Bændablaðið - 26.01.2023, Qupperneq 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
Í DEIGLUNNI
Búgrein á tímamótum
– Svínaræktin á Íslandi gengur í gegnum miklar breytingar
Á Íslandi eru átta aðilar sem reka
18 svínabú samkvæmt upplýsingum
frá Mast. Samþjöppun hefur orðið í
greininni og eru nokkrir aðilar orðnir
mjög stórir. Þar af er Stjörnugrís stærst
með sjö bú og Síld og fiskur með þrjú.
Síðarnefnda fyrirtækið markaðssetur
sínar vörur undir vörumerkinu Ali.
Svínabúin eru nokkuð mismunandi að
stærð og gerð. Sum þeirra taka einungis
á móti litlum grísum og ala fram að
slátrun. Önnur eru með gyltur sem gjóta
að jafnaði tvisvar á ári. Matvælastofnun
skilgreinir fyrri gerðina sem eldisbú
og þá síðari sem gyltubú og verður sú
afmörkun einnig notuð hér. Greinin
gengur í gegnum mikið breytingaskeið
núna, en 1. janúar 2025 tekur í gildi
ný aðbúnaðarreglugerð, eftir tíu
ára aðlögunarferli. Ein veigamesta
breytingin snýr að gyltunum, en hver
og ein mun fá 40% meira gólfpláss og
verða þær í lausagöngu í rúmgóðum
gotstíum, í stað þess að vera lokaðar
í þröngum básum. Reglugerðin mun
einnig krefjast lausagöngu og meira
rýmis fyrir gyltur og grísi á flestum
stigum ræktunarinnar.
Fjölskyldubú í Laxárdal
Í Laxárdal í Skeiða- og Gnúpverja-
hreppi er Grís og Flesk ehf. með
meginhluta sinnar starfsemi. Það er eitt
af þeim búum sem eru komin hvað lengst
í að aðlagast nýrri aðbúnaðarreglugerð.
Grís og Flesk er fjölskyldufyrirtæki
og eru tvær kynslóðir sem standa
saman í rekstrinum, annars vegar
Hörður Harðarson og María Guðný
Guðnadóttir og hins vegar Björgvin
Þór Harðarson og Petrína Þ. Jónsdóttir.
Feðgarnir Hörður og Björgvin sátu fyrir
svörum og leiddi Björgvin blaðamann
í gegnum byggingarnar. Laxárdalur
er eitt af fimm búum á landinu sem er
bæði gyltu- og eldisbú. Gylturnar eru
200 og er stærstur hluti grísanna alinn
Ingvi Stefánsson, formaður deildar
svínabænda hjá Bændasamtökunum og
svínabóndi í Teigi í Eyjafjarðarsveit, telur
mikil tækifæri liggja í því að innleiða
upprunamerkingar.
Þá getur neyt-
andinn tekið upplýst val
hvort keypt sé innlend eða
erlend matvara. Heilnæmi
afurða og dýravelferð segir
hann vera tvennt af því
sem geri íslenskt svínakjöt
að sam- keppnishæfri
vöru. Varðandi fyrrnefnda
atriðið, þá er það takmörkuð
sýklalyfjanotkun sem
skiptir máli. Síðarnefnda
atriðið snýr annars vegar að sérstöðu Íslands
varðandi geldingar og hins vegar aðbúnað
gripanna þegar öllum húsum hefur verið breytt
samkvæmt nýrri reglugerð.
„Það er örstutt í það að aðbúnaðurinn okkar
verði mjög góður þegar kemur að dýravelferð
– og þá betri en gengur og gerist í Evrópu,“
segir Ingvi.
Ísland er sérlega heppið þegar kemur að
litlu sjúkdómaálagi. Fjölónæmu bakteríurnar
MSRA, einnig nefndar MÓSA bakteríur, eru
landlægar í svínarækt í mörgum af þeim
löndum sem við berum okkur saman við, á
meðan þær hafa ekki náð fótfestu á Íslandi.
MÓSA getur borist yfir í fólk og valdið
miklum skaða. „Sem dæmi má taka að
kollegum okkar í Danmörku ber að tilkynna
að þeir umgangist svín ef þeir þurfa að leita
inn á heilbrigðisstofnanir,“ segir Ingvi.
Breytingar miklar
Eins og komið hefur fram, þá tekur ný
aðbúnaðarreglugerð gildi eftir tvö ár. „Þetta
eru það miklar breytingar að oft borgar sig
ekki að taka eldri hús og uppfæra þau,“ segir
Ingvi.
Hann og fleiri hafa því brugðið á það ráð
að byggja ný hús, og hafa sumir viljað byggja
á nýjum stað. Það hefur valdið miklum töfum
vegna skipulagsmála og andstöðu nágranna.
„Það held ég að hafi verið okkar stærsti
flöskuháls og maður hefur áhyggjur af því
hvort greinin verði búin að ná þessu [í tæka
tíð] þar sem þetta er ekki byggt á einum degi,“
segir Ingvi.
Hvað lyktarmengun varðar, þá segir Ingvi
að hún sé algjörlega óhjákvæmileg. Hins
vegar sé margt hægt að gera til að halda
henni í lágmarki. Með réttum aðferðum getur
lyktarmengunin verið sambærileg því sem
fylgir almennum búrekstri.
Fóðurkostnaður vegur þungt
Fóðurkostnaðurinn er langstærsti útgjaldaliður
íslenskra svínabænda. „Þar sem fóðrið hjá
okkur er að mestu leyti innflutt þá er búinn
að bætast mikill flutningskostnaður ofan á
hráefnisverðið þegar það er komið í sílóið
okkar.“ Þetta atriði segir Ingvi að veiki
samkeppnisstöðu íslenskra svínabænda
gagnvart innflutningi á kjöti. Hann kallar því
eftir því að aukin áhersla verði lögð í að efla
kornrækt. Eins og staðan er í dag segir Ingvi að
ræktunarstyrkir frá hinu opinbera séu minni en
erlendis og við það bætist að uppskerumagnið
á hvern hektara er mun minna.
„Ég hef mjög mikla trú á framtíð
svínaræktarinnar hérna innanlands. Þrátt fyrir
allar áskoranirnar þá á framtíðin að geta verið
björt,“ segir Ingvi. „Maður er búinn að fara
mikið utan og maður sér hvað stjórnvöld þar
eru að þrengja að bændum. Ekki síst vegna
þess hvað jarðvegur víða er orðinn mettaður
af lífrænum áburði og einingarnar orðnar
gríðarlega stórar. Við erum svo ótrúlega
lánsöm að hafa allt þetta landrými og hreinu
orkuna – svo ekki sé nú talað um hvað hún er
orðin ódýr í samanburði við útlönd
Mér dettur ekki í hug að halda því fram
að það sé allt í volli í svínarækt erlendis og
allt vont sem þaðan kemur, en það er samt
staðreynd að við höfum ákveðna hluti sem
við erum að gera með betri hætti,“ segir Ingvi.
Neytandinn þarf að vita hvaðan kjötið kemur
Ingvi Stefáns-
son, svínabóndi
í Teigi.
Þegar öll svínabú landsins verða búin að breyta húsunum hjá sér samkvæmt nýrri aðbúnaðarreglugerð sem tekur gildi í janúar 2025, mun íslensk svínarækt standa öðrum löndum framar hvað
dýravelferð varðar. Hér má sjá nýja gotstíu í Laxárdal þar sem gyltan hefur gott rými til að athafna sig og grísirnir geta verið öruggir í sínu horni. Rétt eftir got er mikil hætta á að gylturnar leggist
á grísina og eru hreyfingar þeirra því takmarkaðar í fimm daga með því að skorða þær milli grindanna sem sjást á myndinni. Myndir / ÁL
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
Búið í Laxárdal er fjölskyldubú. Hér sjást Hörður Harðarson, María Guðný
Guðnadóttir og Björgvin Þór Harðarson. Petrína Þórunn Jónsdóttir, eiginkona
Björgvins, sér um kjötvinnsluna og allt sem að henni snýr.
Svínakjöt er þriðja mest selda kjötið á íslenskum markaði og eru vinsældir
þess stöðugt að aukast. Kjúklingakjöt trónir á toppnum og lambakjöt
rétt þar á eftir. Þrátt fyrir að neytendur velji í síauknum mæli svínakjöt,
þá stendur búgreinin fyrir miklum áskorunum, eins og ákalli um aukinn
innflutning og hertum kröfum um aðbúnað. Tækifæri geta þó leynst í því
síðarnefnda, því þegar öll svínabú landsins verða búin að breyta aðstæðum
í samræmi við nýja aðbúnaðarreglugerð, verður íslensk svínarækt með
forskot á nágrannalöndin hvað varðar dýravelferð.