Bændablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 55
55Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
Loftslagsbreytingar og áhrif
þeirra eru í auknum mæli til
hliðsjónar í öllum ákvörðunum
sem stjórnvöld á Íslandi taka. Það
er jákvæð þróun því vandamálið
er margþætt og teygir sig í alla
anga þjóðfélagsins.
Vandinn er
hnattrænn og
af þeim sökum
hafa þjóðir
heims komið
sér saman um
að ríki haldi
loftslagsbók-
hald til að
þær aðgerðir
sem ráðist
er í séu mælanlegar og saman-
burðarhæfar á alþjóðavettvangi.
Það er mikilvægt svo hægt sé að
sannreyna að ríki heims séu að
uppfylla þær skuldbindingar sem
þau hafa undirgengist.
Losunarbókhald Íslands
Losun sem fellur undir beina ábyrgð
Íslands er flokkuð eftir því hvaðan
losunin á uppruna sinn. Það er
gert í samræmi við leiðbeiningar
Milliríkjanefndar Sameinuðu
þjóðanna um loftslagsmál (IPCC)
sem Íslandi ber að fylgja. Flokkarnir
eru: (1) Orka, (2) Iðnaðarferlar
og efnanotkun, (3) Landbúnaður,
(4) Úrgangur, (5) LULUCF
(Landnotkun, breytt landnotkun
og skógrækt).
Hvert ár skilar Umhverfis-
stofnun landsskýrslu um losun
gróðurhúsalofttegunda til
Evrópusambandsins og skrifstofu
loftslagssamnings Sameinuðu
þjóðanna. Samkvæmt síðustu
landsskýrslu var losun frá landbúnaði
14% af heildarlosun Íslands árið
2020 (án LULUCF) og hafði dregist
saman um 7% frá árinu 1990.
Losuninni er skipt niður í eftirtalda
flokka í losunarbókhaldi Íslands:
(1) Iðragerjun, (2) Meðhöndlun
húsdýraáburðar, (3) Nytjajarðvegur,
(4) Annað. 59% af losun frá
íslenskum landbúnaði mátti rekja
beint til búfjárhalds (iðragerjun og
meðhöndlun húsdýraáburðar).
Þegar tekið er tillit til þess
hvernig losun frá landbúnaði er
bókfærð í losunarbókhaldi Íslands
þá er erfitt að draga verulega úr losun
án þess að draga úr framleiðslu.
T.d. að þrátt fyrir að íslenskur
landbúnaður yrði eingöngu knúinn
með endurnýjanlegum orkugjöfum
þá yrði sá ávinningur sem af því
hlytist færður sem samdráttur í
losun í flokknum Orka. Mikilvægt
er að átta sig á þessu þegar rætt
er um losun frá landbúnaði. Það
hlýtur því að vera lykilatriði að
miða við hve mikið af afurðum
er verið að framleiða á móti þeirri
losun sem myndast í landbúnaði,
í alþjóðlegum samanburði.
Kolefnislosun sauðfjárræktar
á Íslandi
Umræðan um kolefnislosun
sauðfjárræktar á Íslandi er oft og
tíðum ósanngjörn í garð bænda.
Með hliðsjón af ofangreindu
er áhugavert að skoða þróun í
losun frá íslenskri sauðfjárrækt
(án LULUCF) sem fellur undir
landbúnað í losunarbókhaldi
Íslands. Frá árinu 2014, þegar
flestar vetrarfóðraðar kindur voru
í landinu á síðasta áratug, hefur fé
fækkað um 24%.
Það leiðir af sér að losun af
völdum sauðfjár (iðragerjun og
meðferð húsdýraáburðar) hefur að
öllum líkindum dregist saman um
24% frá árinu 2014 til dagsins í dag.
Þrátt fyrir það anna íslenskir
sauðfjárbændur enn þá innlendri
eftirspurn eftir kindakjöti.
Í Riti LbhÍ nr. 142 er að
finna ítarlegar upplýsingar um
sauðfjárrækt á Íslandi. Þar kemur
fram að hérlendis er hæsta þátttaka í
skýrsluhaldi í sauðfjárrækt á byggðu
bóli, eða 96% ásettra áa. T.d. var
einungis 52% af fjárfjölda Noregs
í skýrsluhaldi árið 2020. Framleitt
magn kindakjöts á ásetta kind á
Íslandi árið 2019 var 23,4 kg. Næst
á eftir kom Noregur með 18 kg eftir
ánna. Af því má draga þá ályktun að
gögn um fjölda og afurðir sauðfjár
á Íslandi séu þau áreiðanlegustu
í veröldinni. Auk þess að hver
vetrarfóðruð kind sem losar
gróðurhúsalofttegundir á Íslandi
skilar talsvert meira af kjöti heldur
en erlendar ær í sambærilegum
framleiðslukerfum. Það hlýtur að
teljast góður árangur og eitthvað
sem íslenskir sauðfjárbændur ættu
að vera stoltir af.
Landnotkun, breytt landnotkun
og skógrækt (LULUCF)
Með tilkomu Parísarsamningsins
bar ríkjum að standa skil á mun
víðtækari upplýsingum um
landnotkun. Stór hluti landnotkunar
vegna búfjárhalds fellur undir
þennan flokk því um er að ræða allt
land sem er nytjað. Skuldbindingar
ríkja vegna LULUCF eru í dag
tvenns konar. (1) Annars vegar
að tryggja að nettólosun verði
ekki aukin vegna landnotkunar
og skógræktar miðað við tiltekin
viðmið til ársins 2030. (2) Hins vegar
að mæta verulega auknum kröfum
til gæða gagna, upplýsingagjafar
og aðferðafræði við mat á losun.
Kröfurnar voru auknar til að draga úr
óvissu um mat á losun og bindingu
vegna LULUCF og til að tryggja
að gögn séu samanburðarhæf
á alþjóðavettvangi. Því er t.d.
mikilvægt að öll kortlagning á
beitarsvæðum sé rétt og stærð þeirra
ekki of- eða vanáætluð. Auk þess að
þær skilgreiningar sem notast er við
til að meta hvort land er nytjaland
eða ekki séu bændum kunnar.
Ef nettólosun vegna LULUCF
eykst til ársins 2030 þá þarf
Ísland að greiða fyrir það með
losunarheimildum líkt og fyrir
aðra losun sem er á beinni ábyrgð
Íslands. Aftur á móti ef það verður
nettóbinding er Íslandi heimilt að
telja hana á móti annarri losun en
þó ekki meira en sem nemur 200
kt. CO2ÍG.
Það eru 4,4% af heildarlosun
Íslands árið 2020 sem var 4.510
kt. CO2ÍG (án LULUCF). Íslandi
er jafnframt heimilt að færa sama
magn bindingar úr LULUCF yfir
á aðildarríki ESB og Noreg til
að aðstoða þau við að standast
skuldbindingar sínar, og öfugt.
Frá árinu 2005 til ársins 2021
átti sér stað nettóbinding í flokki
LULUCF upp á 237 kt. CO2ÍG.
Sú tala gæti vissulega breyst með
betri gögnum og aðferðafræði við
mat á losun úr þessum flokki og því
mikilvægt fyrir bændur, forystumenn
þeirra og leiðbeiningaþjónustuna
að fylgjast vel með þróun þessara
mála. Ekki síst í ljósi þess að krafa
um samdrátt í losun frá LULUCF
verður að óbreyttu innleidd í
náinni framtíð þó ekki liggi fyrir
hve mikið magn af CO2 ígildum
Ísland verður skuldbundið til að
binda. Þegar þessi orð eru rituð er
þó ljóst að beit búfénaðar í úthaga
eða önnur landnotkun bænda
hefur ekki valdið því að Ísland
standist ekki skuldbindingar sínar í
loftslagsmálum. Því er mikilvægt að
halda til haga.
Að lokum
Það er nauðsynlegt að meta
kolefnislosun frá sauðfjárrækt,
og landbúnaði almennt, út frá því
hvernig losunarbókhaldið fyrir
Ísland er fært og leggja aðrar aðferðir
til hliðar. Sérstaklega þegar um er
að ræða ákvarðanir um ráðstöfun
opinberra fjármuna.
Þá verður ávinningurinn
mælanlegur, samanburðarhæfur
á alþjóðvettvangi og aðgerðum
beint þangað sem líklegast er að
þær skili mestum árangri m.t.t.
skuldbindinga Íslands.Það er
hinn alþjóðlegi mælikvarði á
árangur í loftslagsmálum. Íslenskir
sauðfjárbændur hafa skilað miklum
afurðum á móti því sem þeir losa af
gróðurhúsalofttegundum samanborið
við bændur í öðrum löndum. Það
er mikilvægt að áframhald verði
á því og um leið að menntun og
vitund stéttarinnar um loftslagsmál
verði efld því það er alltaf ráðrúm
til bætinga.
Sveinn Rúnar Ragnarsson,
stjórnarmaður í deild
sauðfjárbænda hjá BÍ.
Starf ráðgjafa hjá RML
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir ráðgjafa sem gæti sinnt fjölbreyttu ráðgjafar-
og þróunarstarfi á sviði umhverfis og loftslagsmála.
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Starf í ráðgjafateymi RML.
• Þróunar- og ráðgjafavinna tengd loftslags- og umhverfismálum í landbúnaði.
• Þróun og sala á fjölbreyttri ráðgjöf á landsvísu í samstarfi við annað starfsfólk RML.
• Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun á sviði raungreina,
náttúruvísinda, tækni eða umhverfismála æskileg.
• Reynsla tengd umhverfis og loftlagsmálum.
• Þekking á verkefnastjórnun er kostur.
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
• Geta til að vinna undir álagi.
• Góðir samskiptahæfileikar.
Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga landbúnaði í sínum víðasta skilningi sem
hefur metnað og frumkvæði til að vinna að ráðgjafarstarfsemi RML.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráðgjafarfyrirtæki í eigu bænda sem sinnir
landbúnaðarráðgjöf um allt land. Starfsemin er dreifð um landið á 12 starfsstöðvum. Við
bendum áhugasömum á heimasíðu fyrirtækisins www.rml.is þar sem sótt er um starfið, en þar
er einnig hægt að kynna sér starfsemina enn frekar.
Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar næstkomandi. Nánari upplýsingar veita Karvel L.
Karvelsson klk@rml.is og Borgar Páll Bragason bpb@rml.is.
Kolefnislosun sauðfjárræktar á Íslandi
hefur dregist saman um tæpan fjórðung
Sveinn Rúnar
Ragnarsson.
Sveinn Rúnar segir í greininni að gögn um fjölda og afurðir sauðfjár á Íslandi séu þau áreiðanlegustu í veröldinni.
Mynd / ghp