Bændablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 36

Bændablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023 Í DEIGLUNNI Búgrein á tímamótum – Svínaræktin á Íslandi gengur í gegnum miklar breytingar Á Íslandi eru átta aðilar sem reka 18 svínabú samkvæmt upplýsingum frá Mast. Samþjöppun hefur orðið í greininni og eru nokkrir aðilar orðnir mjög stórir. Þar af er Stjörnugrís stærst með sjö bú og Síld og fiskur með þrjú. Síðarnefnda fyrirtækið markaðssetur sínar vörur undir vörumerkinu Ali. Svínabúin eru nokkuð mismunandi að stærð og gerð. Sum þeirra taka einungis á móti litlum grísum og ala fram að slátrun. Önnur eru með gyltur sem gjóta að jafnaði tvisvar á ári. Matvælastofnun skilgreinir fyrri gerðina sem eldisbú og þá síðari sem gyltubú og verður sú afmörkun einnig notuð hér. Greinin gengur í gegnum mikið breytingaskeið núna, en 1. janúar 2025 tekur í gildi ný aðbúnaðarreglugerð, eftir tíu ára aðlögunarferli. Ein veigamesta breytingin snýr að gyltunum, en hver og ein mun fá 40% meira gólfpláss og verða þær í lausagöngu í rúmgóðum gotstíum, í stað þess að vera lokaðar í þröngum básum. Reglugerðin mun einnig krefjast lausagöngu og meira rýmis fyrir gyltur og grísi á flestum stigum ræktunarinnar. Fjölskyldubú í Laxárdal Í Laxárdal í Skeiða- og Gnúpverja- hreppi er Grís og Flesk ehf. með meginhluta sinnar starfsemi. Það er eitt af þeim búum sem eru komin hvað lengst í að aðlagast nýrri aðbúnaðarreglugerð. Grís og Flesk er fjölskyldufyrirtæki og eru tvær kynslóðir sem standa saman í rekstrinum, annars vegar Hörður Harðarson og María Guðný Guðnadóttir og hins vegar Björgvin Þór Harðarson og Petrína Þ. Jónsdóttir. Feðgarnir Hörður og Björgvin sátu fyrir svörum og leiddi Björgvin blaðamann í gegnum byggingarnar. Laxárdalur er eitt af fimm búum á landinu sem er bæði gyltu- og eldisbú. Gylturnar eru 200 og er stærstur hluti grísanna alinn Ingvi Stefánsson, formaður deildar svínabænda hjá Bændasamtökunum og svínabóndi í Teigi í Eyjafjarðarsveit, telur mikil tækifæri liggja í því að innleiða upprunamerkingar. Þá getur neyt- andinn tekið upplýst val hvort keypt sé innlend eða erlend matvara. Heilnæmi afurða og dýravelferð segir hann vera tvennt af því sem geri íslenskt svínakjöt að sam- keppnishæfri vöru. Varðandi fyrrnefnda atriðið, þá er það takmörkuð sýklalyfjanotkun sem skiptir máli. Síðarnefnda atriðið snýr annars vegar að sérstöðu Íslands varðandi geldingar og hins vegar aðbúnað gripanna þegar öllum húsum hefur verið breytt samkvæmt nýrri reglugerð. „Það er örstutt í það að aðbúnaðurinn okkar verði mjög góður þegar kemur að dýravelferð – og þá betri en gengur og gerist í Evrópu,“ segir Ingvi. Ísland er sérlega heppið þegar kemur að litlu sjúkdómaálagi. Fjölónæmu bakteríurnar MSRA, einnig nefndar MÓSA bakteríur, eru landlægar í svínarækt í mörgum af þeim löndum sem við berum okkur saman við, á meðan þær hafa ekki náð fótfestu á Íslandi. MÓSA getur borist yfir í fólk og valdið miklum skaða. „Sem dæmi má taka að kollegum okkar í Danmörku ber að tilkynna að þeir umgangist svín ef þeir þurfa að leita inn á heilbrigðisstofnanir,“ segir Ingvi. Breytingar miklar Eins og komið hefur fram, þá tekur ný aðbúnaðarreglugerð gildi eftir tvö ár. „Þetta eru það miklar breytingar að oft borgar sig ekki að taka eldri hús og uppfæra þau,“ segir Ingvi. Hann og fleiri hafa því brugðið á það ráð að byggja ný hús, og hafa sumir viljað byggja á nýjum stað. Það hefur valdið miklum töfum vegna skipulagsmála og andstöðu nágranna. „Það held ég að hafi verið okkar stærsti flöskuháls og maður hefur áhyggjur af því hvort greinin verði búin að ná þessu [í tæka tíð] þar sem þetta er ekki byggt á einum degi,“ segir Ingvi. Hvað lyktarmengun varðar, þá segir Ingvi að hún sé algjörlega óhjákvæmileg. Hins vegar sé margt hægt að gera til að halda henni í lágmarki. Með réttum aðferðum getur lyktarmengunin verið sambærileg því sem fylgir almennum búrekstri. Fóðurkostnaður vegur þungt Fóðurkostnaðurinn er langstærsti útgjaldaliður íslenskra svínabænda. „Þar sem fóðrið hjá okkur er að mestu leyti innflutt þá er búinn að bætast mikill flutningskostnaður ofan á hráefnisverðið þegar það er komið í sílóið okkar.“ Þetta atriði segir Ingvi að veiki samkeppnisstöðu íslenskra svínabænda gagnvart innflutningi á kjöti. Hann kallar því eftir því að aukin áhersla verði lögð í að efla kornrækt. Eins og staðan er í dag segir Ingvi að ræktunarstyrkir frá hinu opinbera séu minni en erlendis og við það bætist að uppskerumagnið á hvern hektara er mun minna. „Ég hef mjög mikla trú á framtíð svínaræktarinnar hérna innanlands. Þrátt fyrir allar áskoranirnar þá á framtíðin að geta verið björt,“ segir Ingvi. „Maður er búinn að fara mikið utan og maður sér hvað stjórnvöld þar eru að þrengja að bændum. Ekki síst vegna þess hvað jarðvegur víða er orðinn mettaður af lífrænum áburði og einingarnar orðnar gríðarlega stórar. Við erum svo ótrúlega lánsöm að hafa allt þetta landrými og hreinu orkuna – svo ekki sé nú talað um hvað hún er orðin ódýr í samanburði við útlönd Mér dettur ekki í hug að halda því fram að það sé allt í volli í svínarækt erlendis og allt vont sem þaðan kemur, en það er samt staðreynd að við höfum ákveðna hluti sem við erum að gera með betri hætti,“ segir Ingvi. Neytandinn þarf að vita hvaðan kjötið kemur Ingvi Stefáns- son, svínabóndi í Teigi. Þegar öll svínabú landsins verða búin að breyta húsunum hjá sér samkvæmt nýrri aðbúnaðarreglugerð sem tekur gildi í janúar 2025, mun íslensk svínarækt standa öðrum löndum framar hvað dýravelferð varðar. Hér má sjá nýja gotstíu í Laxárdal þar sem gyltan hefur gott rými til að athafna sig og grísirnir geta verið öruggir í sínu horni. Rétt eftir got er mikil hætta á að gylturnar leggist á grísina og eru hreyfingar þeirra því takmarkaðar í fimm daga með því að skorða þær milli grindanna sem sjást á myndinni. Myndir / ÁL Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is Búið í Laxárdal er fjölskyldubú. Hér sjást Hörður Harðarson, María Guðný Guðnadóttir og Björgvin Þór Harðarson. Petrína Þórunn Jónsdóttir, eiginkona Björgvins, sér um kjötvinnsluna og allt sem að henni snýr. Svínakjöt er þriðja mest selda kjötið á íslenskum markaði og eru vinsældir þess stöðugt að aukast. Kjúklingakjöt trónir á toppnum og lambakjöt rétt þar á eftir. Þrátt fyrir að neytendur velji í síauknum mæli svínakjöt, þá stendur búgreinin fyrir miklum áskorunum, eins og ákalli um aukinn innflutning og hertum kröfum um aðbúnað. Tækifæri geta þó leynst í því síðarnefnda, því þegar öll svínabú landsins verða búin að breyta aðstæðum í samræmi við nýja aðbúnaðarreglugerð, verður íslensk svínarækt með forskot á nágrannalöndin hvað varðar dýravelferð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.