Bændablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 60

Bændablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 60
60 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023 Í nóvember síðastliðnum sóttu sex ráðunautar RML sauðfjár- ræktarráðstefnu í Bretlandi. Ráðstefnan nefnist Sheep breeders round table, eða hringborð sauðfjárræktenda, og koma þar saman ráðunautar, dýralæknar, vísindafólk og sauðfjárbændur og fara yfir þau mál sem eru efst á baugi hverju sinni. Í tengslum við þá ráðstefnu, sem sagt verður frá síðar, gafst tækifæri til að heimsækja bændur um miðbik Bret- lands, nálægt Skírisskógi, sem er Íslendingum kunnur sem heimkynni Hróa hattar og einnig höfuðstöðvar British wool í Bradford. Í síðasta tölublaði var sagt frá þremur heimsóknanna, til British wool og tveggja sauðfjárbænda, en hér verður sagt frá heimsóknum til bænda með nautgripi. Kúabúið Gleadthorpe Við heimsóttum stórt kúabú með um 750 Holstein kýr í nágrenni Mansfield, um 100 km sunnan við Bradford. Búið er rekið af fjölskyldu, daglegur rekstur er fyrst og fremst hjá bræðrunum David og Will og systur þeirra Mörthu, en auk þeirra koma faðir þeirra og föðurbróðir að fjármögnun, uppbyggingu og daglegum verkum. Auk þess eru á búinu tveir til fjórir starfsmenn sem mest eru í mjöltum og þrifum. Búið og öll aðstaða hefur verið byggð upp ný frá árinu 2008 þegar eldri bræðurnir keyptu jörðina en þar var áður tilraunabú fyrir breskan landbúnað. Kýrnar á búinu eru fóðraðar á heilfóðri í fjórum um 190 kúa hópum þar sem skipt er í hópa eftir stöðu á mjaltaskeiði og nyt. Hver hópur er fóðraður á viðeigandi heilfóðurblöndu og fá kýrnar kjarnfóður til viðbótar í mjöltum. Mjaltir fara fram í mjaltahringekju með 36 plássum og er mjólkað þrisvar á dag. Tveir starfsmenn sjá um mjaltirnar í hvert sinn en hringekjan býður þó upp á þann möguleika að aðeins einn sé við mjaltir. Búið er með beinan samning um mjólkursölu við stóra verslunarkeðju, Sainsbury‘s, og samkvæmt þeim samningi er borgað fyrir magn en ekki sérstaklega fyrir efnainnihald öfugt við það sem t.d. Arla gerir, en það er stærsta afurðastöð fyrir mjólk í Bretlandi. Á búinu er mikil áhersla lögð á einsleitni fóðurs, samloðun og fóðurgæði til hámarksafurða. Heilfóðrið var að mestu samsett úr heimaræktuðu fóðri, maísheilsæði, súrheyi og lítils háttar refasmára fyrir ódýrt viðbótarprótein. Kúnum er ekki beitt vegna jarðvegsgerðar og veðurfars á svæðinu en búið er staðsett á svæði þar sem jarðvegur er sandkenndur og lítil rigning. Helstu áskoranir á búinu eru tengdar frjósemi og heilbrigði, s.s. júgurbólgu og helti, og hafa bændur leitað leiða til að takast á við þessar áskoranir. Allar kýr eru með tvenns konar hreyfiskynjara, annan á ökkla og hinn í eyra, til að meta aukna hreyfingu sem bendir til beiðsla eða minnkaða hreyfingu sem bendir til veikinda eða helti. Hreyfiskynjarar í eyra meta auk þess jórturtíma með því að skynja mismunandi mynstur í hreyfingum á eyrunum. Auk þessa eru kýrnar með svokallaðan skafmiða á mölum sem byrja gráir en ef aðrar kýr riðlast á kúnni nuddast gráa húðin ofan af og appelsínugult merki merkir þær kýr sem standa undir. Þessar lausnir þekkja bændur hér á landi. Einnig höfðu þau gripið til margra lausna til að berjast við júgurbólgu, m.a. að halda kúm sér í litlum stíum í lok geldstöðu í stað þess að hafa þær í hópi svo og nákvæmar sótthreinsiaðferðir og við upphaf og lok mjaltaskeiðs. Þessar aðferðir hafa skilað árangri en eitthvað er þó enn um fyrirbyggjandi sýklalyfjagjöf á geldstöðu fyrir þær kýr sem eru í vandamálum á mjaltaskeiði. Húsakostur er nokkuð ólíkur því sem við eigum að venjast hér heima þar sem um var að ræða steypt plön undir einföldu þaki en bara smákálfarnir fengu fjóra veggi í kringum sig. Skýli sem þetta var fyrir hvern fóðrunarhóp, legubásaraðir í miðju skýli en fóður gefið úr heilfóðurblandara á fóðurganga utan með hverjum hóp. Mykja er hreinsuð undan kúnum á meðan þær eru í mjöltum. Þurrefnið úr mykjunni er skilið frá í nokkurs konar skilvindu og er það að stærstum hluta selt til gasgerðar en hinu er dælt í lón og notað til áburðar. Ungkálfar á Gleadthorpe voru yfirleitt 2-3 saman í stíum úr plastplötum sem er smellt saman á hornunum. Hálmur er undir þeim og einnig ofan á grindum yfir stíunum hjá minnstu kálfunum. Í hverri stíu er mjólkurfata sem skammtað er í fjórum sinnum á dag og að auki vatn og frjálst aðgengi að kjarnfóðri. Ungkálfarnir voru gæfir, glansandi og fallegir og mjög þrifalegt í kringum þá. Sérstaklega er gætt að sóttvörnum inn í ungkálfafjósið, t.d. með því að sótthreinsa skó í hvert sinn sem farið er þangað inn. Kýrnar á Gleadthorpe eru nytháar og unnið að fagmennsku að því með fóðrun, sem og að því að bæta frjósemi og þá heilbrigðisþætti sem hafa verið áskorun. Að tryggja velferð kúa á búi af þessari stærð í þessu framleiðslukerfi er svo önnur áskorun. Holdanautaeldi Síðast en alls ekki síst heimsóttum við Tim Phipps sem býr með holdanaut af Stabiliser kyni. Stabiliser kynið er samsett kyn, upphaflega frá Bandaríkjunum, sem búið var til með því að rækta saman bestu gripina af nokkrum mismunandi holdakynjum. Bestu gripir hvers kyns eru valdir út frá kynbótamati og svo er kynjum blandað þar til kemur fram Stabiliser kynið, sjálfstætt samsett kyn þar sem bestu eiginleikar upphaflegu kynjanna eru orðnir stöðugir í framræktun. Helstu eiginleikar kynsins eru góð skapgerð, skjótur þroski, hraður vöxtur, mikil kjötgæði, góð fóðurnýting og góðir mæðraeiginleikar svo eitthvað sé nefnt. Góðri fóðurnýtingu hefur meðal annars verið náð fram með að rækta frekar smáar kýr án þess að það komi niður á vaxtarhraða afkvæmanna. Tim hafði minnkað kýrnar úr 700 kg fullorðinsþunga niður í 600 kg og haldið flokkun, fallþunga og aldri nautkálfa við fullan þroska óbreyttum. Hjörðin telur um 200 holdakýr. Búrekstrarkerfið er blanda af eldi á heilfóðri undir þaki og beit á fjölærum túnum, túnin eru um 120 ha. Gripirnir eru úti á beit eins og landstærð og veðurfar leyfir en þurrkatímar og rigningartímar henta ekki til útibeitar á þessu svæði vegna jarðvegsgerðarinnar. Eldi kálfanna fer fram inni eða í óyfirbyggðum hálmstíum eftir að þeir eru teknir undan. Gefið er í fóðurtrog með útvegg í lokaeldinu. Þegar búið er að gefa er hálmi blásið í stíurnar aftan við gripina af miðgangi. Hann er líka notaður þegar þarf að vinna með gripina svo og flokkunargangur með meðhöndlunarbás sem settur var upp við byggingu aðalhússins. Fyrsti hluti eldisins fer fram í eldri byggingu og þar er fóðrað á hefðbundinn miðgang og hálmi blásið inn yfir gripina. Byggingar eru óeinangraðar og útveggir stundum ekki til staðar svo byggingarkostnaður er ólíkur því sem hér gerist. Gefið er úr heilfóðurblandara og lögð áhersla á einsleitt kraftmikið fóður. Tim elur sína nautkálfa í sláturstærð á um 12 mánuðum með 350 kg fallþunga í E-U-R flokka. Kjötið er selt beinum samningi í Morrison-verslunarkeðjuna. Í samstarfinu við Morrison felast hvatar til kolefnishlutleysis og náttúruverndar. Allar kvígur eru aldar á búinu til 14 mánaða aldurs og þá heldur hann þeim bestu eftir en selur hinar til framræktunar. Það var mjög áberandi hvað gripirnir á búinu voru gæfir og greinilega gagnkvæm virðing í umgengni gripa og bændanna. Gripir á útibeit svöruðu kalli bóndans og gripir á öllum eldisstigum nálguðust okkur óhræddir. RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS Á slóðum Hróa hattar: Bændaheimsóknir í Englandi nóvember 2022 – seinni hluti Guðfinna Harpa Árnadóttir. Stabiliser beef kýr í inniaðstöðunni. Mjaltir í hringekju fyrir 36 kýr. Kýr á Gleadthorpe búinu. Ungkálfaaðstaða, Martha skammtar hverjum kálfi mjólk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.