
teinungur milli Leifsstöðvar og miðborgar Reykja-
víkur út úr korti? Nei, auðvitað ekki. Allar þessar
hugmyndir og aðrar á að reifa og ræða í botn.
Of oft hafa menn horft of skammt fram í tímann,
þegar samgöngumannvirki eru annars vegar. Ég
minnist þess, að ýmsir höfðu á orði fyrir minna en
tíu árum, þegar Reykjanesbrautin var gerð frá
Mjóddinni í Hafnarfjörð, að um hana myndu fáir
fara. Reynslan er auðvitað allt önnur og nú eru
menn að mæta stóraukinni umferð um þá sam-
gönguæð með fjölgun akreina og öðrum
endurbótum. í því Ijósi hef ég verið mikill tals-
maður þess, að menn legðu í vandaða gerð svo-
kallaðs Ofanbyggðarvegar, sem að sunnan, við
Straumsvík, sveigði upp fyrir byggð í Hafnarfirði,
tengdist niður í Garðabæ við Vífilsstaði, en héldi
þó áfram í nánd við núverandi „Flóttamannaveg"
framhjá Vífilsstaðavatni, upp á Rjúpnahæð, þar
með tengingu niður í Breiðholtið, en héldi áfram
um Vatnsenda og allt út á Suðurlandsveg. Og
hugsanlega áfram um Hafravatnsleið í Mosfells-
bæ - á Vesturlandsveginn. Ég er sannfærður um
að með því að beina þungaumferð og hraðari
gegnumstreymisumferð um þessa leið myndi létta
á samgönguæðum um byggðirnar sunnan
Reykjavíkur og innan borgarinnar.
UHRÆÐAN MIKILVÆC
Umfram allt er þó mikilvægast að umræðan um
svæðisskipulagið verði mikil og almenn; ekki
eingöngu bundin við sérfræðinga og kjörna fulltrúa
og að þar verði hleypt á sprett öllum hugmyndum,
góðum og slæmum. Þess vegna er þetta framtak
þessa tímarits, - AVS - arkitektúr verktækni skipu-
lag - að kalla á almenna umræðu á frumstigi
skipulagsvinnunnar til mikillar fyrirmyndar. Um-
ræðunni um skipulagsmálin þarf að koma til
almennings á frumstigi, því alltof oft vaknar fólk við
vondan draum, eða öllu heldur við þann veruleika,
að framkvæmdir við skipulag eru að bresta á,
þegar fólk áttar sig á veruleika lífsins og vill taka
afstöðu. Þá er það stundum of seint. ■
Allhabo Kelley-RT/C
0 0
hliðaropnandi iðnaðarhurð
hraðopnandi
plasthurð
RAYNOR
KELLEY • ALLHABO
opna þér
nyjar leiðir
VERKVER
Smiðjuvegi 4B • Kópavogi
S* 567 6620 • Fax 567 6627
49