Bændablaðið - 26.01.2023, Síða 60
60 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
Í nóvember síðastliðnum sóttu
sex ráðunautar RML sauðfjár-
ræktarráðstefnu í Bretlandi.
Ráðstefnan nefnist Sheep breeders
round table, eða hringborð
sauðfjárræktenda, og koma þar
saman ráðunautar, dýralæknar,
vísindafólk og sauðfjárbændur og
fara yfir þau mál sem eru efst á
baugi hverju sinni.
Í tengslum
við þá ráðstefnu,
sem sagt verður
frá síðar, gafst
tækifæri til
að heimsækja
bændur um
miðbik Bret-
lands, nálægt
Skírisskógi, sem
er Íslendingum
kunnur sem heimkynni Hróa hattar
og einnig höfuðstöðvar British wool í
Bradford. Í síðasta tölublaði var sagt
frá þremur heimsóknanna, til British
wool og tveggja sauðfjárbænda, en
hér verður sagt frá heimsóknum til
bænda með nautgripi.
Kúabúið Gleadthorpe
Við heimsóttum stórt kúabú með
um 750 Holstein kýr í nágrenni
Mansfield, um 100 km sunnan við
Bradford. Búið er rekið af fjölskyldu,
daglegur rekstur er fyrst og fremst
hjá bræðrunum David og Will og
systur þeirra Mörthu, en auk þeirra
koma faðir þeirra og föðurbróðir
að fjármögnun, uppbyggingu og
daglegum verkum. Auk þess eru á
búinu tveir til fjórir starfsmenn sem
mest eru í mjöltum og þrifum. Búið
og öll aðstaða hefur verið byggð
upp ný frá árinu 2008 þegar eldri
bræðurnir keyptu jörðina en þar
var áður tilraunabú fyrir breskan
landbúnað. Kýrnar á búinu eru
fóðraðar á heilfóðri í fjórum um
190 kúa hópum þar sem skipt er
í hópa eftir stöðu á mjaltaskeiði
og nyt. Hver hópur er fóðraður
á viðeigandi heilfóðurblöndu og
fá kýrnar kjarnfóður til viðbótar
í mjöltum. Mjaltir fara fram í
mjaltahringekju með 36 plássum
og er mjólkað þrisvar á dag. Tveir
starfsmenn sjá um mjaltirnar í hvert
sinn en hringekjan býður þó upp
á þann möguleika að aðeins einn
sé við mjaltir. Búið er með beinan
samning um mjólkursölu við stóra
verslunarkeðju, Sainsbury‘s, og
samkvæmt þeim samningi er borgað
fyrir magn en ekki sérstaklega fyrir
efnainnihald öfugt við það sem
t.d. Arla gerir, en það er stærsta
afurðastöð fyrir mjólk í Bretlandi.
Á búinu er mikil áhersla lögð
á einsleitni fóðurs, samloðun og
fóðurgæði til hámarksafurða.
Heilfóðrið var að mestu samsett úr
heimaræktuðu fóðri, maísheilsæði,
súrheyi og lítils háttar refasmára
fyrir ódýrt viðbótarprótein. Kúnum
er ekki beitt vegna jarðvegsgerðar
og veðurfars á svæðinu en búið er
staðsett á svæði þar sem jarðvegur
er sandkenndur og lítil rigning.
Helstu áskoranir á búinu eru
tengdar frjósemi og heilbrigði, s.s.
júgurbólgu og helti, og hafa bændur
leitað leiða til að takast á við þessar
áskoranir. Allar kýr eru með tvenns
konar hreyfiskynjara, annan á ökkla
og hinn í eyra, til að meta aukna
hreyfingu sem bendir til beiðsla eða
minnkaða hreyfingu sem bendir til
veikinda eða helti. Hreyfiskynjarar
í eyra meta auk þess jórturtíma með
því að skynja mismunandi mynstur
í hreyfingum á eyrunum. Auk
þessa eru kýrnar með svokallaðan
skafmiða á mölum sem byrja gráir en
ef aðrar kýr riðlast á kúnni nuddast
gráa húðin ofan af og appelsínugult
merki merkir þær kýr sem standa
undir. Þessar lausnir þekkja bændur
hér á landi. Einnig höfðu þau gripið
til margra lausna til að berjast við
júgurbólgu, m.a. að halda kúm
sér í litlum stíum í lok geldstöðu í
stað þess að hafa þær í hópi svo og
nákvæmar sótthreinsiaðferðir og við
upphaf og lok mjaltaskeiðs.
Þessar aðferðir hafa skilað
árangri en eitthvað er þó enn um
fyrirbyggjandi sýklalyfjagjöf á
geldstöðu fyrir þær kýr sem eru
í vandamálum á mjaltaskeiði.
Húsakostur er nokkuð ólíkur því
sem við eigum að venjast hér heima
þar sem um var að ræða steypt
plön undir einföldu þaki en bara
smákálfarnir fengu fjóra veggi í
kringum sig. Skýli sem þetta var fyrir
hvern fóðrunarhóp, legubásaraðir
í miðju skýli en fóður gefið úr
heilfóðurblandara á fóðurganga utan
með hverjum hóp. Mykja er hreinsuð
undan kúnum á meðan þær eru í
mjöltum. Þurrefnið úr mykjunni er
skilið frá í nokkurs konar skilvindu
og er það að stærstum hluta selt til
gasgerðar en hinu er dælt í lón og
notað til áburðar.
Ungkálfar á Gleadthorpe voru
yfirleitt 2-3 saman í stíum úr
plastplötum sem er smellt saman á
hornunum. Hálmur er undir þeim og
einnig ofan á grindum yfir stíunum
hjá minnstu kálfunum. Í hverri stíu
er mjólkurfata sem skammtað er
í fjórum sinnum á dag og að auki
vatn og frjálst aðgengi að kjarnfóðri.
Ungkálfarnir voru gæfir, glansandi og
fallegir og mjög þrifalegt í kringum
þá. Sérstaklega er gætt að sóttvörnum
inn í ungkálfafjósið, t.d. með því að
sótthreinsa skó í hvert sinn sem farið
er þangað inn.
Kýrnar á Gleadthorpe eru nytháar
og unnið að fagmennsku að því með
fóðrun, sem og að því að bæta frjósemi
og þá heilbrigðisþætti sem hafa verið
áskorun. Að tryggja velferð kúa á búi af
þessari stærð í þessu framleiðslukerfi
er svo önnur áskorun.
Holdanautaeldi
Síðast en alls ekki síst heimsóttum við
Tim Phipps sem býr með holdanaut
af Stabiliser kyni. Stabiliser kynið
er samsett kyn, upphaflega frá
Bandaríkjunum, sem búið var til með
því að rækta saman bestu gripina af
nokkrum mismunandi holdakynjum.
Bestu gripir hvers kyns eru valdir út frá
kynbótamati og svo er kynjum blandað
þar til kemur fram Stabiliser kynið,
sjálfstætt samsett kyn þar sem bestu
eiginleikar upphaflegu kynjanna eru
orðnir stöðugir í framræktun. Helstu
eiginleikar kynsins eru góð skapgerð,
skjótur þroski, hraður vöxtur, mikil
kjötgæði, góð fóðurnýting og góðir
mæðraeiginleikar svo eitthvað sé
nefnt. Góðri fóðurnýtingu hefur meðal
annars verið náð fram með að rækta
frekar smáar kýr án þess að það komi
niður á vaxtarhraða afkvæmanna.
Tim hafði minnkað kýrnar úr 700
kg fullorðinsþunga niður í 600 kg
og haldið flokkun, fallþunga og aldri
nautkálfa við fullan þroska óbreyttum.
Hjörðin telur um 200 holdakýr.
Búrekstrarkerfið er blanda af eldi
á heilfóðri undir þaki og beit á
fjölærum túnum, túnin eru um 120
ha. Gripirnir eru úti á beit eins og
landstærð og veðurfar leyfir en
þurrkatímar og rigningartímar henta
ekki til útibeitar á þessu svæði vegna
jarðvegsgerðarinnar. Eldi kálfanna
fer fram inni eða í óyfirbyggðum
hálmstíum eftir að þeir eru teknir
undan. Gefið er í fóðurtrog með
útvegg í lokaeldinu. Þegar búið er að
gefa er hálmi blásið í stíurnar aftan
við gripina af miðgangi. Hann er
líka notaður þegar þarf að vinna með
gripina svo og flokkunargangur með
meðhöndlunarbás sem settur var upp
við byggingu aðalhússins. Fyrsti hluti
eldisins fer fram í eldri byggingu og þar
er fóðrað á hefðbundinn miðgang og
hálmi blásið inn yfir gripina. Byggingar
eru óeinangraðar og útveggir stundum
ekki til staðar svo byggingarkostnaður
er ólíkur því sem hér gerist. Gefið er
úr heilfóðurblandara og lögð áhersla
á einsleitt kraftmikið fóður. Tim elur
sína nautkálfa í sláturstærð á um 12
mánuðum með 350 kg fallþunga í
E-U-R flokka. Kjötið er selt beinum
samningi í Morrison-verslunarkeðjuna.
Í samstarfinu við Morrison felast
hvatar til kolefnishlutleysis og
náttúruverndar. Allar kvígur eru aldar
á búinu til 14 mánaða aldurs og þá
heldur hann þeim bestu eftir en selur
hinar til framræktunar. Það var mjög
áberandi hvað gripirnir á búinu voru
gæfir og greinilega gagnkvæm virðing
í umgengni gripa og bændanna. Gripir
á útibeit svöruðu kalli bóndans og
gripir á öllum eldisstigum nálguðust
okkur óhræddir.
RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS
Á slóðum Hróa hattar:
Bændaheimsóknir í Englandi
nóvember 2022 – seinni hluti
Guðfinna Harpa
Árnadóttir.
Stabiliser beef kýr í inniaðstöðunni.
Mjaltir í hringekju fyrir 36 kýr.
Kýr á Gleadthorpe búinu. Ungkálfaaðstaða, Martha skammtar hverjum kálfi mjólk.