Bændablaðið - 26.01.2023, Page 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2023
FRÉTTASKÝRING
Í nýju lögunum er hugtakið „líf
úrgangur“ notað um þann lífræna
úrgang sem flokka þarf sérstaklega
til moltugerðar. Lífúrgangur er
þannig fyrst og fremst matar og
eldhúsúrgangur, sem brotnað getur
niður fyrir tilstilli örvera. Hugtakið
„lífrænn úrgangur“ er víðfeðmara
og nær yfir úrgangsflokka eins og
timbur, húsdýraáburð, sláturúrgang,
pappír, pappa og ýmislegt fleira sem
ekki er lífúrgangur, en er einnig
óheimilt að urða.
Fá sveitarfélög innleitt löggjöfina
Fá sveitarfélög hafa innleitt lög
gjöfina í sína sorphirðu. Þó hefur
almenningi og lögaðilum verið skylt
að flokka lífúrgang sérstaklega frá
áramótum.
„Sveitarfélög eru um þessar
mundir að innleiða nýjar flokkunar
tunnur og það er við því að búast
að það taki einhvern tíma. Þangað
til það gerist höldum við auðvitað
áfram að flokka úrgang í þær tunnur
sem bjóðast eftir bestu getu. Við
erum öll í þessu saman. Einhver
sveitarfélög eru nú þegar langt komin
eða jafnvel búin að innleiða nýjar
flokkunartunnur sem er frábært.
Önnur sveitarfélög eru að detta
inn á næstu mánuðum en engin
sveitarfélög ættu að vera mikið seinni
en það. Nú eru flest sveitarfélög bara
að bíða eftir tunnum,“ segir Jóhannes
B. Urbancic Tómasson, sérfræðingur
á sviði loftslagsmála og græns
samfélags hjá Umhverfisstofnun.
Skylda sveitarfélaganna að
ákveða fyrirkomulag söfnunar
„Aðkoma Umhverfisstofnunar
er fyrst og fremst að greiða fyrir
innleiðingu laganna. Við höfum
gefið út handbók fyrir sveitarfélög
um úrgangsmál og höldum uppi
fræðslu fyrir almenning og fyrirtæki.
Umhverfisstofnun fer með
eftirlit með framkvæmd laga um
meðhöndlun úrgangs þannig að
aðkoma okkar er líka í eftirfylgni með
lögunum, ekki bara innleiðingunni,“
segir Jóhannes.
Hann játar því að almenningi
sé óheimilt að henda lífúrgangi í
óflokkaða ruslatunnu, en hvað ef
engar tunnur eru í boði fyrir þennan
úrgang í sveitarfélögum?
„Það er skylda sveitarfélaganna
að ákveða fyrirkomulagið á söfnun
úrgangsins í sveitarfélaginu og
sjá um flutning heimilisúrgangs.
Sveitarfélögin hafa sömuleiðis
skyldu til að ná tölulegum
markmiðum í úrgangsmálum, til
dæmis hvað varðar að lágmarka
urðun lífræns úrgangs og urðun
heimilisúrgangs.
Svo bera sveitarfélögin ábyrgð
á grettistaki í endurvinnslu
heimilisúrgangs sem við ætlum að
ná upp í 55 prósent árið 2025. Nú
erum við á milli 2530 prósent.“
Innleiðing á hringrásarhagkerfi
Að sögn Jóhannesar er forsendan
fyrir lagabreytingunum að greiða
fyrir innleiðingu hringrásarhagkerfis.
„Breytingarnar hafa ýmsa aðra
snertifleti eins og að minnka losun
gróðurhúsalofttegunda og vinna að
sjálfbærni Íslands. Með því að farga
úrgangi í stað þess að endurnýta hann
tapast auðlindir sem annars væri hægt
að nota. Þegar kemur að lífrænum
úrgangi eru næringarefni og kolefni
þær auðlindir sem er hægt að nýta
áfram, til dæmis sem áburð, eldsneyti
og moltu.
Með breytingunum færum við
okkur í átt að því að úrgangsmál geti
haft samverkandi áhrif með öðrum
málaflokkum eins og orkumálum,
loftslagsmálum, landgræðslu,
skógrækt og landbúnaði.“
Farvegurinn fyrir
hinn verðmæta úrgang
En hvað verður svo um allan þennan
lífúrgang, sem hingað til hefur verið
urðaður? Jóhannes segir að hann
muni fara í endurvinnslu í gegnum
jarðgerðarferli og metanvinnslu.
„Ég geri ráð fyrir því að stór hluti
af þessum úrgangi fari í gegnum
Jarðgerðarstöðina GAJA í Álfsnesi,
víða að frá landsbyggðinni líka. Svo
eru fleiri stórar móttökustöðvar fyrir
þennan úrgang, til dæmis á Akureyri.
Afurðirnar úr ferlinu eru yfirleitt
molta og metangas. Hvað moltuna
varðar þá skiptir miklu máli að
lífúrgangi sé sérsafnað því óhreinni
úrgangur getur mengað moltuna.
Það er strax komin fjölbreytt
flóra fyrirtækja hér á Íslandi sem
endurvinna úrgang í verðmætar vörur
þrátt fyrir að sá vettvangur sé almennt
frekar nýr á Íslandi. Metan er dæmi
um það sem er unnið úr lífrænum
úrgangi og mikil eftirspurn er eftir
sem eldsneyti.
Við vinnum svo moltu sem er
gagnlegur jarðvegsbætir og úti í
hinum stóra heimi eru fyrirtæki sem
ná fosfórnum úr lífrænum úrgangi
til að vinna í fosfórríkan áburð. Ég
held við munum sjá þennan vettvang
vaxa og þroskast á næstu árum,“
segir hann og bætir við að í næsta
innleiðingarpakka muni fosfór
væntanlega verða skilgreindur sem
þýðingarmikið hráefni sem verði
bannað að sóa.
Vandasamur úrgangur dýraafurða
Lagabreytingarnar sem tóku
gildi 1. janúar hafa ekki í för
með sér neina breytingu á því
hvernig meðhöndla þarf dýrahræ
og aukaafurðir úr dýrum sem
eru ekki ætlaðar til manneldis.
Eftir sem áður verður óheimilt að
urða þennan úrgang, en Jóhannes
telur að staðan í þeim málum sé
ekki nógu góð.
Úrgangur sem fellur til hjá
sláturleyfishöfum, kjöt og fisk
vinnslum er staðbundinn, eins leitur
að samsetningu og yfirleitt í miklu
magni. Jóhannes segir að þess
vegna sé að vissu leyti auðveldara
að meðhöndla hann.
Það þurfi þó að huga sérstaklega
Bannað að urða lífrænan úrgang frá síðustu áramótum:
Verðmæt næringarefni fara
inn í hringrásarhagkerfið
– Fá sveitarfélög hafa þegar innleitt löggjöfina í sína sorphirðu
Bann við urðun á niðurbrjótanlegum úrgangi tók gildi hér á landi 1.
janúar síðastliðinn. Frumvarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar
umhverfis- og auðlindaráðherra þess efnis var samþykkt á vorþingi 2021.
Hin nýja löggjöf er innleiðing Evróputilskipana frá 2018 sem eiga
að skapa skilyrði fyrir myndun hringrásarhagkerfis. Þær tilskipanir
kveða meðal annars á um sérsöfnun á lífrænum úrgangi, til að koma í
veg fyrir að verðmæti í formi næringarefna hverfi úr hagkerfinu sem
úrgangur og til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda.
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is
Jóhannes B. Urbancic Tómasson, sérfræðingur á sviði loftslagsmála og
græns samfélags hjá Umhverfisstofnun. Mynd / Aðsend