Bændablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 66
66 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
Eitt af mörgum vandamálum
heimsins er víst örplastið. Þessar
litlu agnir sem finnast hvarvetna
núorðið, bæði í neysluvatni, skolpi
og jafnvel svífandi um loftið, þökk
sé gerviefnum teppa, sófa eða
annars ófagnaðar sem okkur þykir
nauðsynlegur.
Taka skal þó fram að neysluvatn
víðast á Íslandi er úr lindum sem
síast hafa í gegnum jarðlög á löngum
tíma. Er því afar ólíklegt að slíkt
vatn innihaldi plastagnir eða
aðrar trefjar enn sem komið er.
Við viljum auðvitað að allt
sé sem hreinast og fínast hjá
okkur og á meðan við drekkum
okkar (enn þá) tiltölulega örplasts-
og trefjalausa lindarvatn stingum við
gjarnan í þvottavélina. Setjum svo
í þurrkarann. En þarna leynast
akkúrat þessir smágerðu óvinir.
Til dæmis, ef þvottavél er fyllt
þvotti úr gerviefni (einum versta
mengunarvaldinum) leysast rúmlega
700.00 þúsund örtrefja út í skolvatnið.
Að minnsta kosti samkvæmt
rannsókn sem framkvæmd var
af teymi Plymouth-háskólans í
Bretlandi fyrir um fimm árum.
Þvottur sem settur er í þurrkara er
svo enn frekari skaðvaldur, en loftið
sem kemur úr því er jafnan gegnsósa
af þessum litlu óvinum okkar.
Og hvað getum við gert?
Með þetta í huga hafa framleiðendur
þvottavéla og þurrkara reynt að haga
hönnun sinni og þróun tækja í þá
áttina að okkur muni ekki beinlínis
lifandi drepa.
Nýverið kynnti
fyrirtækið Samsung
nýstárlega þvottavél
fyrir neytendum
sínum, nefnilega
þvottavél sem á að draga
úr þessum örplastsfaraldri.
Segir svo í fréttatilkynningu:
„Snemma á síðasta ári
hittust yfirmenn frá Samsung og
fatafyrirtækinu Patagonia til að
hefja viðræður um þróun lausnar
með það fyrir augum að minnka
losun örplasts úr fötum við þvott.
Örplast hefur mikil og skaðleg áhrif
á umhverfið og ógnar ekki aðeins
vistkerfi hafsins heldur einnig heilsu
manna. Talið er að á hafsbotninum
einum séu yfir 14 milljónir tonna
af örplasti, þar sem 35 prósent
af örplasti sjávar koma úr þvotti
fatnaðar gerviefna. Vísindamenn
hafa einnig komist að því að menn
neyta jafngildis eins kreditkorts af
örplasti vikulega úr loftinu sem við
öndum að okkur og vatninu sem við
drekkum". (Þá bandarískir borgarar,
ekki við íslensku).
Tæknilegur sannleikur
Til viðbótar við samstarf fyrirtækis
Patagoniu komu að hönnuninni
umhverfisverndarsamtökin Ocean
Wise Plastics Lab. Þau tóku sig til og
gátu sannreynt þróun tæknideildar
Samsung þegar kom að prófunum
er vörðuðu árangursríkustu þvotta-
aðferðina til að draga úr úthellingu
örplasts – sem og staðalinn til að
mæla hversu áhrifarík lækkunin var.
Forsvarsmenn Samsung vilja
svo minna fólk á að í stað þess
að þvo lítið magn af fötum oft er
skynsamlegra að þvo mikið magn
fatnaðar í einu og velja lægra
vatnshitastig fyrir föt sem eru ekki
of skítug, en slíkt getur sparað bæði
orku og vatnsmagnið sem notað er.
En þetta vita nú margir.
Drögum úr mengun, notum
minna þvottaefni ...
Að auki, og einnig sem margir vita,
minna hinir sömu forsvarsmenn á
að ekki er ráðlegt að nota of mikið
þvottaefni við þvott og segja stoltir
frá því að þvottavélar Samsung séu
með gervigreindarþvottastillingu
sem mælir þyngd þvottarins og
óhreinindi til að nota sjálfkrafa
rétt magn af þvottaefni. Til viðbótar
við það að draga verulega úr
örtrefjamengun.
Með framleiðslu IFA 2022 sýndu
forsvarsmenn Samsung ekki aðeins
hversu framarlega þeir eru er kemur
að tækninýjungum, heldur hvaða
áherslur þeir hafa á framtíðarsýn
sína í þágu umhverfisins.
Í stefnu fyrirtækisins kemur
fram að þeir muni halda ótrauðir
áfram að gera jörðina heilbrigðari
og hjálpa notendum að gera slíkt hið
sama með samstarfi sem flestra og
þá nýstárlegum vörum. /SP
Gráþröstur eru algengir varpfuglar um Skandinavíu og austur um Evrópu og Asíu. Hér á Íslandi eru þeir mjög reglulegir haust- og vetrargestir. Þeir fuglar sem dvelja hérna á Íslandi yfir vetrarmánuðina halda
mest til í görðum þar sem fuglum er gefið. Þeir sækja mjög mikið í epli en einnig aðra ávexti ásamt feitmeti. Fyrir utan þessar matargjafir sem þeir þiggja á veturna þá er fæðuvalið þeirra mjög svipað og hjá
skógarþröstum. Þegar þeir komast í garða þar sem fuglum er reglulega gefið, verða þeir nokkuð frekir og eiga það til að hrekja í burtu aðra fugla. Þessir árekstrar verða aðallega við fugla af svipaðri stærð eins
og skógarþresti og svartþresti. Frá 1950 hafa gráþrestir orpið hérna óreglulega og stundum myndast litlir staðbundnir stofnar. Um nokkurt skeið hefur verið lítill staðbundinn stofn á Akureyri þar sem örfá pör
verpa. En þrátt fyrir það virðist þeim hvorki fjölga né breiða úr sér. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson
FRÆÐSLA
Þvottavélar í viðbragðsstöðu:
Örplast ætlar alla að drepa
Nýja þvottavélin hefur hlotið nafnið AI Ecobubble og ef vel er leitað hérlendis
má sjálfsagt finna þann grip.