AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Qupperneq 54
3. Afstöðu til flugvallarmálsins var
slcgið á frest
í Ijósi þess, að eðlilegt var að miða við að um 25
ár tæki að byggja upp nýjan flugvöll og flytja
flugvöllinn, hlaut að vera tímabært að taka afstöðu
í því máli og leggja til hugmyndir byggðar á skipu-
lagslegum og flugtæknilegum forsendum. Þetta
gerðist ekki og er því nú, um 40 árum seinna,
verið að þjarka um úrlausn í þeim málum. - Meira
um þetta seinna.
4. Hafnarmálin
Óljós afstaða til framtíðarhafnar lýsir sér í því að
enn er deilt um lausn þeirra mála. Höfnin í
Viðeyjarsundi, fyrir mynni Elliðaánna reynist ekki
nýtast nema tveimur skipafélögum og gagnast því
ekki almennum sjóflutningum.
5. Drög að svæðisskipulagi
Aðalskipulaginu frá 1968 fylgdu ófullburða drög
að svæðisskipulagi sem illu heilli gat ekki orðið
nægur grundvöllur að gerð svæðisskipulags, þó
að sveitarfélögin kæmu sér upp skipulagsstofu í
því skyni og starfræktu í nokkur ár. Vandkvæðin
voru þau að það skorti hugmyndafræði til að móta
sameiginlegan grundvöll um landnotkun, dreifingu
atvinnu og þjónustu um svæðið og umferðarkerfi í
samræmi við það. Skiptingu svæðisins í 5-6 sveit-
arfélög hefur verið kennt hér um. Það er í mínum
huga fyrirsláttur. Þegar í alvöru og einlægni er
stefnt að samkomulagi er unnt að ná sáttum til
samstarfs, þegar ekki er ætlunin að innlima eða
yfirtaka ákvörðunarvald af grannanum. ■
Ný tækni í landmælingum vegna
mannvirkjagerðar og skipulagningar.
Á seinni árum hefur ný tækni við landmælingar og
staðsetningu hvers konar mannvirkja rutt sér mjög til
rúms í heiminum. Hér er um að ræða GPS tæknina sem
íslenskar verkfræðistofur, verktakar og fleiri hafa tekið
mjög vel og er nú víða í notkun hérlendis.
Eins og flestir þekkja nú orðið, byggir GPS kerfið á 24
gervitunglum sem eru á braut um jörð í um 20.000 km.
fjarlægð og við nákvæmnismælingar er unnið á a.m.k.
5 tunglum samtímis.
Með GPS tækninni er hægt að framkvæma mælingar
hraðar og með minni mannskap en áður var, þar sem
einungis er þörf á einum mælingamanni við mælinguna.
Hægt er að fá tækja- og hugbúnað sem hentar til hinna
ýmsu nota og með þeirri
nákvæmni sem hentar
mæla inn, setja inn upp-
lýsingar um ástand
þess, hvenær það var
skoðað og hvort ein-
Starfsmenn Ljósleiðaradeild- , . , ....
ar Landssímans að störfum hverra aö9erða se Þorf’
með GPS búnað.
LJÓSM: Guðmundur H. Sveinbjörns-
svo dæmi sé nefnt. Bein
hverju verki.
Setja má inn ýmsar
upplýsingar um mæling-
arpunktana og þegar
unnið er með svokölluð-
um „mapping" eða kort-
lagningatækjum er t.d.
hægt að merkja mann-
virki sem verið er að
yfirfærsla gagna úr GPS hugbúnaðinum í öll helstu
landupplýsingakerfi er auðveld.
Þessi kortlagningatæki hafa mikið verið notuð hér-
lendis, m.a. til að mæla inn kapallagnir í jörðu og hefur
Ljósleiðaradeild Landssímans notað þessa tækni um
nokkurt skeið og jafnvel framkvæmt mælingar um leið
og Ijósleiðarinn er lagður í jörðu. Þá nýtast kortlagn-
ingatækin mjög vel við mælingar á landamerkjum þar
sem ekki er þörf á sentímeters nákvæmni, svo eitthvað
sé nefnt.
Meðal annarra sem hafa þegar byrjað að nýta sér
þessa tækni, má nefna Landsvirkjun, RARIK, Orkubú
Vestfjarða, Landgræðsluna/Skógræktina o.fl. Algengt
er að kortlagningatækin gefi nákvæmni innan við einn
meter en hægt er að velja búnað sem gefur þá
nákvæmni sem óskað er. Landmælingatækin geta aftur
á móti gefið nákvæmni í kring um sentimeter og eru
mun dýrari búnaður. Hinar svokölluðu GPS alstöðvar
byggjast á tækjum af þessari gerð ásamt radíó- og hug-
búnaði. Með þeim er hægt að mæla með mikilli ná-
kvæmni í rauntíma og er þessi búnaður mikið notaður
af verkfræðistofum og verktökum við mælingar fyrir
mannvirkjum sem og við eftirlit með framkvæmdum.
Einnig hafa stofnanir eins og Vegagerð Ríkisins,
Landsvirkjun, Veðurstofan, Norræna Eldfjallastöðin,
Orkuveita Reykjavíkur og margir fleiri notað GPS
alstöðvar og önnur GPS nákvæmnistæki um nokkurt
skeið. Gera má ráð fyrir að þessi tækni muni verða enn
meira notuð í framtíðinni við hvers konar skipulagsvin-
nu t.d. þegar verið er að byggja upp ný hverfi og mann-
virki því tengt. ■
52