Bændablaðið - 26.01.2023, Side 22

Bændablaðið - 26.01.2023, Side 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023 Til að auka hlut Norðmanna í kjarnfóðri er stöðugt unnið að því að finna próteinríkan staðgengil soja í kjarnfóðri. Samstarfsverkefnið BlueMusselFeed í Noregi, byggir á að koma á fót nýju hráefni í fóður með nýtingu á kræklingi. Samstarfsverkefnið sprettur út frá átaksverkefninu „Land mætir hafi“, þar sem markmiðið er að skapa meira samstarf milli bláa og græna geirans, þar sem veðjað er á ný hráefni fóðurs. Hugmyndin er að framleiða staðbundið prótein úr kræklingum til að minnka innflutning á sambærilegum vörum. Þannig er verið að skipta út innfluttum próteingjafa og öðrum fóðurefnum ásamt því að koma á fót nýjum iðnaði í kringum krækling sem fóðurhráefni í Noregi. „Kræklingur er náttúruleg hreinsivél. Þeir sía sjó og gleypa á áhrifaríkan hátt kolefni, köfnunarefni og fosfór. Bæði skelin og innmaturinn innihalda verðmæt næringarefni. Kræklingapróteinið getur meðal annars komið í stað innfluttra próteinríkra fóðurhráefna eins og soja og maísglútens,“ segir Elise Sæle Dahle, hjá Land mætir hafi. Í stað soja, fiskimjöls og maísglútens Í dag er soja um það bil 10 prósent af norsku kjarnfóðri alifugla. Soja er flutt inn frá Brasilíu og Kanada. Að sögn Elise mun notkun kræklings sem hráefnis í fóður draga úr innflutningi á próteinhráefnum eins og soja, fiskimjöli og maísglúteni. „Kræklingur sem hráefni í fóður getur lagt mikið af mörkum til að auka sjálfsbjargarviðleitni í norskri matvælaframleiðslu. Hingað til hefur kræklingur að mestu verið nýttur til manneldis í Noregi. Það er mun meira krefjandi sé hugsað til flutninga, þörungaeiturs og vörugæða heldur en framleiðsla til fóðurs. BlueMusselFeed getur verið fyrsta skrefið að nýjum norskum fjárfestingum í iðnaðarframleiðslu á kræklingi,“ segir Elise. Verkefnið mun ríma vel við yfirlýst samfélagsverkefni ríkisstjórnar Noregs um að allt fóður fyrir búfé og eldisfisk verði að vera sjálfbær. Útflytjendur frekar en innflytjendur Að sögn verkefnastjóra og fagstjóra hagræðingar og hráefnis í Fiskå Mølle, Hilde Schøyen, á að búa til kjúklingafóður úr kræklingi. „Í gegnum BlueMusselFeed verður þróuð besta vinnslutækni fyrir krækling til að framleiða hágæðaprótein sem hentar dýrum á landi og í vatni. Rannsóknir á sláturkjúklingum munu sýna notagildi og gildi í norskri matvælaframleiðslu. Þannig á að búa til markað sem tryggir árangur í að byggja upp nýja hráefnisframleiðslu í Noregi,“ útskýrir Hilde. Fiskå Mølle, Lerøy, Eide Fjordbruk, Animalia og Nortura hafa sameinast um samstarfsverkefni til að stuðla að aukinni sjálfsbjargarviðleitni í norskri matvælaframleiðslu. BlueMusselFeed hefur hlotið stuðning frá norska rannsóknarráðinu um prófanir og framleiðslu kræklings sem nýtt hráefni í fóður fyrir kjúklinga. „Mikilvægt er að búa til norsk matvæli úr norskum auðlindum. Noregur hefur svo mikinn lífmassa að við ættum að geta orðið útflytjendur frekar en innflytjendur hráefna. Kræklingur veitir okkur slíkt tækifæri og við erum ótrúlega ánægð með að komast í gegnum nálarauga Rannsóknarráðsins,“ segir Hilde. Samvinna þvert á greinar Fyrirtæki úr bláa og græna geiranum sameinast í nýsköpunar- og samstarfsverkefninu BlueMussel- Feed. Norska rannsóknarráðið auglýsti eftir tillögum um „sjálfbært fóður fyrir fisk og landdýr – frá hugmynd til markaðar“ og þar með kviknaði hugmyndin að nýta krækling til þess. Aðilar, sem vanalega sitja hvor sínum megin við borðið, koma inn með sín mál og sjónarmið í verkefnið þannig að saman geti þeir fundið sjálfbærar lausnir. „Samvinna er lykillinn að nýsköpun. Þegar við skiljum þarfir allra hinna aðilanna í virðiskeðjunni náum við að dreifa áhættu um leið og við finnum ný svör við sameiginlegum áskorunum,“ segir Elise Sæle Dahle. Getur verið byrjun á nýjum iðnaði Elise bendir á að nú standi Norðmenn frammi fyrir stórfelldum áskorunum þegar kemur að því að kynna nýtt fóðurhráefni í fiskeldi. Meðal annars vegna þess að það krefst mikils magns. Ef kræklingur verður fóður fyrir meðal annars kjúkling og varphænur, er hægt að stofna markað um það í Noregi. „Ef hægt er að stofna markað hér í Noregi er einnig hægt að koma á fót markaði í Danmörku og Svíþjóð. Á þann hátt getur landbúnaður orðið til þess að stækka enn frekar nýjar atvinnugreinar,“ segir Elise. [Þýtt úr tímaritinu Fjørfe, nr. 9 2022, sem gefið er út af Norsk Fjørfelag. Höfundar eru Siri Steinsland, Myldring & Karianne Fuglerud Ingerø. Þýðing: Erla Hjördís Gunnarsdóttir.] HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Kostir kræklings sem hráefnis í fóður • Kræklingur getur komið í staðinn fyrir fiskimjöl, maísglúten og soja- fóðurefni sem er flutt inn í dag til Noregs. • Óuppfyllt árleg þörf fyrir prótein fyrir einmaga landdýr (svín og alifugla) er um það bil 42 þúsund tonn af próteinhráefni. Það þýðir að við þurfum að rækta yfir 800 þúsund tonn af kræklingi ef hægt á að vera að skipta út öllu innflutta próteininu fyrir kræklingaprótein. • Í Noregi gefst kostur á að safna miklu magni af næringarefnum fyrir tilstuðlan kræklings og hann er hægt að uppskera á hverju ári. • Kræklingur hreinsar vatnið af til dæmis kolefni, köfnunarefni, kalsíum og fosfór. • Kræklingaskelin samanstendur af kalsíumkarbónati, sama efni og er í kalksteini. Verkefnið miðar að því að leysa af hólmi kalksteinsmjöl með möluðum kræklingaskeljum. Skelin inniheldur kolefni sem hefur farið í hringrás, ólíkt kalksteini, sem er steingervingur. • Kræklingur inniheldur þó nokkuð af fitu, allt eftir árstíma og þroskastigi skeljarinnar. Hann inniheldur mikið af hollri, fjölómettaðri fitu. • Kræklingur inniheldur litarefni sem gefa gulan lit sem gæti komið sér vel við eggjaframleiðslu til að fá fallega gular eggjarauður. • Kræklingurinn er próteinríkur og hefur gott innihald nauðsynlegra amínósýra. Meltanleiki er mikill. Próteinið hefur hátt líffræðilegt gildi sem fóður og fæða. • Tilraunir á svínum í Danmörku hafa sýnt að kræklingaprótein er jafn gott eða betra en fiskimjöl. • Tilraunir með varphænur í Svíþjóð hafa sýnt að hænurnar standa sig jafn vel eða betur þegar soja og fiskimjöli er skipt út fyrir kræklingaprótein. • Í verkefninu mun kræklingaprótein í kjúklingafóðri vera prófað og gert er ráð fyrir að matarlyst, vöxtur, fóðurnýting og kjötgæði verði í takt við árangur hjá svínum og kjúklingum. Þetta á þó eftir að staðfesta. • Nokkrir aðilar vinna þvert á verkefnið þar sem gert er mat á fæðuaðgengi í viðkomandi byggðarlögum fyrir kræklingarækt. • Aðskilja þarf líkama kræklingsins frá skeljunum til að verða stöðugt til geymslu og nothæft prótein. Verkefnið miðar að því að þróa þessa vinnslutækni. • Hafið tekur við meiri næringarefnum en við vinnum í formi fiskveiða og virkni í dag. Atvinna manna valda næringarefnarennsli frá landi og aukið magn kolefnis í lofti. Með því að fara með krækling á land og nota hann í kjarnfóður, færir það þessi næringarefni aftur inn í hringrásina. „Prótein úr kræklingum getur meðal annars komið í stað innfluttra próteinríkra fóðurvara eins og soja og maísglútens,“ segir Elise Sæle Dahle, verkefnastjóri hjá Land mætir hafi. Noregur: Kræklingur nýttur í fóður fyrir kjúklinga og varphænur Bæði skelin og innmaturinn í kræklingi innihalda mikilvæg næringarefni en í dag vinna Norðmenn að því að framleiða prótein úr kræklingum til notkunar í fóður meðal annars fyrir kjúklinga- og eggjabændur. Mynd / Unsplash „Það á að búa til norskan mat úr norskum auðlindum. Það er svo mikill lífmassi í Noregi að við getum orðið útflytjendur í stað innflytjenda á hráefni,“ segir Hilde Schøyen, verkefnastjóri og fagstjóri hag- ræðingar og hráefnis í Fiskå Mølle. FRÆÐSLA

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.