Bændablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 27

Bændablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023 ára, eða nálægt 80% Reykjavíkurbúa á því aldursbili. Félagsleg virkni er öllum þörf og skemmtileg aukningin þarna, enda aldurshópurinn á undan, 60–70 ára, oft enn á vinnumarkaði en þar eru tæp 20% sem hafa gengið til liðs við félagið. „Heimasíða félagsins er afar aðgengileg og sýnir m.a. það félagsstarf sem er í boði, hvaða námskeiðsnýjungum við höfum bryddað upp á auk almennra upplýsinga. Kór, klúbbar og ferðalög auk viðburðadagatalsins.“ Matreiðslunámskeið fyrir alvöru karlmenn „Það er gaman að segja frá því að fyrir áramót héldum við í fyrsta sinn matreiðslunámskeið sem einungis var ætlað karlmönnum. Þeir eru þó nokkrir sem sjaldan eða aldrei hafa stigið fæti inn fyrir eldhúsdyrnar, en vegna breyttra aðstæðna þurfa nú að taka sér sleif í hönd. Vel var mætt og fengu þátttakendur að velja hvað þá langaði að læra að matbúa. Kennarinn var Kristján E. Guðmundsson, áhugakokkur á sama reki og nemendurnir, og gekk þetta framar öllum vonum auk þess sem neytt var dýrindis málsverðar í hvert sinn. Við verðum með annað námskeið sem hefst núna 30. janúar og um að gera að skrá sig fyrir þá sem langar að spreyta sig við einfalda íslenska matseld,“ segir Dýrleif brosandi. Ferðalög og gistingar á næstunni auk fjölbreytts félagslífs „Árlega er farið í nokkrar dagsferðir. Einnig aðrar þar sem við gistum nótt og nótt. Við erum meira að segja með ferðaskrifstofuleyfi og getum því sett saman ferðir eftir hentugleika. Það eina sem á strandar er gistingin. Eins og staðan er núna lítur út fyrir að næsta gistipláss sé laust árið 2024,“ segir Dýrleif hlæjandi. „Nú er reyndar stór hópur á leið til Færeyja í tengslum við Íslendingasöguklúbbinn sem fer á söguslóðir í takt við efnið sem er verið að lesa – í þessu tilviki Færeyingasögu. „Þegar kemur að ferðaskrif stofunni okkar, FEB-ferðum (sem er hjáheiti fyrir ferðaskrifstofu FEB) fórum við í vel á annan tug innan- og utanlandsferða yfir síðasta ár, bæði lengri og styttri ferðir – og á síðasta ári voru það u.þ.b. 500 félagsmenn sem fóru í ferðirnar með okkur, enda afar skemmtileg dægradvöl. Auk annars félagsstarfs er það sem helst stendur upp úr, spænskunám, kór, gönguferðir og svo vikulegir dansleikir, en á hverju sunnudagskvöldi klukkan átta flykkjast hingað dansunnendur og sletta úr klaufunum. Þetta er fastur punktur hjá okkur og alltaf jafn vinsæll. Við erum svo heppin að eiga húsnæðið hérna að Stangarhyl 4 og höfum því nægt rými er kemur að skemmtunum, Zumba-dans, stólaleikfimi eða öðrum uppákomum, og svo hefur reyndar salurinn verið leigður út fyrir fermingar eða annað. En það er um að gera að drífa sig af stað ef áhugi er fyrir hendi, endilega að kíkja,“ lýkur Dýrleif máli sínu. Félagið var stofnsett árið 1989 og á sér því rúmlega þrjátíu ára sögu. Stofnun þess var að norrænni fyrirmynd en nokkrir í félögum eldri borgara á Íslandi höfðu átt í góðum samskiptum við samtök eftirlaunafólks Norðurlanda; Norrænu samvinnunefndina. Þótti samheldni og samstarf meðal félaga eldri borgara á landsvísu eftirsóknarverð og úr varð stofnun Landssambandsins hérlendis. Sambandið hefur vissulega mótað réttindi og velferð eldri borgara yfir tíðina en á vefsíðu þess kemur fram að þarna er um að ræða sjálfstætt starfandi samtök sem vinna að „hagsmuna-, velferðar- og áhugamálum aldraðra og kemur fram fyrir hönd aðildarfélaganna gagnvart Alþingi, ríkisstjórn, stjórnvöldum og öðrum sem sinna málefnum aldraðra fyrir landið í heild“. Gætt er fyllsta hlutleysis er kemur að trú og stjórnmálum og stuðlar sambandið að „samvinnu félaga eldri borgara og að slík félög séu starfandi í öllum sveitarfélögum landsins“. Til viðbótar er Grái herinn, sem áður var stofnaður sem deild innan Félags eldri borgara í Reykjavík, nú baráttu- hópur mannsæmandi kjara með hagsmuni eldra fólks í forgrunni, enda ættu allir hópar þjóðfélagsins að geta notið bæði reisnar og virðingu til jafns. Hagsmuna og kjara er þó ekki einungis gætt auk samþættrar félags- og heilbrigðisþjónustu, heldur er eldri borgurum boðið upp á öflugt félagslíf. Sitjandi formaður í dag er mörgum kunnur, Helgi Pétursson að nafni, oft kenndur við hljómsveitina Ríó tríó. Aðspurður um stöðu félagslífs eldri borgara telur hann árið sem nú nýverið gekk í garð lofa góðu og mikið um að vera nú þegar atgengi Covid-veirunnar fer hallandi. Áhugaverðar vefsíður: www.leb.is (Landsamband eldri borgara) www.lifdununa.is (varðar líf og störf þeirra sem komin eru yfir miðjan aldur) www.graiherinn.is (Grái herinn) Landssamband eldri borgara á Íslandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.