Bændablaðið - 26.01.2023, Page 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
upp í sláturstærð. Vegna plássleysis
þurfa þeir þó að selja öðrum eldisbúum
hluta sinna grísa.
Nýtt gyltuhús
Í Laxárdal var nýlega byggt nýtt
gothús. Samkvæmt Herði var
kostnaðurinn mjög hár og hefðu
bændurnir ekki haft bolmagn til að
leggjast í svo dýrar framkvæmdir nema
með stuðningi frá ríkinu. Hann segir
að ríkið hafi tileinkað 400 milljónum
króna í framkvæmdastyrki sem áttu
að nýtast til endurbóta á svínabúum.
Hörður segir að nú sé þessi sjóður
tómur og enn eigi margir eftir að ljúka
við sína aðlögun.
Björgvin segist sjá talsverðan mun
á gyltunum eftir að betri aðstaða var
tekin í gagnið. Þær mjólka betur, eru
almennt hraustari og grísirnir stækka
hraðar. Fóðrunin hefur jafnframt
aukist, þar sem gylturnar hreyfa sig
meira og aukin hætta er að þær mjólki
af sér holdin. Aðstaða gripanna hefur
ekki einungis stórlagast, heldur er öll
vinnuaðstaða starfsfólksins orðin betri,
en svínarækt krefst mikillar umhirðu.
Gotstían er ferningslaga. Eitt hornið
er stúkað af þannig að grísirnir einir
komast þar að og er þar afdrep þar
sem þeir geta legið undir hitalampa.
Í kringum got er mikil hætta á að
gylturnar leggist á grísina. Þess vegna
eru stíurnar útbúnar þannig að hægt
er að leggja grindur að gyltunum og
hreyfingar þeirra takmarkaðar í fimm
daga. Annars er rými gyltunnar þannig
að hún getur snúið sér í allar áttir og
verið í öllum stellingum án þess að
þrengt sé að henni. Hver gylta gýtur að
jafnaði tvisvar á ári og gefur hvert got
af sér á bilinu 12-17 grísi, sem skilar
sér í 1,8 tonnum af kjöti á ári. Gylturnar
geta sjaldnast hugsað um fleiri en 14
gríslinga hverju sinni og því eru þeir
oft færðir á milli gyltna ef þess þarf.
Eftir got eru grísirnir í fjórar vikur í
stíu með móður sinni. Álagið dreifist
jafnt yfir allt árið, en í Laxárdal eru
18 gyltur sem gjóta aðra hverja helgi.
Stutt skott minnkar nart
Eftir got eru vígtennurnar slípaðar og
klippt aftan af skottinu á gríslingunum.
Ástæðan fyrir því að betra er að stytta
halann er sú að annars fara grísirnir
að naga hver annan, sem veldur
sársauka og leiðir til sýkingarhættu.
Laxárdalsbændur hafa prófað að sleppa
skottklippingum með áðurgreindum
afleiðingum. Björgvin segir mun meiri
dýravelferð í því að stytta skottið, en
að gera það ekki.
Grísirnir fá verkjalyf áður en
halarnir eru styttir og er klippingin
framkvæmd með heitri töng, sem
stöðvar blæðingu, og eru grísirnir
fljótir að jafna sig. Feðgarnir telja að
sársaukinn sé minni en lömb finna
þegar þau eru mörkuð.
Geldingar alfarið hættar
Hér áður tíðkaðist að karlkyns
gríslingar væru geltir þremur dögum
eftir got, en annars kom óbragð af
kjötinu – ekki ósvipað hrútabragði.
Sú meðferð fékk mikla gagnrýni og
var alfarið hætt að gelda grísi á Íslandi
árið 2016. Björgvin segir að nú séu
þeir bólusettir gegn galtalyktinni með
próteinefni sem hægir á vexti eistnanna.
Ekki er hægt að kalla þessa meðferð
lyfjageldingu þar sem áhrifin ganga til
baka að ákveðnum tíma liðnum.
Hörður segist ekki vita af öðru
landi en Íslandi þar sem geldingum
hefur alfarið verið hætt. „Þeir sem tala
mest um dýravelferð minnast aldrei
á þessa byltingu sem varð þegar við
hættum að gelda. Ísland ber af hvað
þetta varðar. Innflutt svínakjöt kemur
frá löndum þar sem ekki hafa verið
settar sambærilegar reglur og hér gilda
um geldingar.“
Grísaeldið og tilhleypingar
Eftir fráfærur er grísunum komið fyrir
í stíum þar sem þeir fá að vaxa í sex
til tíu vikur. Þeim er slátrað 150 til 160
daga gömlum. Þá hafa þeir náð nálægt
100 kílóa þunga, sem gefur 80 kílóa
fallþunga. Nýju aðbúnaðarreglurnar
gera kröfu um aukið rými á hvern
grís. Bændur munu einnig þurfa að
vera með þéttari gólfgrindur og á hluti
stíanna að vera með lokuðu gólfi.
Gylturnar fara í tilhleypingadeild
eftir fráfærur. Til að örva kynlöng-
unina er göltur hafður í sama rými, en
gylturnar hafa ekki beinan aðgang að
honum, heldur eru þær allar sæddar
eftir fimm daga. Þaðan fara þær yfir
í fangdeild og fara í sónarskoðun eftir
fjórar til sex vikur. Ef þær reynast
ekki hafa fest fang, þá fara þær aftur
í tilhleypingadeildina. Hafi sæðingin
heppnast, þá dvelja þær áfram í
fangdeildinni þangað til viku fyrir
got. Meðgangan tekur 116 daga, eða
þrjá mánuði og þrjár vikur. Fyrsta
gotið er oftast þegar gylturnar eru
eins árs gamlar og ná þær sex til átta
meðgöngum.
Hingað til hafa gylturnar verið
látnar dvelja meðan á meðgöngunni
stóð í einstaklingsbásum –
sambærilegum þeim og í básafjósum. Í
nýju aðbúnaðarkröfunum er farið fram
á að þær séu hafðar í lausagöngu með
öðrum gyltum og hefur fangdeildin
í Laxárdal verið að hluta til aðlöguð
samkvæmt því.
„Við finnum mun á gyltunum sem
eru lausar og þeim sem eru á básum.
Þeim líður flestum betur og þær eiga
auðveldara með að hreyfa sig þegar
við erum að reka þær á milli húsa,“
segir Hörður. Hann segir þó sumar
gyltur þrífast illa í hóp og greinilega
líða betur í bás.„Það sem skiptir máli
fyrir okkur er að við getum haldið
áfram á þessari vegferð, að auka og
bæta velferð dýranna,“ segir Hörður, en
bætir við að til þess þurfi fjármagn frá
hinu opinbera. „Markaðurinn stendur
ekki undir þessari fjárfestingu.“
Vilja bæta samkeppnisstöðu
Svínabændur fá ekki beingreiðslur
frá ríkinu. „Enda er ég á því að við
viljum ekki fá svoleiðis. Ef þú ætlar
að fá styrk frá ríkinu, þá verða það að
vera peningar sem eru settir í einhver
ákveðin verkefni. Verkefnagreiðslurnar
eiga að snúast um það að gera
búgreinina samkeppnishæfari við
innflutning,“ segir Björgvin.
Aðspurðir telja feðgarnir að
20-30% af því svínakjöti sem neytt
sé hérlendis sé innflutt. „Síðurnar eru
ábyggilega stærsti hlutinn af þessum
innflutningi,“ segir Hörður, en þær fara
í beikon.
Fúkkalyf
Björgvin segir að íslensk
svínakjötsframleiðsla hafi þá sérstöðu
að notkun sýklalyfja er í algjöru
lágmarki. Víða erlendis tíðkast að
fúkkalyfjum sé sprautað í allan hópinn
að staðaldri, eða að lyfjum sé blandað
í fóðrið til að fyrirbyggja sýkingar.
Hérlendis er hins vegar ekki gripið til
lyfjanna nema gripirnir séu sannarlega
veikir og þurfi á þeim að halda. Gyltur
þurfi stundum pensillín eftir got en
eldisgrísir fá slíkt nær aldrei.
Gyltur í fangdeild. Hér sjást gyltur í lausagöngustíu sem búið er að breyta
skv. nýjum kröfum, en áður voru þær hafðar á einstaklingsbásum. Oft er
hægt að breyta gömlum húsum þar sem gyltur eru í fangdeild, en stundum
er ekki komist hjá því að byggja nýtt.
Ungir grísir í eldi – hér verða litlar breytingar þegar nýjar aðbúnaðarkröfur
taka gildi, fyrir utan auknar kröfur um rými fyrir hvern einstakling.
Björgvin segir að í nýja húsnæðinu sé aðstaða gripanna ekki einungis betri,
heldur hafi vinnuaðstaða starfsfólksins batnað til muna.
Neysla eykst – innlend framleiðsla ekki
Bændablaðið setti sig í samband við Geir Gunnar Geirsson,
forstjóra Stjörnugríss hf., sem eins og áður segir er stærsti aðilinn
í svínarækt á landinu, með samtals 1.900 gyltur og eldi á sjö búum,
ásamt sláturhúsi og kjötvinnslu á Kjalarnesi. Hann segir fyrirtækið
sitt róa öllum árum að því að vera búið með allar framkvæmdir
áður en breyttar kröfur um aðbúnað taka gildi. Mikið skrifræði og
heimsfaraldur hafa þó valdið töfum. Geir Gunnar sagði að stjórnvöld
hafi verið með mjög ójafna skiptingu á framkvæmdastyrkjunum sem
veittir voru ef horft er á hvern grip, en hver gylta hjá honum fékk
minni styrk samanborið við aðra svínaræktendur.
Hann segir að æskilegast væri ef sem mest af svínakjöti væri
framleitt hér innanlands, en vegna samninga við Evrópusambandið,
þá mun alltaf eitthvað vera flutt inn. Innlend framleiðsla hefur staðið
í stað undanfarin 15 ár, en neyslan á svínakjöti hefur aukist – og er
þeirri neysluaukningu svarað með innflutningi.
Stjörnugrís byrjaði með kjötvinnslu fyrir nokkrum árum og er hluti
afurðanna sem fer þar í gegn innfluttur. Aðspurður af hverju fyrirtæki
hans standi í innflutningi, segir Geir Gunnar að hann hafi engra
kosta völ. Á hverju ári eru gefnir út tollkvótar og yrði þetta kjöt flutt
inn hvort eð er. Með því að hluti afurðanna sé innfluttur náist betri
nýting á kjötvinnslunni.
Svínabú landsins
Bær Sveit Rekstraraðili Búgerð
Hagi Gnúpverjahr. í Skeiða- og Gnúpverjahreppi Úlfhéðinn Sigurmundsson Eldi
Laxárdalur Gnúpverjahr. í Skeiða- og Gnúpverjahreppi Grís og Flesk ehf. Eldi og gyltur
Norðurgarður Skeið í Skeiða- og Gnúpverjahreppi Grís og Flesk ehf. Eldi
Sléttaból Skeið í Skeiða- og Gnúpverjahreppi Stjörnugrís hf. Gyltur
Bjarnastaðir Grímsnes í Grímsnes- og Grafningshreppi Stjörnugrís hf. Eldi og gyltur
Ormstaðir Grímsnes í Grímsnes- og Grafningshreppi Ormstaðir ehf. Eldi
Þórustaðir Undir Ingólfsfjalli í Sv.fél. Ölfus Síld og Fiskur ehf. Eldi
Minni-Vatnsleysa Vatnsleysuströnd í Sv.fél. Vogum Síld og Fiskur ehf. Eldi og gyltur
Brimnes Kjalarnes í Reykjavík Stjörnugrís hf. Gyltur
Vallá Kjalarnes í Reykjavík Stjörnugrís hf. Gyltur
Brautarholt Kjalarnes í Reykjavík Stjörnugrís hf. Eldi
Melar Melasveit í Hvalfjarðarsveit Stjörnugrís hf. Eldi
Brúarland Mýrar í Borgarbyggð Búvangur ehf. Eldi
Hýrumelur Hálsasveit í Borgarbyggð Stjörnugrís hf. Eldi og gyltur
Skriðuland Langidalur í Húnabyggð Síld og Fiskur ehf. Eldi
Hlíð Hörgársveit Hlíð ehf. Eldi og gyltur
Teigur Eyjafjarðarsveit Teigur ehf. Eldi
Pálmholt Reykjadalur í Þingeyjarsveit Arngeir Friðriksson Eldi