Bændablaðið - 26.01.2023, Qupperneq 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
LÍF & STARF
Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni:
Félagslíf og hagsmunir í forgrunni
„Hluti af þessum námskeiðum er
kynning á okkar starfsemi og sú
staðreynd að fólk eldist ekkert við að
ganga í félagið þó heitið vísi á háan
aldur. Aldursfordómar viðgangast
því miður enn þá, ekki síst innra með
okkur sjálfum og vill fólk oft ekki fá
stimpilinn „eldri borgari“.
En við hækkum öll í aldri og
þarna er einungis verið að bjóða
upp á félagsskap með jafnöldrum.
Fólki sem er á svipuðum stað í
lífinu og hefur svipuð áhugamál,“
segir Dýrleif.
Í Félagi eldri borgara Reykja-
víkur og nágrennis er í raun þver-
skurður af þjóðfélaginu. „Fólk er
á aldrinum sextíu ára til hundrað
og því í raun um þrjár kynslóðir að
ræða. Við getum stuðlað að því sem
við viljum gera í félaginu, nýjum
hugmyndum er vel tekið og því
einskorðast félagslífið ekki að öðru
en því sem okkur hugnast. “
Minnkandi virkni? Eða hvað?
Orðasambandið eldri borgari, eins
og Dýrleif bendir á, er oft og tíðum
bendlað við minnkandi virkni sem
þjóðfélagsþegn en sú hugmynd er
sem betur fer á undanhaldi. Að stíga
skrefið frá vinnumarkaðinum þykir
æ oftar vera aðlaðandi hugmynd,
fremur en hitt, þar sem hægt er að
njóta lífsins við hin ýmsu hugðarefni.
Landssamband eldri borgara eru
svo regnhlífarsamtök sem standa að
hagsmunamálum eldri borgara og
eru meðlimir Félags eldri borgara í
Reykjavík um helmingur þeirra eins
og staðan er núna. Rennur ákveðinn
hluti félagsgjalda allra félaga eldri
borgara til Landssambandsins, sem
á móti þjónustar þau á landsvísu.
„Baráttumál kjara og hagsmunir
eru hátt á baugi enda minnka oft,
því miður, réttindi þeirra sem
stigið hafa af vinnumarkaðnum
sökum aldurs.
Landssambandið stýrir slíkri
baráttu, enda eiga félögin þarna
sameiginlegt málefni sem vinna
þarf með og sem varðar þau eðlilega
afar mikið. Nokkrir fulltrúar sem
koma frá okkur hér hjá FEB, svo
og stærri félaganna á landinu,
hafa staðið sem ein rödd ásamt
Landssambandinu þegar kemur
að hagsmunabaráttunni, enda af
svo mörgu að taka þegar kemur að
skerðingum,“ segir Dýrleif.
Landssambandið heldur svo
ársfundi þar sem fulltrúar félaganna
koma saman og bera saman bækur
sínar, um 160 manns talsins.
„Rétt er að benda á að vefsíða
þeirra veitir miklar og greinargóðar
upplýsingar og má þar einnig finna
afsláttarbók sem í boði er fyrir félaga
á landsvísu.“
Öflug mæting, virkt félagslíf
Dýrleif segir, að á meðan faraldri
Covid veirunnar stóð, hafi fulltrúar
þó hafið að nýta sér fjarfundi
Teams – yfir netið – og hefur það
fundaform haldist, enda stundum
auðveldara en að fara á staðinn og
hentar gjarnan betur þeim sem búa
utan byggðar. Hefur það orðið til
fjölgunar funda og öflugri mætingar.
Öllum er frjálst að ganga til liðs
við Félag eldri borgara í Reykjavík
og nágrenni og einnig mega allir
landsmenn skrá sig í hvaða félag
sem er, hvar sem þeir eru staðsettir
á landinu. Að sama skapi má
sækja félagsstarf og skemmtanir á
landsvísu – félagsmenn fái þó afslátt
á uppákomum og öðru innan síns
félags vegna ársgjaldsins.
Sumir kjósa að vera í fleiri en
einu félagi – borga ársgjald og
fá þá afslætti á því sem í boði er.
Félagsgjöld Félags eldri borgara
í Reykjavík eru 5.000 krónur en
vanaleg ársgjöld félaga á landsvísu
eru á bilinu 2–3.000 krónur
Rétt er að taka fram að mikill
rekstrarmunur er á félögunum
þar sem önnur félög fá langflest
mikinn styrk frá sínu bæjarfélagi
meðan FEB fær enga reglulega
rekstrarstyrki frá Reykjavíkurborg.
Rúmur helmingur eldri borgara
í Reykjavík í FEB
Dýrleif kemur inn á fjölda félags-
manna í FEB, mót hlutfallslegum
fjölda íbúa höfuðborgarinnar.
Það er nokkuð hátt, eða 14.600 af
þeim 26 þúsundum sem eru sextíu
ára gamlir -og eldri, á Íslandi.
Stærstur prósentufjöldi félagsins
eru einstaklingar á aldrinum 70–80
Sigrún Pétursdóttir
sigrunpeturs@bondi.is
Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB) er opið öllum þeim
sem náð hafa 60 ára aldri, sem og mökum þeirra, yngri jafnt sem eldri.
Er um stóran og skemmtilegan hóp að ræða, félagatal alls 14.600, sem
bæði nýtur lífsins til hins ýtrasta við hin ýmsu skemmtilegheit auk þess að
gæta hagsmuna sinna og kjaramála í samvinnu við Landssamband eldri
borgara. Dýrleif Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri FEB, segir hér lítillega
frá starfsemi félagsins, en hún hefur undanfarið verið með kynningu á
því á starfslokanámskeiðum sem haldin eru á vegum fyrirtækja, þá ætlað
þeim sem eru að stíga fyrstu skrefin í hóp eftirlaunaþega.
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA Í YFIR 50 ÁR
Kistur ætlaðar undir salt eða sand á hálar gangstéttar og vegi. Nýtast einnig vel
sem geymsluílát á leikskólum, íþróttavöllum, sundlaugum, við ölbýlishús og víðar.
Staflast hver ofan í aðra sem minnkar stórlega rúmmál bæði við flutning og geymslu.
Við bjóðum við einnig upp á salt í kisturnar svo þú getur komið til okkar og fengið
fulla kistu af salti. Allt sem þú þarft í einni ferð!
SALT- OG
SANDKISTUR
Borgarplast.is
borgarplast@borgarplast.is
Dýrleif Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Félags eldri borgara í Reykjavík
og nágrenni.
Öll eldumst við nú
Á vefsíðu Landlæknisembættisins
kemur fram að einmanaleiki og
tómarúm eiga ekki að vera fylgi-
fiskar þess að eldast. Mikilvægt
er að vera vakandi fyrir merkjum
um versnandi geðheilsu eldra
fólks, svo sem minnisskerðingu,
pirringi, svefnvanda, kvíða,
depurð eða vanvirkni.
Í nútímasamfélagi eru umskipti
ævistarfsins og fyrstu skrefin
í heim eldri borgara oft vand-
meðfarin, þó þessi þáttaskil séu
óumflýjanleg. Fyrir suma eru
skrefin kvíðvænleg og full óvissu,
margir finna fyrir einmanaleika og
depurð, jafnvel reiði.
Upplifunin um að vera eða verða
byrði, gagnslaus og án tilgangs
getur skotið upp kollinum, en ekki
er óeðlilegt að finna fyrir slíkri
vanlíðan við þessa breytingu.
Við langvinna vanlíðan er þó
mikilvægt að leita sér aðstoðar
enda hvorki þunglyndi né
kvíði eðlilegir förunautar ef um
viðvarandi ástand er að ræða.
Þeir sem bera titilinn eldri borgari
bera það þó oft með sér að nú séu
bestu árin eftir og sjá fyrir sér að
njóta þeirra til hins ýtrasta.
Margir takast á við ný viðfangsefni,
kynna sér eða læra eitthvað sem
hefur lengi blundað í þeim og láta
drauma rætast.
Að finna lífi sínu tilgang á jafnt við
á öllum aldursskeiðum og felst
farsæl öldrun meðal annars í því
að rækta hæfileika sína, leggja
áherslu á þau lífsgæði sem eru
og tækifæri sem fylgja efri árum.
Einhverjir sakna félagsskapar,
enda tengsl við vinnufélaga
rofnað að nokkru en þá er um að
gera að líta sér nær og brydda upp
á nýjum tengingum.
Samkvæmt Hagstofunni eru
tölur þjóðarinnar á þá vegu að
þegnar landsins, sextugir og
eldri, eru alls 77.332 talsins. Vert
er því að geta þess að víða um
land má finna félög eldri borgara.
Á landsvísu eru þau skráð alls 55
talsins og nokkuð mikil virkni er í
þeim allflestum.
Þar má sækja félagsskap jafn-
aldra, kynnast nýju fólki og e.t.v.
læra nýtt tómstundagaman.
Þeir eru ábúðarfullir höfðingjarnir í eldhúsinu þeir Bjarni Hjartarson,
Sigmundur Stefánsson, Baldur Einarsson auk kennarans og áhugakokksins,
hans Kristjáns E. Guðmundssonar. Einnig glittir í Ingólf Antonsson.
Salur félagsins er bæði rúmur og vel útbúinn fyrir hvað sem er.