Bændablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 56

Bændablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023 RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS Niðurstöður skýrsluhaldsársins hjá mjólkurframleiðendum 2022 Niðurstöður skýrsluhaldsársins í mjólkurframleiðslunni 2022 hafa verið reiknaðar og birtar á vef Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, www.rml.is. Hér verður farið yfir helstu tölur úr uppgjörinu. Þeir fram- leiðendur sem skiluðu ein- hverjum, en þó m i s m i k l u m , u p p l ý s i n g u m um afurðir kúa sinna á nýliðnu ári voru 507 en á árinu 2021 voru þeir 517. Niðurstöðurnar eru þær helstar að 25.031,9 árskýr skiluðu 6.313 kg nyt að meðaltali. Það er afurðaminnkun um 23 kg/árskú frá árinu 2021 en þá skiluðu 25.382,8 árskýr meðalnyt upp á 6.336 kg. Þetta eru þó einar mestu meðalafurðir frá upphafi vega og sjöunda árið í röð sem þær ná yfir 6.000 kg eftir árskú. Umreiknaðar í orkuleiðrétta mjólk (OLM) eru meðalafurðir síðasta árs 6.527 kg/ árskú eða 17 kg minni en árið áður. Meðalbústærð reiknaðist 51,2 árskýr á árinu 2022 en sambærileg tala var 50,0 árið á undan. Meðalbústærð reiknuð í skýrslufærðum kúm var nú 67,2 kýr en 2021 reiknuðust þær 66,8. Samtals voru skýrslufærðar kýr ársins 34.051 talsins samanborið við 34.553 árið áður. Mestar meðalafurðir á Norðurlandi eystra Svæðaskipting fylgir að segja má kjördæmum. Á árinu voru mestar meðalafurðir á Norðurlandi eystra, 6.387 kg, og síðan kemur Suðurland með 6.361 kg. Stærst eru búin að meðaltali á Austurlandi, 53,3 árskýr, en næststærst eru þau á Suðurlandi, 52,9 árskýr. Meðalbúið stækkar aðeins Meðalbúið stækkaði milli ára þrátt fyrir samdrátt í innleggi mjólkur en í takti við fækkun innleggsbúa. Meðalinnlegg á bú með innlegg allt árið nam 298.655 lítrum samanborið við 288.088 lítra á árinu 2021. Á sama tíma fækkaði innleggs- búum mjólkur um sextán og voru kúabú í framleiðslu 496 talsins nú í árslok 2022. Í ársbyrjun fækkaði þeim enn en fjögur bú hættu framleiðslu um áramót og í upphafi árs lögðu því 492 bú á brattann. Sú þróun að búunum fækki og þau stækki er því enn í fullum gangi og ekki séð fyrir endann á henni. Viðbúið er því að mjólkurframleiðendum fækki enn á komandi vikum og mánuðum. Mikil vanhöld á kálfum Vanhöld kálfa eru enn með þeim hætti að illa verður við unað. Einkum er þar um að ræða gríðarmikinn fjölda dauðfæddra kálfa við fyrsta burð en fjórði hver kálfur undan 1. kálfs kvígum fæðist dauður eða 24,9%. Þó þetta hlutfall hafi lækkað aðeins milli ára er þetta ástand allt annað en eðlilegt. Þrátt fyrir rannsóknir og athuganir á orsökum þessa hefur engin ein ástæða fundist. Fyrir dyrum stendur rannsókn í samstarfi Landbúnaðarháskóla Íslands og RML þar sem reynt verður að greina hvort um erfðaþátt geti verið að ræða. Tekin verða sýni úr dauðfæddum kálfum til arfgreininga og mun þá koma til samstarfs við bændur. Það kæmi undirrituðum mjög í opna skjöldu ef bændur yrðu ekki fúsir til samstarfs um þennan þátt en reynslan hefur sýnt að bændur bregðast ætíð vel við þegar leitað er eftir samstarfi um hina ýmsu þætti. Aldur kvígna við fyrsta burð mjakast hægt og bítandi niður á við, er nú 27,2 mánuðir. Þetta er of hár aldur og enn og aftur bendum við á að allar rannsóknir og athuganir sýna að hagkvæmast er að kvígurnar eignist sinn fyrsta kálf í kringum 23-24 mánaða aldur. Eftir allan þann tíma sem við höfum haldið þessu á lofti er kominn tími til aðgerða. Látið kvígurnar bera 24 mánaða! Sparinautin, þau naut sem standa í stíum bænda um allt land, á að nota sem slík. Af fæddum kálfum á árinu 2022 voru 31% undan sparinautum. Það sama á við um þetta og burðaraldurinn, við höfum margsagt að spara eigi þessi naut og sæða sem allra flestar kýr og kvígur. Ástæðuna vita allir. Nú, þegar erfðamengisúrval er orðið að veruleika, er mikilvægara en nokkru sinni að notfæra sér sæðingar og þær miklu erfðaframfarir sem þær bjóða upp á. Úrval toppnauta í kútum frjótækna hefur aldrei verið meira eða betra en nú. Mestar meðalafurðir á Stakkhamri á Snæfellsnesi Á árinu 2022 reyndust kýr Laufeyjar Bjarnadóttur og Þrastar Aðalbjarnarsonar á Stakkhamri á Snæfellsnesi með mesta meðalnyt eftir árskú eða 8.910 kg. Hér er höggvið nærri Íslandsmeti Brúsastaða í Vatnsdal frá árinu 2016 sem er 8.990 kg/árskú. Á Stakkhamri er legubásafjós með mjaltaþjóni sem tekinn var í notkun veturinn 2021-22. Ekki er annað að sjá en kýrnar kunni þeirri breytingu vel en afurðir á búinu jukust um 845 kg/árskú milli ára. Þetta er í annað sinn sem Stakkhamar skipar efsta sæti lista yfir afurðahæstu bú á einu almanaksári en árið 2006 varð raunin einnig sú. Þá skiluðu kýrnar þar 7.896 kg mjólkur/árskú sem á þeim tíma var Íslandsmet. Annað í röð afurðahæstu búa landsins er bú sem skipaði fjórða sæti þessa lista á árinu 2021. Þetta er Dalbær í Hrunamannahreppi en rekstraraðili þar er Dalbær 1 ehf. Kýrnar skiluðu 8.672 kg/árskú sem er 300 kg meira en árið áður. Í Dalbæ hefur verið legubásafjós með mjaltaþjóni um árabil og er búið vel þekkt í íslenskri nautgriparækt en þaðan eru t.d. hin kunnu kynbótanaut Laski 00010, Glæðir 02001 og Gyllir 03007. Þriðja afurðahæsta bú ársins 2022 er búið á Göngustöðum í Svarfaðardal en þar reyndust kýrnar skila 8.596 kg mjólkur/árskú. Rekstraraðili búsins er Göngustaðir ehf. Á Göngustöðum er nokkurra ára legubásafjós með mjaltaþjóni og síðan það kom til nota hafa afurðir tekið stórstígum breytingum. Milli ára jukust afurðir á búinu sem nemur 561 kg/árskú. Í fjórða sæti varð bú þeirra Jónínu Einarsdóttur og Gísla Haukssonar á Stóru-Reykjum í Flóa. Kýrnar á Stóru-Reykjum skiluðu 8.507 kg/árskú á nýliðnu ári eða 186 kg/árskú meira en árið á undan. Á þessu fyrirmyndarbúi ársins 2022 er að finna nýlegt legubásafjós með mjaltaþjóni. Fimmta búið í röð afurðahæstu búa ársins 2022 er gamalkunnugt á þessum lista. Bú þeirra bú Guðlaugar Sigurðardóttur og Jóhannesar Eybergs Ragnarssonar á Hraunhálsi í Helgafellssveit hefur oftsinnis áður komið fyrir meðal afurðahæstu búa landsins og árið 2022 er engin undantekning þar á. Heilsufar síð. 12 mán. Hlutfall með sjúkdómaskráningu 12,3 23,0 11,8 35,7 17,3 16,7 20,1 Kýr Fjöldi sjúkdómstilfella á árskú 0,17 0,35 0,17 0,50 0,23 0,24 0,29 Júgurmeðhöndlanir á árskú 0,05 0,09 0,08 0,11 0,05 0,08 0,08 Geldstöðumeðhöndlanir á árskú 0,01 0,05 0,01 0,02 0,04 0,02 0,02 Bráðadauði/slys á árskú 0,01 0,01 0,01 0,01 0,01 0,01 0,01 Kálfar Hlutf. dauðra og dauðf. við 1. burð 22,5 20,5 27,3 27,8 25,3 23,0 24,9 Hlutf. dauðra og dauðf. aðrir burðir 8,1 9,5 9,2 9,0 8,2 8,2 8,6 Hlutf. dauðra á 1- 180 daga 3,3 3,4 4,0 3,7 3,4 2,2 3,1 Frjósemi síð. 12 mán. Dagar frá burði til 1. sæðingar 66,2 105,7 71,0 69,8 59,8 68,6 69,2 Meðalaldur við 1. burð 27,6 28,7 27,1 26,6 27,8 27,4 27,2 Hlutfall kálfa undan sæðinganautum 67,3 69,8 65,0 68,5 71,6 71,2 69,0 Ending Kýr Meðaldur við förgun, dagar 1.884,5 1.896,4 1.867,6 1.839,1 1.972,5 1.880,5 1.871,2 Meðalfjöldi burða við förgun 2,92 2,65 2,88 2,93 3,03 2,93 2,92 Meðalæviafurðir fargaðra kúa 16.911,7 14.700,7 17.459,9 17.613,8 18.973,7 17.545,1 17.461,8 Annað Ný bú í skýrsluhaldi síð. mánuð 0 0 0 0 0 0 0 Bú sem hættu í síð. mánuði 0 0 0 0 0 1 1 Ársuppgjör afurðaskýrslna nautgriparæktarinnar 2022. Heimild og töflur / Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Nautgriparæktin Sími 516 5000 - www.rml.is Skýrsluhald í mjólkurframleiðslu desember 2022 Uppgjör fyrir tímabilið Vesturland Vestfirðir Norðurland vestra Norðurland eystra Austurland Suðurland Landið allt Fjöldi búa alls 70 13 86 121 18 187 495 Fjöldi búa með skil 70 12 84 121 18 184 489 Fjöldi kúa alls 3.467 370 4.463 6.388 993 10.075 25.756 Meðalbústærð, kýr 49,5 30,8 53,1 52,8 55,2 54,8 52,7 Fjöldi árskúa 3.342,1 393,4 4.321,6 6.278,6 958,8 9.737,6 25.031,9 Meðalbústærð, árskýr 47,7 32,8 51,4 51,9 53,3 52,9 51,2 Fjöldi 1. kálfs kúa 1.131 137 1.637 2.207 314 3.580 9.006 Fjöldi kvígna eldri en 24 mán 581 162 694 704 129 1.933 4.203 Endurnýjunarhlutfall 32,6 37,0 36,7 34,5 31,6 35,5 35,0 Hlutfall kúa með förgunarástæðu 100,2 84,9 99,0 100,0 100,0 99,8 99,5 Mjólkurframleiðsla síð. 12 mán. Meðalbústærð, innlögð mjólk 262.814 175.385 303.360 310.569 312.182 309.723 298.655 Mjólk/árskú 6.128 5.198 6.356 6.387 6.252 6.361 6.313 Fita kg 259 202 261 276 269 265 265 Fita % 4,23 3,88 4,10 4,31 4,30 4,17 4,20 Prótein kg 210 167 215 223 216 215 215 Prótein % 3,42 3,21 3,37 3,50 3,46 3,37 3,41 Kg OLM/árskú 6.363 5.096 6.480 6.738 6.565 6.534 6.527 Mjólkurnýting 93 93 95 96 97 95 95 Frumutala (reiknuð) 269 259 248 252 279 262 259 Mjólkandi kýr Dagsnyt/kú 16 13 16 16 16 17 16 Dagsnyt OLM/kú 17 13 16 17 17 17 17 Kjötframleiðsla síð. 12 mán. Kýr Hlutfall með sláturgögn 89,4 76,1 82,7 85,2 88,2 87,5 86,1 Flokkun 2,52 3,04 3,30 2,47 2,61 2,77 2,74 Dagar frá burði við förgun 260,2 336,8 273,4 245,6 298,8 259,7 260,9 Meðalþungi, kg 198,1 209,5 211,1 202,7 211,8 207,2 205,7 Sigurður Kristjánsson. Guðmundur Jóhannesson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.