AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Side 94
gamla Kringlan, verslunargangar þar eru
þrengri og lægri. Það var því vandamál að
tengja þessi hús saman, þannig að eðlilegt
væri fyrir viðskiptavini að ferðast um húsin.
Mikil áhersla var lögð á þá rýmismynd sem
birtist fólki, þegar það kemur inn í hinar nýju
byggingar. Til að viðskiptavinir upplifi stærð
bygginganna eru nýir inngangar aðrir en inn-
gangur við Borgarleikhús hannaðir þannig, að
gengið er inn í mjög há rými. Þau gefa til-
finningu fyrir stærð hússins, þau sýna að það
séu fleiri en ein hæð og um leið fæst góð til-
finning fyrir hver inngangurinn er.
Við hönnun var ákveðið að skapa andrúms-
loft fjölbreytileika með þeim leikmyndum sem
til þurfti. ímynd gömlu Kringlunnar nær vart í
gegnum nýbygginguna, þó þannig að í hinni
nýju Kringlu hefur hvert hús sína ásjón og sína
ímynd með hinum ólíku rýmismyndum og fjöl-
breytilegu umhverfi.
Áhersla var lögð á að skapa góða lýsingu í
húsið og til þess ráðinn einn af færustu
lýsingarhönnuðum Breta. Lýsingin verður mjög
lifandi og þægileg. Hún kemur til með að breyt-
ast yfir daginn. Það rökkvar á kvöldin en birtir
til yfir daginn. Einnig breytist hún eftir árstíð-
um.
Ákveðnar aðgerðir voru gerðar til að lækka
bergmál og klið í húsinu. Var m.a. komið fyrir
hljóðdeyfiefnum í loftum og veggjum í samráði
við færustu hljóðtækniráðgjafa. Þessar breyt-
ingar höfða allar til þess að Kringlan verði betri
fyrir sína mörgu viðskiptavini.
Nýbyggingin er upp á þrjár hæðir. Allar tengj-
ast hæðirnar eldri byggingum, þó mismunandi.
1. hæð tengist Norðurhúsi, 2. hæð tengist
báðum eldri byggingum og 3. hæð tengist
Suðurhúsi og Borgarleikhúsi. Þetta virkar flók-
ið, en tekist hefur að gera flæði eða gönguleiðir
viðskiptavina þannig, að þær virka eðlilega,
fólk á að eiga auðvelt með að ganga um húsið
og staðsetja sig. Til þess hafa m.a. verið sett-
ar upp nýjar merkingar í allt húsið.
Á 1. hæð nýbyggingar eru verslanir. Þar er
stærsta verslun nýbyggingar, útivistarverslun.
Einkenni þessarar verslunar er mikil klifursúla,
sem teygir sig frá 1. hæð og upp yfir þá þriðju.
Rúllustigar umlykja klifursúluna á öllum hæð-
um.
Á 2. hæð eru verslanir og aðalinngangur frá
nýju bílastæðahúsi.
Á 3. hæð eru aðallega veitingastaðir. Sú hæð