Bændablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 20

Bændablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023 FRÉTTASKÝRING Í nýju lögunum er hugtakið „líf­ úrgangur“ notað um þann lífræna úrgang sem flokka þarf sérstaklega til moltugerðar. Lífúrgangur er þannig fyrst og fremst matar­ og eldhúsúrgangur, sem brotnað getur niður fyrir tilstilli örvera. Hugtakið „lífrænn úrgangur“ er víðfeðmara og nær yfir úrgangsflokka eins og timbur, húsdýraáburð, sláturúrgang, pappír, pappa og ýmislegt fleira sem ekki er lífúrgangur, en er einnig óheimilt að urða. Fá sveitarfélög innleitt löggjöfina Fá sveitarfélög hafa innleitt lög­ gjöfina í sína sorphirðu. Þó hefur almenningi og lögaðilum verið skylt að flokka lífúrgang sérstaklega frá áramótum. „Sveitarfélög eru um þessar mundir að innleiða nýjar flokkunar­ tunnur og það er við því að búast að það taki einhvern tíma. Þangað til það gerist höldum við auðvitað áfram að flokka úrgang í þær tunnur sem bjóðast eftir bestu getu. Við erum öll í þessu saman. Einhver sveitarfélög eru nú þegar langt komin eða jafnvel búin að innleiða nýjar flokkunartunnur sem er frábært. Önnur sveitarfélög eru að detta inn á næstu mánuðum en engin sveitarfélög ættu að vera mikið seinni en það. Nú eru flest sveitarfélög bara að bíða eftir tunnum,“ segir Jóhannes B. Urbancic Tómasson, sérfræðingur á sviði loftslagsmála og græns samfélags hjá Umhverfisstofnun. Skylda sveitarfélaganna að ákveða fyrirkomulag söfnunar „Aðkoma Umhverfisstofnunar er fyrst og fremst að greiða fyrir innleiðingu laganna. Við höfum gefið út handbók fyrir sveitarfélög um úrgangsmál og höldum uppi fræðslu fyrir almenning og fyrirtæki. Umhverfisstofnun fer með eftirlit með framkvæmd laga um meðhöndlun úrgangs þannig að aðkoma okkar er líka í eftirfylgni með lögunum, ekki bara innleiðingunni,“ segir Jóhannes. Hann játar því að almenningi sé óheimilt að henda lífúrgangi í óflokkaða ruslatunnu, en hvað ef engar tunnur eru í boði fyrir þennan úrgang í sveitarfélögum? „Það er skylda sveitarfélaganna að ákveða fyrirkomulagið á söfnun úrgangsins í sveitarfélaginu og sjá um flutning heimilisúrgangs. Sveitarfélögin hafa sömuleiðis skyldu til að ná tölulegum markmiðum í úrgangsmálum, til dæmis hvað varðar að lágmarka urðun lífræns úrgangs og urðun heimilisúrgangs. Svo bera sveitarfélögin ábyrgð á grettistaki í endurvinnslu heimilisúrgangs sem við ætlum að ná upp í 55 prósent árið 2025. Nú erum við á milli 25­30 prósent.“ Innleiðing á hringrásarhagkerfi Að sögn Jóhannesar er forsendan fyrir lagabreytingunum að greiða fyrir innleiðingu hringrásarhagkerfis. „Breytingarnar hafa ýmsa aðra snertifleti eins og að minnka losun gróðurhúsalofttegunda og vinna að sjálfbærni Íslands. Með því að farga úrgangi í stað þess að endurnýta hann tapast auðlindir sem annars væri hægt að nota. Þegar kemur að lífrænum úrgangi eru næringarefni og kolefni þær auðlindir sem er hægt að nýta áfram, til dæmis sem áburð, eldsneyti og moltu. Með breytingunum færum við okkur í átt að því að úrgangsmál geti haft samverkandi áhrif með öðrum málaflokkum eins og orkumálum, loftslagsmálum, landgræðslu, skógrækt og landbúnaði.“ Farvegurinn fyrir hinn verðmæta úrgang En hvað verður svo um allan þennan lífúrgang, sem hingað til hefur verið urðaður? Jóhannes segir að hann muni fara í endurvinnslu í gegnum jarðgerðarferli og metanvinnslu. „Ég geri ráð fyrir því að stór hluti af þessum úrgangi fari í gegnum Jarðgerðarstöðina GAJA í Álfsnesi, víða að frá landsbyggðinni líka. Svo eru fleiri stórar móttökustöðvar fyrir þennan úrgang, til dæmis á Akureyri. Afurðirnar úr ferlinu eru yfirleitt molta og metangas. Hvað moltuna varðar þá skiptir miklu máli að lífúrgangi sé sérsafnað því óhreinni úrgangur getur mengað moltuna. Það er strax komin fjölbreytt flóra fyrirtækja hér á Íslandi sem endurvinna úrgang í verðmætar vörur þrátt fyrir að sá vettvangur sé almennt frekar nýr á Íslandi. Metan er dæmi um það sem er unnið úr lífrænum úrgangi og mikil eftirspurn er eftir sem eldsneyti. Við vinnum svo moltu sem er gagnlegur jarðvegsbætir og úti í hinum stóra heimi eru fyrirtæki sem ná fosfórnum úr lífrænum úrgangi til að vinna í fosfórríkan áburð. Ég held við munum sjá þennan vettvang vaxa og þroskast á næstu árum,“ segir hann og bætir við að í næsta innleiðingarpakka muni fosfór væntanlega verða skilgreindur sem þýðingarmikið hráefni sem verði bannað að sóa. Vandasamur úrgangur dýraafurða Lagabreytingarnar sem tóku gildi 1. janúar hafa ekki í för með sér neina breytingu á því hvernig meðhöndla þarf dýrahræ og aukaafurðir úr dýrum sem eru ekki ætlaðar til manneldis. Eftir sem áður verður óheimilt að urða þennan úrgang, en Jóhannes telur að staðan í þeim málum sé ekki nógu góð. Úrgangur sem fellur til hjá sláturleyfishöfum, kjöt­ og fisk­ vinnslum er staðbundinn, eins leitur að samsetningu og yfirleitt í miklu magni. Jóhannes segir að þess vegna sé að vissu leyti auðveldara að meðhöndla hann. Það þurfi þó að huga sérstaklega Bannað að urða lífrænan úrgang frá síðustu áramótum: Verðmæt næringarefni fara inn í hringrásarhagkerfið – Fá sveitarfélög hafa þegar innleitt löggjöfina í sína sorphirðu Bann við urðun á niðurbrjótanlegum úrgangi tók gildi hér á landi 1. janúar síðastliðinn. Frumvarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra þess efnis var samþykkt á vorþingi 2021. Hin nýja löggjöf er innleiðing Evróputilskipana frá 2018 sem eiga að skapa skilyrði fyrir myndun hringrásarhagkerfis. Þær tilskipanir kveða meðal annars á um sérsöfnun á lífrænum úrgangi, til að koma í veg fyrir að verðmæti í formi næringarefna hverfi úr hagkerfinu sem úrgangur og til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda. Lífræn hreinsistöð • Fyrirferðalítil fullkomin sambyggð skolphreinsistöð • Uppfyllir ýtrustu kröfur um gæði hreinsunar • Engin rotþró eða siturlögn 25 ára ábyrgð • Tæming seyru á þriggja til fimm ára fresti • Engir hreyfanlegir hlutir • Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík Sími 517 2220 - petur@idnver.is G ra fik a 19 Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is Jóhannes B. Urbancic Tómasson, sérfræðingur á sviði loftslagsmála og græns samfélags hjá Umhverfisstofnun. Mynd / Aðsend
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.