Bændablaðið - 26.01.2023, Qupperneq 66

Bændablaðið - 26.01.2023, Qupperneq 66
66 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023 Eitt af mörgum vandamálum heimsins er víst örplastið. Þessar litlu agnir sem finnast hvarvetna núorðið, bæði í neysluvatni, skolpi og jafnvel svífandi um loftið, þökk sé gerviefnum teppa, sófa eða annars ófagnaðar sem okkur þykir nauðsynlegur. Taka skal þó fram að neysluvatn víðast á Íslandi er úr lindum sem síast hafa í gegnum jarðlög á löngum tíma. Er því afar ólíklegt að slíkt vatn innihaldi plastagnir eða aðrar trefjar enn sem komið er. Við viljum auðvitað að allt sé sem hreinast og fínast hjá okkur og á meðan við drekkum okkar (enn þá) tiltölulega örplasts- og trefjalausa lindarvatn stingum við gjarnan í þvottavélina. Setjum svo í þurrkarann. En þarna leynast akkúrat þessir smágerðu óvinir. Til dæmis, ef þvottavél er fyllt þvotti úr gerviefni (einum versta mengunarvaldinum) leysast rúmlega 700.00 þúsund örtrefja út í skolvatnið. Að minnsta kosti samkvæmt rannsókn sem framkvæmd var af teymi Plymouth-háskólans í Bretlandi fyrir um fimm árum. Þvottur sem settur er í þurrkara er svo enn frekari skaðvaldur, en loftið sem kemur úr því er jafnan gegnsósa af þessum litlu óvinum okkar. Og hvað getum við gert? Með þetta í huga hafa framleiðendur þvottavéla og þurrkara reynt að haga hönnun sinni og þróun tækja í þá áttina að okkur muni ekki beinlínis lifandi drepa. Nýverið kynnti fyrirtækið Samsung nýstárlega þvottavél fyrir neytendum sínum, nefnilega þvottavél sem á að draga úr þessum örplastsfaraldri. Segir svo í fréttatilkynningu: „Snemma á síðasta ári hittust yfirmenn frá Samsung og fatafyrirtækinu Patagonia til að hefja viðræður um þróun lausnar með það fyrir augum að minnka losun örplasts úr fötum við þvott. Örplast hefur mikil og skaðleg áhrif á umhverfið og ógnar ekki aðeins vistkerfi hafsins heldur einnig heilsu manna. Talið er að á hafsbotninum einum séu yfir 14 milljónir tonna af örplasti, þar sem 35 prósent af örplasti sjávar koma úr þvotti fatnaðar gerviefna. Vísindamenn hafa einnig komist að því að menn neyta jafngildis eins kreditkorts af örplasti vikulega úr loftinu sem við öndum að okkur og vatninu sem við drekkum". (Þá bandarískir borgarar, ekki við íslensku). Tæknilegur sannleikur Til viðbótar við samstarf fyrirtækis Patagoniu komu að hönnuninni umhverfisverndarsamtökin Ocean Wise Plastics Lab. Þau tóku sig til og gátu sannreynt þróun tæknideildar Samsung þegar kom að prófunum er vörðuðu árangursríkustu þvotta- aðferðina til að draga úr úthellingu örplasts – sem og staðalinn til að mæla hversu áhrifarík lækkunin var. Forsvarsmenn Samsung vilja svo minna fólk á að í stað þess að þvo lítið magn af fötum oft er skynsamlegra að þvo mikið magn fatnaðar í einu og velja lægra vatnshitastig fyrir föt sem eru ekki of skítug, en slíkt getur sparað bæði orku og vatnsmagnið sem notað er. En þetta vita nú margir. Drögum úr mengun, notum minna þvottaefni ... Að auki, og einnig sem margir vita, minna hinir sömu forsvarsmenn á að ekki er ráðlegt að nota of mikið þvottaefni við þvott og segja stoltir frá því að þvottavélar Samsung séu með gervigreindarþvottastillingu sem mælir þyngd þvottarins og óhreinindi til að nota sjálfkrafa rétt magn af þvottaefni. Til viðbótar við það að draga verulega úr örtrefjamengun. Með framleiðslu IFA 2022 sýndu forsvarsmenn Samsung ekki aðeins hversu framarlega þeir eru er kemur að tækninýjungum, heldur hvaða áherslur þeir hafa á framtíðarsýn sína í þágu umhverfisins. Í stefnu fyrirtækisins kemur fram að þeir muni halda ótrauðir áfram að gera jörðina heilbrigðari og hjálpa notendum að gera slíkt hið sama með samstarfi sem flestra og þá nýstárlegum vörum. /SP Gráþröstur eru algengir varpfuglar um Skandinavíu og austur um Evrópu og Asíu. Hér á Íslandi eru þeir mjög reglulegir haust- og vetrargestir. Þeir fuglar sem dvelja hérna á Íslandi yfir vetrarmánuðina halda mest til í görðum þar sem fuglum er gefið. Þeir sækja mjög mikið í epli en einnig aðra ávexti ásamt feitmeti. Fyrir utan þessar matargjafir sem þeir þiggja á veturna þá er fæðuvalið þeirra mjög svipað og hjá skógarþröstum. Þegar þeir komast í garða þar sem fuglum er reglulega gefið, verða þeir nokkuð frekir og eiga það til að hrekja í burtu aðra fugla. Þessir árekstrar verða aðallega við fugla af svipaðri stærð eins og skógarþresti og svartþresti. Frá 1950 hafa gráþrestir orpið hérna óreglulega og stundum myndast litlir staðbundnir stofnar. Um nokkurt skeið hefur verið lítill staðbundinn stofn á Akureyri þar sem örfá pör verpa. En þrátt fyrir það virðist þeim hvorki fjölga né breiða úr sér. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson FRÆÐSLA Þvottavélar í viðbragðsstöðu: Örplast ætlar alla að drepa Nýja þvottavélin hefur hlotið nafnið AI Ecobubble og ef vel er leitað hérlendis má sjálfsagt finna þann grip.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.