Bændablaðið - 26.01.2023, Síða 26

Bændablaðið - 26.01.2023, Síða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023 LÍF & STARF Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni: Félagslíf og hagsmunir í forgrunni „Hluti af þessum námskeiðum er kynning á okkar starfsemi og sú staðreynd að fólk eldist ekkert við að ganga í félagið þó heitið vísi á háan aldur. Aldursfordómar viðgangast því miður enn þá, ekki síst innra með okkur sjálfum og vill fólk oft ekki fá stimpilinn „eldri borgari“. En við hækkum öll í aldri og þarna er einungis verið að bjóða upp á félagsskap með jafnöldrum. Fólki sem er á svipuðum stað í lífinu og hefur svipuð áhugamál,“ segir Dýrleif. Í Félagi eldri borgara Reykja- víkur og nágrennis er í raun þver- skurður af þjóðfélaginu. „Fólk er á aldrinum sextíu ára til hundrað og því í raun um þrjár kynslóðir að ræða. Við getum stuðlað að því sem við viljum gera í félaginu, nýjum hugmyndum er vel tekið og því einskorðast félagslífið ekki að öðru en því sem okkur hugnast. “ Minnkandi virkni? Eða hvað? Orðasambandið eldri borgari, eins og Dýrleif bendir á, er oft og tíðum bendlað við minnkandi virkni sem þjóðfélagsþegn en sú hugmynd er sem betur fer á undanhaldi. Að stíga skrefið frá vinnumarkaðinum þykir æ oftar vera aðlaðandi hugmynd, fremur en hitt, þar sem hægt er að njóta lífsins við hin ýmsu hugðarefni. Landssamband eldri borgara eru svo regnhlífarsamtök sem standa að hagsmunamálum eldri borgara og eru meðlimir Félags eldri borgara í Reykjavík um helmingur þeirra eins og staðan er núna. Rennur ákveðinn hluti félagsgjalda allra félaga eldri borgara til Landssambandsins, sem á móti þjónustar þau á landsvísu. „Baráttumál kjara og hagsmunir eru hátt á baugi enda minnka oft, því miður, réttindi þeirra sem stigið hafa af vinnumarkaðnum sökum aldurs. Landssambandið stýrir slíkri baráttu, enda eiga félögin þarna sameiginlegt málefni sem vinna þarf með og sem varðar þau eðlilega afar mikið. Nokkrir fulltrúar sem koma frá okkur hér hjá FEB, svo og stærri félaganna á landinu, hafa staðið sem ein rödd ásamt Landssambandinu þegar kemur að hagsmunabaráttunni, enda af svo mörgu að taka þegar kemur að skerðingum,“ segir Dýrleif. Landssambandið heldur svo ársfundi þar sem fulltrúar félaganna koma saman og bera saman bækur sínar, um 160 manns talsins. „Rétt er að benda á að vefsíða þeirra veitir miklar og greinargóðar upplýsingar og má þar einnig finna afsláttarbók sem í boði er fyrir félaga á landsvísu.“ Öflug mæting, virkt félagslíf Dýrleif segir, að á meðan faraldri Covid veirunnar stóð, hafi fulltrúar þó hafið að nýta sér fjarfundi Teams – yfir netið – og hefur það fundaform haldist, enda stundum auðveldara en að fara á staðinn og hentar gjarnan betur þeim sem búa utan byggðar. Hefur það orðið til fjölgunar funda og öflugri mætingar. Öllum er frjálst að ganga til liðs við Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni og einnig mega allir landsmenn skrá sig í hvaða félag sem er, hvar sem þeir eru staðsettir á landinu. Að sama skapi má sækja félagsstarf og skemmtanir á landsvísu – félagsmenn fái þó afslátt á uppákomum og öðru innan síns félags vegna ársgjaldsins. Sumir kjósa að vera í fleiri en einu félagi – borga ársgjald og fá þá afslætti á því sem í boði er. Félagsgjöld Félags eldri borgara í Reykjavík eru 5.000 krónur en vanaleg ársgjöld félaga á landsvísu eru á bilinu 2–3.000 krónur Rétt er að taka fram að mikill rekstrarmunur er á félögunum þar sem önnur félög fá langflest mikinn styrk frá sínu bæjarfélagi meðan FEB fær enga reglulega rekstrarstyrki frá Reykjavíkurborg. Rúmur helmingur eldri borgara í Reykjavík í FEB Dýrleif kemur inn á fjölda félags- manna í FEB, mót hlutfallslegum fjölda íbúa höfuðborgarinnar. Það er nokkuð hátt, eða 14.600 af þeim 26 þúsundum sem eru sextíu ára gamlir -og eldri, á Íslandi. Stærstur prósentufjöldi félagsins eru einstaklingar á aldrinum 70–80 Sigrún Pétursdóttir sigrunpeturs@bondi.is Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB) er opið öllum þeim sem náð hafa 60 ára aldri, sem og mökum þeirra, yngri jafnt sem eldri. Er um stóran og skemmtilegan hóp að ræða, félagatal alls 14.600, sem bæði nýtur lífsins til hins ýtrasta við hin ýmsu skemmtilegheit auk þess að gæta hagsmuna sinna og kjaramála í samvinnu við Landssamband eldri borgara. Dýrleif Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri FEB, segir hér lítillega frá starfsemi félagsins, en hún hefur undanfarið verið með kynningu á því á starfslokanámskeiðum sem haldin eru á vegum fyrirtækja, þá ætlað þeim sem eru að stíga fyrstu skrefin í hóp eftirlaunaþega. ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA Í YFIR 50 ÁR Kistur ætlaðar undir salt eða sand á hálar gangstéttar og vegi. Nýtast einnig vel sem geymsluílát á leikskólum, íþróttavöllum, sundlaugum, við ölbýlishús og víðar. Staflast hver ofan í aðra sem minnkar stórlega rúmmál bæði við flutning og geymslu. Við bjóðum við einnig upp á salt í kisturnar svo þú getur komið til okkar og fengið fulla kistu af salti. Allt sem þú þarft í einni ferð! SALT- OG SANDKISTUR Borgarplast.is borgarplast@borgarplast.is Dýrleif Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni. Öll eldumst við nú Á vefsíðu Landlæknisembættisins kemur fram að einmanaleiki og tómarúm eiga ekki að vera fylgi- fiskar þess að eldast. Mikilvægt er að vera vakandi fyrir merkjum um versnandi geðheilsu eldra fólks, svo sem minnisskerðingu, pirringi, svefnvanda, kvíða, depurð eða vanvirkni. Í nútímasamfélagi eru umskipti ævistarfsins og fyrstu skrefin í heim eldri borgara oft vand- meðfarin, þó þessi þáttaskil séu óumflýjanleg. Fyrir suma eru skrefin kvíðvænleg og full óvissu, margir finna fyrir einmanaleika og depurð, jafnvel reiði. Upplifunin um að vera eða verða byrði, gagnslaus og án tilgangs getur skotið upp kollinum, en ekki er óeðlilegt að finna fyrir slíkri vanlíðan við þessa breytingu. Við langvinna vanlíðan er þó mikilvægt að leita sér aðstoðar enda hvorki þunglyndi né kvíði eðlilegir förunautar ef um viðvarandi ástand er að ræða. Þeir sem bera titilinn eldri borgari bera það þó oft með sér að nú séu bestu árin eftir og sjá fyrir sér að njóta þeirra til hins ýtrasta. Margir takast á við ný viðfangsefni, kynna sér eða læra eitthvað sem hefur lengi blundað í þeim og láta drauma rætast. Að finna lífi sínu tilgang á jafnt við á öllum aldursskeiðum og felst farsæl öldrun meðal annars í því að rækta hæfileika sína, leggja áherslu á þau lífsgæði sem eru og tækifæri sem fylgja efri árum. Einhverjir sakna félagsskapar, enda tengsl við vinnufélaga rofnað að nokkru en þá er um að gera að líta sér nær og brydda upp á nýjum tengingum. Samkvæmt Hagstofunni eru tölur þjóðarinnar á þá vegu að þegnar landsins, sextugir og eldri, eru alls 77.332 talsins. Vert er því að geta þess að víða um land má finna félög eldri borgara. Á landsvísu eru þau skráð alls 55 talsins og nokkuð mikil virkni er í þeim allflestum. Þar má sækja félagsskap jafn- aldra, kynnast nýju fólki og e.t.v. læra nýtt tómstundagaman. Þeir eru ábúðarfullir höfðingjarnir í eldhúsinu þeir Bjarni Hjartarson, Sigmundur Stefánsson, Baldur Einarsson auk kennarans og áhugakokksins, hans Kristjáns E. Guðmundssonar. Einnig glittir í Ingólf Antonsson. Salur félagsins er bæði rúmur og vel útbúinn fyrir hvað sem er.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.