Bændablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 37

Bændablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023 upp í sláturstærð. Vegna plássleysis þurfa þeir þó að selja öðrum eldisbúum hluta sinna grísa. Nýtt gyltuhús Í Laxárdal var nýlega byggt nýtt gothús. Samkvæmt Herði var kostnaðurinn mjög hár og hefðu bændurnir ekki haft bolmagn til að leggjast í svo dýrar framkvæmdir nema með stuðningi frá ríkinu. Hann segir að ríkið hafi tileinkað 400 milljónum króna í framkvæmdastyrki sem áttu að nýtast til endurbóta á svínabúum. Hörður segir að nú sé þessi sjóður tómur og enn eigi margir eftir að ljúka við sína aðlögun. Björgvin segist sjá talsverðan mun á gyltunum eftir að betri aðstaða var tekin í gagnið. Þær mjólka betur, eru almennt hraustari og grísirnir stækka hraðar. Fóðrunin hefur jafnframt aukist, þar sem gylturnar hreyfa sig meira og aukin hætta er að þær mjólki af sér holdin. Aðstaða gripanna hefur ekki einungis stórlagast, heldur er öll vinnuaðstaða starfsfólksins orðin betri, en svínarækt krefst mikillar umhirðu. Gotstían er ferningslaga. Eitt hornið er stúkað af þannig að grísirnir einir komast þar að og er þar afdrep þar sem þeir geta legið undir hitalampa. Í kringum got er mikil hætta á að gylturnar leggist á grísina. Þess vegna eru stíurnar útbúnar þannig að hægt er að leggja grindur að gyltunum og hreyfingar þeirra takmarkaðar í fimm daga. Annars er rými gyltunnar þannig að hún getur snúið sér í allar áttir og verið í öllum stellingum án þess að þrengt sé að henni. Hver gylta gýtur að jafnaði tvisvar á ári og gefur hvert got af sér á bilinu 12-17 grísi, sem skilar sér í 1,8 tonnum af kjöti á ári. Gylturnar geta sjaldnast hugsað um fleiri en 14 gríslinga hverju sinni og því eru þeir oft færðir á milli gyltna ef þess þarf. Eftir got eru grísirnir í fjórar vikur í stíu með móður sinni. Álagið dreifist jafnt yfir allt árið, en í Laxárdal eru 18 gyltur sem gjóta aðra hverja helgi. Stutt skott minnkar nart Eftir got eru vígtennurnar slípaðar og klippt aftan af skottinu á gríslingunum. Ástæðan fyrir því að betra er að stytta halann er sú að annars fara grísirnir að naga hver annan, sem veldur sársauka og leiðir til sýkingarhættu. Laxárdalsbændur hafa prófað að sleppa skottklippingum með áðurgreindum afleiðingum. Björgvin segir mun meiri dýravelferð í því að stytta skottið, en að gera það ekki. Grísirnir fá verkjalyf áður en halarnir eru styttir og er klippingin framkvæmd með heitri töng, sem stöðvar blæðingu, og eru grísirnir fljótir að jafna sig. Feðgarnir telja að sársaukinn sé minni en lömb finna þegar þau eru mörkuð. Geldingar alfarið hættar Hér áður tíðkaðist að karlkyns gríslingar væru geltir þremur dögum eftir got, en annars kom óbragð af kjötinu – ekki ósvipað hrútabragði. Sú meðferð fékk mikla gagnrýni og var alfarið hætt að gelda grísi á Íslandi árið 2016. Björgvin segir að nú séu þeir bólusettir gegn galtalyktinni með próteinefni sem hægir á vexti eistnanna. Ekki er hægt að kalla þessa meðferð lyfjageldingu þar sem áhrifin ganga til baka að ákveðnum tíma liðnum. Hörður segist ekki vita af öðru landi en Íslandi þar sem geldingum hefur alfarið verið hætt. „Þeir sem tala mest um dýravelferð minnast aldrei á þessa byltingu sem varð þegar við hættum að gelda. Ísland ber af hvað þetta varðar. Innflutt svínakjöt kemur frá löndum þar sem ekki hafa verið settar sambærilegar reglur og hér gilda um geldingar.“ Grísaeldið og tilhleypingar Eftir fráfærur er grísunum komið fyrir í stíum þar sem þeir fá að vaxa í sex til tíu vikur. Þeim er slátrað 150 til 160 daga gömlum. Þá hafa þeir náð nálægt 100 kílóa þunga, sem gefur 80 kílóa fallþunga. Nýju aðbúnaðarreglurnar gera kröfu um aukið rými á hvern grís. Bændur munu einnig þurfa að vera með þéttari gólfgrindur og á hluti stíanna að vera með lokuðu gólfi. Gylturnar fara í tilhleypingadeild eftir fráfærur. Til að örva kynlöng- unina er göltur hafður í sama rými, en gylturnar hafa ekki beinan aðgang að honum, heldur eru þær allar sæddar eftir fimm daga. Þaðan fara þær yfir í fangdeild og fara í sónarskoðun eftir fjórar til sex vikur. Ef þær reynast ekki hafa fest fang, þá fara þær aftur í tilhleypingadeildina. Hafi sæðingin heppnast, þá dvelja þær áfram í fangdeildinni þangað til viku fyrir got. Meðgangan tekur 116 daga, eða þrjá mánuði og þrjár vikur. Fyrsta gotið er oftast þegar gylturnar eru eins árs gamlar og ná þær sex til átta meðgöngum. Hingað til hafa gylturnar verið látnar dvelja meðan á meðgöngunni stóð í einstaklingsbásum – sambærilegum þeim og í básafjósum. Í nýju aðbúnaðarkröfunum er farið fram á að þær séu hafðar í lausagöngu með öðrum gyltum og hefur fangdeildin í Laxárdal verið að hluta til aðlöguð samkvæmt því. „Við finnum mun á gyltunum sem eru lausar og þeim sem eru á básum. Þeim líður flestum betur og þær eiga auðveldara með að hreyfa sig þegar við erum að reka þær á milli húsa,“ segir Hörður. Hann segir þó sumar gyltur þrífast illa í hóp og greinilega líða betur í bás.„Það sem skiptir máli fyrir okkur er að við getum haldið áfram á þessari vegferð, að auka og bæta velferð dýranna,“ segir Hörður, en bætir við að til þess þurfi fjármagn frá hinu opinbera. „Markaðurinn stendur ekki undir þessari fjárfestingu.“ Vilja bæta samkeppnisstöðu Svínabændur fá ekki beingreiðslur frá ríkinu. „Enda er ég á því að við viljum ekki fá svoleiðis. Ef þú ætlar að fá styrk frá ríkinu, þá verða það að vera peningar sem eru settir í einhver ákveðin verkefni. Verkefnagreiðslurnar eiga að snúast um það að gera búgreinina samkeppnishæfari við innflutning,“ segir Björgvin. Aðspurðir telja feðgarnir að 20-30% af því svínakjöti sem neytt sé hérlendis sé innflutt. „Síðurnar eru ábyggilega stærsti hlutinn af þessum innflutningi,“ segir Hörður, en þær fara í beikon. Fúkkalyf Björgvin segir að íslensk svínakjötsframleiðsla hafi þá sérstöðu að notkun sýklalyfja er í algjöru lágmarki. Víða erlendis tíðkast að fúkkalyfjum sé sprautað í allan hópinn að staðaldri, eða að lyfjum sé blandað í fóðrið til að fyrirbyggja sýkingar. Hérlendis er hins vegar ekki gripið til lyfjanna nema gripirnir séu sannarlega veikir og þurfi á þeim að halda. Gyltur þurfi stundum pensillín eftir got en eldisgrísir fá slíkt nær aldrei. Gyltur í fangdeild. Hér sjást gyltur í lausagöngustíu sem búið er að breyta skv. nýjum kröfum, en áður voru þær hafðar á einstaklingsbásum. Oft er hægt að breyta gömlum húsum þar sem gyltur eru í fangdeild, en stundum er ekki komist hjá því að byggja nýtt. Ungir grísir í eldi – hér verða litlar breytingar þegar nýjar aðbúnaðarkröfur taka gildi, fyrir utan auknar kröfur um rými fyrir hvern einstakling. Björgvin segir að í nýja húsnæðinu sé aðstaða gripanna ekki einungis betri, heldur hafi vinnuaðstaða starfsfólksins batnað til muna. Neysla eykst – innlend framleiðsla ekki Bændablaðið setti sig í samband við Geir Gunnar Geirsson, forstjóra Stjörnugríss hf., sem eins og áður segir er stærsti aðilinn í svínarækt á landinu, með samtals 1.900 gyltur og eldi á sjö búum, ásamt sláturhúsi og kjötvinnslu á Kjalarnesi. Hann segir fyrirtækið sitt róa öllum árum að því að vera búið með allar framkvæmdir áður en breyttar kröfur um aðbúnað taka gildi. Mikið skrifræði og heimsfaraldur hafa þó valdið töfum. Geir Gunnar sagði að stjórnvöld hafi verið með mjög ójafna skiptingu á framkvæmdastyrkjunum sem veittir voru ef horft er á hvern grip, en hver gylta hjá honum fékk minni styrk samanborið við aðra svínaræktendur. Hann segir að æskilegast væri ef sem mest af svínakjöti væri framleitt hér innanlands, en vegna samninga við Evrópusambandið, þá mun alltaf eitthvað vera flutt inn. Innlend framleiðsla hefur staðið í stað undanfarin 15 ár, en neyslan á svínakjöti hefur aukist – og er þeirri neysluaukningu svarað með innflutningi. Stjörnugrís byrjaði með kjötvinnslu fyrir nokkrum árum og er hluti afurðanna sem fer þar í gegn innfluttur. Aðspurður af hverju fyrirtæki hans standi í innflutningi, segir Geir Gunnar að hann hafi engra kosta völ. Á hverju ári eru gefnir út tollkvótar og yrði þetta kjöt flutt inn hvort eð er. Með því að hluti afurðanna sé innfluttur náist betri nýting á kjötvinnslunni. Svínabú landsins Bær Sveit Rekstraraðili Búgerð Hagi Gnúpverjahr. í Skeiða- og Gnúpverjahreppi Úlfhéðinn Sigurmundsson Eldi Laxárdalur Gnúpverjahr. í Skeiða- og Gnúpverjahreppi Grís og Flesk ehf. Eldi og gyltur Norðurgarður Skeið í Skeiða- og Gnúpverjahreppi Grís og Flesk ehf. Eldi Sléttaból Skeið í Skeiða- og Gnúpverjahreppi Stjörnugrís hf. Gyltur Bjarnastaðir Grímsnes í Grímsnes- og Grafningshreppi Stjörnugrís hf. Eldi og gyltur Ormstaðir Grímsnes í Grímsnes- og Grafningshreppi Ormstaðir ehf. Eldi Þórustaðir Undir Ingólfsfjalli í Sv.fél. Ölfus Síld og Fiskur ehf. Eldi Minni-Vatnsleysa Vatnsleysuströnd í Sv.fél. Vogum Síld og Fiskur ehf. Eldi og gyltur Brimnes Kjalarnes í Reykjavík Stjörnugrís hf. Gyltur Vallá Kjalarnes í Reykjavík Stjörnugrís hf. Gyltur Brautarholt Kjalarnes í Reykjavík Stjörnugrís hf. Eldi Melar Melasveit í Hvalfjarðarsveit Stjörnugrís hf. Eldi Brúarland Mýrar í Borgarbyggð Búvangur ehf. Eldi Hýrumelur Hálsasveit í Borgarbyggð Stjörnugrís hf. Eldi og gyltur Skriðuland Langidalur í Húnabyggð Síld og Fiskur ehf. Eldi Hlíð Hörgársveit Hlíð ehf. Eldi og gyltur Teigur Eyjafjarðarsveit Teigur ehf. Eldi Pálmholt Reykjadalur í Þingeyjarsveit Arngeir Friðriksson Eldi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.